Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi um mikilvægi þess að tryggja stöðu fólks með kynhlutlausa skráningu við umfjöllun um íþróttafólk ársins

Málsnúmer: 23012267

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 128. fundur

Lögð fram bókun frá jafnréttis- og mannréttindaráði þar sem íþróttaráð er hvatt til þess að hafa kynhlutlausa skráningu íþróttafólks í huga við veitingu verðlauna.

Lagt fram.

Íþróttaráð tekur ábendingunni fagnandi og mun hefja vinnu við að endurskoða reglur varðandi tilnefningar á íþróttafólki Kópavogsbæjar.

02

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 95. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð hvetur Íþróttaráð til að hafa kynhlutlausa skráningu íþróttafólks í huga við veitingu verðlauna.