Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Samningsmarkmið Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 23061162

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3147. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 17.10.2023, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa um samningsmarkmið og rammasamninga frá 15. júní 2023.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3134. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 20.06.2023, lagt fram minnisblað um innviðagjaldsdóm Hæstaréttar í máli nr. 3/2022.

Lagt fram og rætt.

03

Bæjarráð - 3133. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 12.06.2023, óskað er eftir heimild bæjarráðs til að vinna drög að samningsmarkmiðum vegna uppbyggingar á þróunarsvæðum.

Bæjarráð frestar erindi bæjarlögmanns.


Tillaga:

„Undirrituð leggur til að úttekt verði gerð á þeim samningsmarkmiðum sem Kópavogsbær hefur unnið eftir frá 2015 og birtast í rammasamningum sem gerðir hafa verið við þróunaraðila/verktaka á þéttingarreitum.

Rammasamningarnir voru byggðir á skýrslu um stefnumarkandi leiðir í húsnæðismálum í Kópavogi sem kom úr árið 2015 og unnin var í þverpólitískri sátt.

1. Hvaða samningsmarkmiðum var náð í hverjum samningi fyrir sig?

2. Hversu mörgum fermetrum var úthlutað í hverjum rammasamningi, þ.e auknar byggingarheimildir í fermetrum?

3. Hvernig rammasamningum var fylgt eftir í skipulagsferli sveitarfélagsins, m.a að teknu tilliti til gæðakerfis?“

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa tillögu Theódóru S. Þorsteinsdóttur til sviðsstjóra stjórnsýslusviðs til umsagnar áður en tillaga bæjarlögmanns verði tekin til afgreiðslu. Jafnframt liggi fyrir svar við samþykkt bæjarstjórnar frá 13. desember um innviðagjaldsdóm Hæstaréttar.