Ósk um fjárhagsstuðning við rekstur atvinnu- og nýsköpunarsetursins Skóp
Málsnúmer: 2306809
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3133. fundur
Frá Markaðsstofu Kópavogs, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir fjárhagsstuðningi við rekstur atvinnu- og nýsköpunarsetursins Skóp. Óskað eftir fjárstuðningi að upphæð 3 m.kr. á síðari hluta ársins 2023 og 5 m.kr. á árinu 2024. Meðfylgjandi í viðhengi eru rekstraráætlanir fyrir tímabilið júlí-desember 2023 og janúar-desember 2024.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum fjárveitingu að fjárhæð 3 m.kr. fyrir árið 2023. Beiðni um fjárveitingu fyrir árið 2024 er vísað til gerðar fjárhagsáætlunar, þar sem miðað verði við að rekstur SKÓP verði án taps og forsendur rekstraráætlunar standist.
Bókun:
"Undirrituð telur að Kópavogsbær ætti að gera kröfu um að aðgengismál séu í lagi í öllu húsnæði sem hýsir starfsemi reksturs sem Kópavogsbær hefur aðkomu að."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bókun:
"Ég tel eðlilegt að framlög Kópavogsbæjar til Markaðsstofu Kópavogs verði að hámarki 3 m. kr. árið 2024 vegna þessa aukaframlags árið 2023."
Andri Steinn Hilmarsson