Velferðarráð - 115
Málsnúmer: 2302016F
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 139. fundur
Fundargerð í átta liðum.
02
Bæjarstjórn - 1274. fundur
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
03
Bæjarráð - 3120. fundur
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Bókun bæjarráðs:
"Bæjarráð tekur undir svofellda bókun velferðarráðs í máli nr. 1 í fundargerð ráðsins:
Í desember 2022 var á Alþingi samþykkt frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Breytingarnar fólust annars vegar í því að innleiðingartímabil notendastýrðar persónulegrar aðstoðar (NPA) var framlengt til ársloka 2024 og hins vegar í fjölgun samninga á árunum 2023 og 2024.
Velferðarráð Kópavogs ítrekar nauðsyn þess að félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standi við gefnar skuldbindingar um þátttöku í nýjum samningum um notendastýrða persónulega aðstoð. Ráðið hvetur félags- og vinnumarkaðsráðuneytið til að flýta gerð verklagsreglna til að eyða óvissu."