Ósk um samþykki Kópavogsbæjar á breytingum á samþykktum Markaðsstofunnar
Málsnúmer: 2308849
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1283. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 17. ágúst sl. var lagt fram erindi frá Markaðsstofu Kópavogs þar sem óskað var eftir samþykki Kópavogsbæjar á breytingum á samþykktum Markaðsstofu Kópavogs. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar bæjarlögmanns. Nú lögð fram umsögn lögfræðideildar, dags. 22.08.2023.
Bæjarstjórn staðfestir framlagðar breytingar á samþykktum Markaðsstofu Kópavogs með 7 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
02
Bæjarráð - 3140. fundur
Á fundi bæjarráðs þann 17. ágúst sl. var lagt fram erindi frá Markaðsstofu Kópavogs þar sem óskað var eftir samþykki Kópavogsbæjar á breytingum á samþykktum Markaðsstofu Kópavogs. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar bæjarlögmanns. Nú lögð fram umsögn lögfræðideildar, dags. 22.08.2023.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Bæjarráð - 3138. fundur
Frá Markaðsstofu Kópavogs, dags. 12. júlí 2023, lagt fram erindi þar sen óskað er eftir samþykki Kópavogsbæjar á breytingum á samþykktum Markaðsstofu Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.