Bæjarráð - 3244. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
01
Ósk bæjarfulltrúa Theódóru Þorsteinsdóttur eftir upplýsingum er varða byggingu Barnaskóla Kársness
Frá umhverfissviði, dags. 27.01.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi byggingu Barnaskóla Kársness.
Erindi frá bæjarfulltrúum undir máli nr. 11 og 12 eru rædd og afgreidd undir þessum dagskrárlið.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl.9.48.
Framhald umræðu vísað til næsta fundar bæjarráðs.
Frá SSH. dags. 16.01.2026, lagðar fram niðurstöður ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs. Niðurstaða Stefnuráðs byggðasamlaganna fellst fyrir sitt leyti á að fyrirliggjandi tillögum verði vísað til afgreiðslu aðildarsveitarfélaganna. Á grundvelli ofangreinds er farið fram á að meðfylgjandi tillaga um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., sem nánar er lýst í fylgiskjali 2, verði tekin til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélagsins.
Kynning og umræður.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:05
Gestir viku af fundi kl. 10.51
Bæjarráð vísar tillögu um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., Líf ehf. og Lok ehf., til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá bæjarstjóra, dags. 27.01.2026, lögð fram tillaga að framlengingu á uppsögn leigusamnings Sorpu Dalvegi til 31.12.2026.
Umræður.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum framlagða tillögu um framlengingu þjónustu Sorpu á Dalvegi 1 til 31.12.2026.
Frá menntasviði, dags. 26.01.2026, lagt fram svar við fyrirspurn um grænkerafæði í leikskólum.
Lagt fram og umræður.
Bæjarráð vísar erindinu að nýju til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.
Bókun:
"Undirrituð óskar eftir að spurningum sínum sé svarað í samræmi við efni þeirra."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
05
Til umsagnar 322. mál - Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 322. mál. Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030.
Vísað til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs.
Fundargerð í 23 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 55. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.01.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 621. fundar stjórnar SSH frá 19.01.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 13. fundar stefnuráðs frá 07.11.2025.
Lagt fram.
11
Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur eftir að mánaðarskýrslur fyrir byggingu Barnaskóla Kársness fyrir árið 2025 og fyrir janúar 2026 komi á dagskrá bæjarráðs
Frá bæjarfulltrúa Viðreisnar, lögð fram beiðni um að fá mánaðarskýrslur fyrir byggingu Barnaskóla Kársness fyrir árið 2025 og fyrir janúar 2026 á dagskrá bæjarráðs.
Lagt fram og umræða sameinuð máli nr. 1 á dagskrá (25112715)
Frá bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, lögð fram beiðni um að fá upplýsingar um málefni Barnaskóla Kársness á dagskrá bæjarráðs.
Lagt fram og umræða sameinuð máli nr. 1 á dagskrá (25112715)