Jafnréttis- og mannréttindaráð - 95. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Heiðdís Geirsdóttir - aðalmaður
- Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
- Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hildur María Friðriksdóttir - aðalmaður
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
- María Ellen Steingrímsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllMaría Ellen Steingrímsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Margrét Pála Ólafsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllMargrét Pála Ólafsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Auður Kolbrá Birgisdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Auður Kolbrá Birgisdóttir
Dagskrá fundar
Vinna við gerð jafnréttisáætlunar/stefnu í jafnréttismálum.
Sviðsstjóri velferðarsviðs, Sigrún Þórarinsdóttir mætir á fundinn og situr fyrir svörum ráðsins um stöðu jafnréttis- og mannréttindamála á velferðarsviði.
Jafnréttis- og mannréttindaráð þakkar Sigrúnu fyrir komuna og áhugavert samtal um starf Velferðarsviðs Kópavogsbæjar.
Erindi frá Indriða Inga Stefánssyni varabæjarfulltrúa varðandi kynjahlutfall nefnda og ráða Kópavogsbæjar eftir sveitarstjórnarkosningar 2022.
Jafnréttis- og mannréttindaráð vísar fyrirspurn Pírata um kynjahlutföll í nefndum og ráðum Kópavogsbæjar til bæjarráðs. Óskað er eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun bæjarráðs vegna nefnda þar sem reglur um kynjahlutföll eru ekki uppfylltar.
03
Erindi um mikilvægi þess að tryggja stöðu fólks með kynhlutlausa skráningu við umfjöllun um íþróttafólk ársins
Jafnréttis- og mannréttindaráð hvetur Íþróttaráð til að hafa kynhlutlausa skráningu íþróttafólks í huga við veitingu verðlauna.
04
Erindi um mikilvægi þess að tryggja jafna stöðu allra óháð kyni við umsóknir á vef bæjarins
Jafnréttis- og mannréttindaráð ítrekar mikilvægi þess að starfsauglýsingar á vegum Kópavogsbæjar séu kynhlutlausar og hvetji öll áhugasöm til að sækja um störfin óháð kyni.