Bæjarstjórn - 1274. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Hannes Steindórsson - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSigrún Hulda Jónsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaðurBoðaði forföllKolbeinn Reginsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Helga Jónsdóttir tók sæti forseta í fjarveru Sigrúnar Huldu Jónsdóttur.
Dagskrá fundar
Erindi frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
Umræður.
Fundargerð í 28 liðum.
Lagt fram.
2.8 - 23021502 - Markavegur 8, lóð skilað.
Frá bæjarlögmanni, dags. 27.02.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs að samþykkt verði að lóðarréttindum að Markarvegi 8 sé skilað.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum skil á lóðinni Markarvegi 8.
Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
3.1 - 2212466 - Lántökur Kópavogsbæjar 2023 - Framhaldsmál
Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 7. mars 2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að taka allt að 1,5 milljarða að láni, í samræmi við fjárhagsáætlun 2023, til að fjármagna
framkvæmdir og að einhverju leiti endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á árinu
2023.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur,Thelmu Árnadóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur umbeðna lántöku í samræmi við erindi deildarstjóra hagdeildar.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tíu liðum.
Lagt fram.
6.3 - 2208338 - Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Tillaga að breyttu aðalskipulagi.
Lögð fram tillaga skipulagsdeildar að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf /Vatnsendahæð. Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af fyrirhuguðum Arnarnesvegi til norðvesturs, íbúðarbyggð í Kórum til suðvesturs, fyrirhuguðu samfélagsþjónustusvæði (s-67) til suðurs, íbúðarbyggð í Hvörfum til austurs og athafnasvæði í Hvörfum til norðurs. Breytingin er gerð í tengslum við vinnu deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ábendingar og umsagnir sem hafa borist. Í breytingunni felst að afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðarsvæði (ÍB-6), opin svæði og samfélagsþjónustu breytt, fellt er út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins og sú þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla, auk þess sem staðsetning minjasvæðis er leiðrétt. Skilgreiningin „tengibraut“ á Kambavegi að og frá hverfinu (ÍB-6) er felld niður. Tillögunni fylgir m.a. umhverfisskýrsla sem unnin er sameiginlega fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.
Tillagan er sett fram í greinargerð ásamt umhverfisskýrslu dags. í febrúar 2023.
Skipulagsráð leggur til að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 verði auglýst, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsráð samþykkir að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar með vísan til 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga og að tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. sömu laga.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
- Br-ask-nr2_grg-og-uppdr_Vatnsendahvarf-Vatnsendahæð_17 febrúar 2023-TILLAGA lokavinnsla
- 101458-SKY-001-V01-Umhverfismatsskyrsla-Vatnendahvarf-dsk-ask
- Fskj-2_Br-ask_Vatnsendahvarf_minnisblað-VSÓ_um-breyt-á-tengibr_Kambavegur_uppfært
- Fskj-3_Vatnsendahvarf-mat-þjónusta_minnisbl-VSÓ-20221104
- 101458-MIN-002-V04-Áhættumat-DSK-Vatnsendahvarf 20230126-lok
- Fornleifaskráning_Vatnsendahvarf_2022
- 2208338 - 137. fundur skipulagsráðs. Glærur.
6.4 - 2011714 - Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Tillaga að deiliskipulagi.
Lögð fram tillaga Arkþing/Nordic arkitekta f.h. umhverfissviðs að deiliskipulagi nýs íbúðahverfis í Vatnsendahvarfi. Megintilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Deiliskipulagssvæðið er um 29 hektarar og liggur að mörkum Reykjavíkur, Kórahverfis og Hvörfum í Vatnsenda. Gert er ráð fyrir nýju íbúðahverfi með fjölbreyttu formi íbúða, leikskóla/skóla og útivistarsvæðum ásamt möguleika á verslun- og þjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir 500 íbúðum alls, þar af um 150 íbúðum í sérbýli, (einbýli, raðhús/parhús). Hámarkshæð bygginga er 3 hæðir auk kjallara. Jóhanna Helgadóttir skipulagsfræðingur kynnir tillöguna. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv.1:2000 dags. 20. febrúar 2023 ásamt skýringaruppdrætti og greinargerð dags. 20. febrúar 2023.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að deiliskipulagi fyrir Vatnsendahvarf dags. 20. febrúar 2023 verði auglýst.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Fundarhlé kl. 17:08
Fundi fram haldið kl. 17:19.
Bókun frá Hákoni Gunnarssyni, Helgu jónsdóttur, Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur „Brýn þörf er á framboði íbúða á viðráðanlegu verði í Kópavogi. Rammasamningur ríkis og sveitarfélaga frá 12 júlí 2022 er góð viðleitni til að móta langtímasýn í þessu mikilvæga úrlausnarefni. Mikilvægt er að Kópavogsbær taki mið af þeim sjónarmiðum sem þar koma fram við úthlutun byggingarlands.“
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
- Nordic - kynning dags. 20.02.2023.
- Vatnsendahvarf - greinargerð deiliskipulags_uppfært20.02.2023
- 20055_Deiliskipulagstillaga Vatnsendahvarf_skýringaruppdráttur_uppfært20.2.2023
- 20055_Deiliskipulagstillaga Vatnsendahvarf_uppdráttur_uppfærð 20.02.2023
- Minnisblað um helstu breytingar frá forkynningu_lok_adk
- Vatnsendahvarf - greinargerð deiliskipulags_lok
- 20055_Deiliskipulagstillaga Vatnsendahvarf_ deiliskipulagsuppdráttur
- 20055_Deiliskipulagstillaga Vatnsendahvarf_ skýringaruppdráttur
- Fskj 1 umhverfismatsskyrsla-Vatnendahvarf-dsk-ask
- Fskj 2-Áhættumat-DSK-Vatnsendahvarf 20230126-lok
- Fskj 3 Fornleifaskrá Vatnsendahvarf
- Fskj 4 Vatnsendahvarf-mat-thjonusta_minnisbl-vso-20221104753
- Fskj 5 Vatnsendahæð ofanvatnslausnir
- Fskj 6-Hljodvistarutreikningar
- Fskj 7 Vatnsendahæð umferðargreining uppfært
- Fskj 8_Vatnsendahvarf GIR
- Fskj 9 Samradsaaetlun-vatnsendahaed
- Minnisblað -samrad-vid-motun-uppfært
- Minnisblað garðyrkjustjóra Kópapvogs
- Minnisblað frá Menntasviði - vegna fjölgunar nemenda_20220901
- Minnisblað frá Velferðasviði um búsetukjarna 2.11.2022
6.7 - 22114856 - Digranesvegur 72A. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 11. nóvember 2022, þar sem umsókn Huldu Jónsdóttur arktekts um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að kjallari verði stækkaður um 43 m². Núverandi byggingarmagn á lóðinni er 179,4 m² og verður 222,4 m² eftir breytingu. Nýtingarhlutfall eykst úr 0,29 í 0,36. Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2022 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 13. janúar 2023, athugasemdir bárust. Á fundi skipulagsráðs 16. janúar 2023 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 15. febrúar 2023 ásamt uppfærðum uppdráttum í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 9. febrúar 2023.
Skipulagsráð samþykkir erindið með vísan til umsagnar skipulagsdeildar dags. 15. febrúar 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
7.10 - 2210266 - Urðarhvarf 12. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Ragnars Magnússonar arkitekts fh. lóðarhafa dags. 12. október 2022 að breyttu deiliskipulagi Vatnsenda - Athafnasvæðis. Breytingin nær aðeins til lóðarinnar Urðarhvarfs 12. Í tillögunni felst að byggingarreitur hækkar úr 5 hæðum og kjallara í 6 hæðir og kjallara og byggingarreitur bílageymslu breytist og færist til suðurs að lóðarmörkum.
Heildarbyggingarmagn eykst úr 3.800 m² í 8.500 m², þar af um 1.500 m² í niðurgrafinni bílageymslu.
Gert er ráð fyrir einu bílastæði á hverja 50 m² í atvinnuhúsnæði og einu stæði á hverja 100 m² í geymslum í allt 130 stæði þar af um 50 stæðum í niðurgrafinni bílageymslu. Stærð lóðar Urðarhvarfs 12 er skv. fasteignaskrá 4.664 m². Nýtingarhlutfall er 0,9 og verður 1.83. Áður en aðalteikningar verða lagðar fyrir byggingarfulltrúa til afgreiðslu er gerð krafa um að byggingaráform verði lögð fyrir skipulagsráð til afgreiðslu. Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. september 2001 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 15. janúar 2001 m.s.br.
Á fundi skipulagsráðs 17. október 2022 var afgreiðslu frestað. Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var lagður fram uppfærður uppdráttur dags. 17. nóvember 2022 og samþykkt var að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 2. mars 2023, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
7.7 - 22115502 - Hrauntunga 91. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 25. nóvember 2022 þar sem umsókn Ellerts Más Jónssonar f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs.
Á lóðinni er raðhús á tveimur hæðum byggt árið 1966, alls 214,3 m² að flatarmáli. Ekki er í gildi deiliskipulag á lóðinni. Í breytingunni felst að byggt verði við húsið skýli yfir hluta svala á eftir hæð, 24,8 m² að flatarmáli. Byggingarmagn eykst úr 214,3 m² í 239,1 m². Nýtingarhlutfall eykst úr 0,36 í 0,4. Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir í mkv. 1:100, 1:500 dags. 20. október 2022.
Á fundi skipulagsráðs 5. desember 2022 var afgreiðslu frestað, vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 8. desember 2022.
Á fundi skipulagsráðs 19. desember 2022 var afgreiðslu frestað. Þá lagt fram minnisblað lögfræðideildar um höfundarrétt dags. 13. janúar 2023. Á fundi skipulagsráðs 16. janúar 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 24. febrúar 2023, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Hákons Gunnarssonar í ljósi þeirra fordæma sem eru á svæðinu og að engar athugasemdir hafi borist úr grenndarkynningu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 8 atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Telmu Árnadóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
7.9 - 2212442 - Urðarhvarf 10. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Baldurs Ólafs Svavarssonar arkitekts dags. 6. desember 2022 fh. lóðarhafa Urðarhvarfs 10, tillaga að breyttu deiliskipulagi. Almennt er vísað í gildandi deiliskipulag Vatnsenda ? Athafnasvæði samþykkt í bæjarstjórn 25. september 2001 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 15. janúar 2002 með seinni breytingu sem birt var í B- deild Stjórnartíðinda 5. nóvember 2021 gerir ráð fyrir breyttum lóðamörkum og stækkar lóð í 5.915 m².
Í tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Urðarhvarf 10 felst aukning á byggingarmagni á lóð úr 3.800 m² í 5.900 m² þar af um 2.200 m² í kjallara. Nýtingarhlutfall eykst úr 0.65 í 1.
Ytri byggingarreitur breytist og færist til vesturs um 3 metra vegna stoðveggjar sem þegar hefur verið byggður á lóðarmörkum Urðarhvarfs 8 og 10. Byggingarreitur kjallara stækkar til suðurs og verður hann að hluta til á tveimur hæðum. Gert verður ráð fyrir 134 stæðum á lóð þar af 34 stæðum í niðurgrafinni bílageymslu. Gert verður ráð fyrir 40 reiðhjólum á lóð og þar af verði helmingur hjóla í lokuðu rými í kjallara eða á lóð. Klæðning og byggingarefni verði umhverfisvottuð. Á fundi skipulagsráðs 19. desember 2022 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 2. mars 2023, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 919. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 410. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 15.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 550. fundar stjórnar SSH frá 03.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 411. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 28.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 552. fundar stjórnar SSH frá 20.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 114. fundar stjórnar svæðisskipulagsnefndar frá 17.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 247. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 10.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 102. fundar Markaðsstofu Kópavogs frá 08.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 103. fundar Markaðsstofu Kópavogs frá 22.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 366. fundar stjórnar Strætó frá 24.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 476. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 24.01.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 477. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.02.2023.
Lagt fram.
27
Fundargerð 11. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes frá 06.03.2023
Fundargerð 11. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes frá 06.03.2023.
Lagt fram.