Bæjarráð - 3133. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir apríl 2023.
Lagt fram og kynnt.
Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra leikskóladeildar dags. 12.06.2023, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um biðlista eftir leikskólavist.
Lagt fram.
Frá bæjarlögmanni, dags. 12.06.2023, óskað er eftir heimild bæjarráðs til að vinna drög að samningsmarkmiðum vegna uppbyggingar á þróunarsvæðum.
Bæjarráð frestar erindi bæjarlögmanns.
Tillaga:
„Undirrituð leggur til að úttekt verði gerð á þeim samningsmarkmiðum sem Kópavogsbær hefur unnið eftir frá 2015 og birtast í rammasamningum sem gerðir hafa verið við þróunaraðila/verktaka á þéttingarreitum.
Rammasamningarnir voru byggðir á skýrslu um stefnumarkandi leiðir í húsnæðismálum í Kópavogi sem kom úr árið 2015 og unnin var í þverpólitískri sátt.
1. Hvaða samningsmarkmiðum var náð í hverjum samningi fyrir sig?
2. Hversu mörgum fermetrum var úthlutað í hverjum rammasamningi, þ.e auknar byggingarheimildir í fermetrum?
3. Hvernig rammasamningum var fylgt eftir í skipulagsferli sveitarfélagsins, m.a að teknu tilliti til gæðakerfis?“
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa tillögu Theódóru S. Þorsteinsdóttur til sviðsstjóra stjórnsýslusviðs til umsagnar áður en tillaga bæjarlögmanns verði tekin til afgreiðslu. Jafnframt liggi fyrir svar við samþykkt bæjarstjórnar frá 13. desember um innviðagjaldsdóm Hæstaréttar.
Á fundi bæjarráðs þann 25. maí fór fram umræða um leiksvæði í Kópavogi, aðgerðaráætlun. Málið var sett á dagskrá að beiðni bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur. Bæjarráð samþykkti að vísa aðgerðaráætlun leikvalla til garðyrkjustjóra til endurskoðunar. Nú lagt fram svar garðyrkjustjóra, dags. 12.06.2023.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 12.06.2023, lagðar fram niðurstöður rammasamnings útboðs fyrir innkaup á ræstingarþjónustu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til að ganga til samninga við alla bjóðendur í rammasamningsútboð fyrir innkaup á ræstingarþjónustu.
06
Hlíðasmári 14 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar styrktarfélags krabbameinssjúkra barna um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 494.870,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 494.870,-
07
Lækjarbotnar/skíðaskáli 117015 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Glímufélagsins Ármanns, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.649.741,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr.1.649.741,-
08
Hamraborg 10 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Soroptimistasamband Íslands, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 190.990,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 190.990,-
09
Hamraborg 1-3, Kópavogi. Númer fasteignar: 0103 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar SOS barnaþorps, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 714.118,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 714.118,-
10
Víkurhvarf 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2022, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar RM Heklu um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 3.312.278,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að fjárhæð kr. 3.312.278,-
Frá Markaðsstofu Kópavogs, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir fjárhagsstuðningi við rekstur atvinnu- og nýsköpunarsetursins Skóp. Óskað eftir fjárstuðningi að upphæð 3 m.kr. á síðari hluta ársins 2023 og 5 m.kr. á árinu 2024. Meðfylgjandi í viðhengi eru rekstraráætlanir fyrir tímabilið júlí-desember 2023 og janúar-desember 2024.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum fjárveitingu að fjárhæð 3 m.kr. fyrir árið 2023. Beiðni um fjárveitingu fyrir árið 2024 er vísað til gerðar fjárhagsáætlunar, þar sem miðað verði við að rekstur SKÓP verði án taps og forsendur rekstraráætlunar standist.
Bókun:
"Undirrituð telur að Kópavogsbær ætti að gera kröfu um að aðgengismál séu í lagi í öllu húsnæði sem hýsir starfsemi reksturs sem Kópavogsbær hefur aðkomu að."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bókun:
"Ég tel eðlilegt að framlög Kópavogsbæjar til Markaðsstofu Kópavogs verði að hámarki 3 m. kr. árið 2024 vegna þessa aukaframlags árið 2023."
Andri Steinn Hilmarsson
Frá aðalfundi Kvenfélagasambands Kópavogs 08.05.2023, lögð fram fundargerð aðalfundar ásamt ársreikningi og skýrslu orlofsnefndar.
Lagt fram.
Frá félagasamtökunum Samvera og súpa, dags. 12.06.2023, lögð fram umsókn um styrk að upphæð kr. 50.000,-
Bæjarráð samþykkir erindið.
Frá SSH, dags. 10.06.2023, lögð fram frumgreining til rýni og umsagnar sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs.
15
Ósk bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um umræðu um launakjör bæjarstjóra og kjörinna fulltrúa
Ósk bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um umræðu um launakjör bæjarstjóra og kjörinna fulltrúa.
Umræður og vísað til afgreiðslu næsta fundar bæjarráðs.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
16.2 - 2106027 - Óskað eftir að skipað verði í undirbúningsnefnd vegna uppbyggingar á keppnisvelli við Kórinn
Deildarstjóri íþróttadeildar kynnti vinnu undirbúningsnefndar varðandi uppbyggingu keppnisvallar við Kórinn, sem nú hefur skilað af sér greinagerð um málið.
Lagt fram og vísað til bæjarráðs.
Erindinu frestað til næsta fundar.
16.4 - 2306195 - Eindi v sameiginlegs frístundaksturs Breiðabliks, Gerplu, HK og Kópavogsbæjar
Lagt fram erindi frá Breiðablik, HK og Gerplu, dagsett 31. maí 2023, þar sem óskað er eftir að Kópavogsbær taki að sér rekstur frístundaraksturs í Kópavogi.
Deildarstjóri íþróttadeildar gerði grein fyrir fundi með íþróttafélögunum vegna málsins og því sem þar kom fram. Íþróttaráð vísar málinu til bæjarráðs.
Erindinu frestað til næsta fundar.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Bergljót Kristinsdóttir vék af fundi kl. 10:43.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 249. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 05.05.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 250. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19.05.2023.
Lagt fram.
Fundargerð 559. fundar stjórnar SSH frá 05.06.2023.
Lagt fram.
24
Fundargerð 118. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 07.06.2023
Fundargerð 118. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 07.06.2023.
Lagt fram.