Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Lántökur Kópavogsbæjar 2023 - Framhaldsmál

Málsnúmer: 2212466

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1288. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 20. nóvember 2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar til að undirrita viðauka við lánasamninga við Íslandsbanka, annars vegar að eftirstöðvum kr. 2.700.000.000,- og hinsvegar að eftirstöðvum kr. 945.000.000,- þar sem lokadögum er breytt úr 5.12.2023 í 5.12.2028.

Einnig er óskað eftir heimild til að taka skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.500.000.000,- frá og með 29.11.2023.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur að undirrita viðauka við lánsamninga við Íslandsbanka, annarsvegar að eftirstöðvum kr. 2.700.000.000,- og hinsvegar að eftirstöðvum kr. 945.000.000,- þar sem lokagjalddögum er breytt úr 5.12.2023 í 5.12.2028.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur að taka skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.500.000.000 frá og með 29. nóvember 2023 með gjalddaga 29. maí 2024 í samræmi við skilmála skammtímaláns sem liggur fyrir fundinum og bæjarstjórn hefur kynnt sér. Lánið er tekið á grundvelli langtímalánsumsóknar hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Vextir lánsins 11,48% sem jafngildir 6 mánaða REIBOR vöxtum með 1 ,5% álagi.

Lánið er tekið til að fjármagna verkefni sveitarfélagsins sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Ásdísi Kristjánsdóttur kt. 280978-3459 veitt fullt og ótakmarkað umboð fyrir hönd Kópavogsbæjar að undirrita skammtímalánasamning við Lánasjóð Sveitarfélaga.

02

Bæjarráð - 3152. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 20. nóvember 2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar til að undirrita viðauka við lánasamninga við Íslandsbanka, annars vegar að eftirstöðvum kr. 2.700.000.000,- og hinsvegar að eftirstöðvum kr. 945.000.000,- þar sem lokadögum er breytt úr 5.12.2023 í 5.12.2028.

Einnig er óskað eftir heimild til að taka skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.500.000.000,- frá og með 29.11.2023.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Bæjarstjórn - 1274. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 7. mars 2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að taka allt að 1,5 milljarða að láni, í samræmi við fjárhagsáætlun 2023, til að fjármagna

framkvæmdir og að einhverju leiti endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á árinu

2023.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur,Thelmu Árnadóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur umbeðna lántöku í samræmi við erindi deildarstjóra hagdeildar.

04

Bæjarráð - 3121. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 7. mars 2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að taka allt að 1,5 milljarða að láni, í samræmi við fjárhagsáætlun 2023, til að fjármagna

framkvæmdir og að einhverju leiti endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á árinu

2023.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

05

Bæjarstjórn - 1270. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 28. desember 2022, lagt fram erindi um framlengingu á hækkun lánalína Kópavogsbæjar, ásamt erindi um töku á nýju grænu láni frá Lánasjóði sveitarfélaga.

Ákvörðun um framlengingu yfirdráttarheimilda:

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkir með 11 atkvæðum framlengingu yfirdráttarheimilda á veltureikningi hjá viðskiptabönkunum eins og hér segir:

- Í Íslandsbanka hf. verði fjárhæð yfirdráttarheimildarinnar áfram 1.600.000.000 kr.

- Í Arion banka hf. verði fjárhæð yfirdráttarheimildarinnar áfram 1.800.000.000 kr.

Bæjarstjórn veitir Ingólfi Arnarsyni kt. 050656-3149, Kristínu Egilsdóttur, kt. 030268-5989 og Ásdísi Kristjánsdóttir kt. 280978-3459, umboð til þess að semja um og undirrita samning um framlengingu framangreindra yfirdráttarheimilda á veltureikningum, á milli Kópavogsbæjar og viðkomandi viðskiptabanka. Yfirdráttarheimild verði framlengt um eitt ár í senn, eða til 20. janúar 2024 og svo áfram eftir því sem samningur við bankana hljóðar.

Ákvörðun um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga:

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkir með 11 atkvæðum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.500.000.000, með lokagjalddaga 23. mars 2040. Vextir þessa láns eru 3,05% auk verðtryggingar.

Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til að fjármagna byggingu svansvottaðs grunnskóla, Kársnesskóla, sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra, kt. 280978-3459 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

06

Bæjarráð - 3113. fundur