Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vallakór 12-14, Handknattleiksfélag Kópavogs. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi

Málsnúmer: 2301215

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3115. fundur

Frá lögfræðideild, dags 16.01.2023, lögð fram umsögn um umsókn

Frá lögfræðideild, dags. 16.01.2023, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 06.01.2023, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Handknattleikfélags Kópavogs, kt. 630981-0269, kt. 630981-0269, Vallarkór 12-14, um tímabundið áfengisleyfi og tækifærisleyfi til að mega halda þorrablót/dansleik þann 20. janúar 2023 frá kl. 18:30-02:00, í íþróttahúsinu Kórnum, að Vallakór 12-14, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um og veitir jákvæða umsögn.