Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hjallabrekka 32. Breytt aðkoma að bílastæði.

Málsnúmer: 2309027

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 150. fundur

Lagt fram erindi lóðarhafa lóðarinnar nr. 32 við Hjallabrekku dags. 20. september 2023 þar sem óskað er eftir að færa annað núverandi bílastæði og taka niður kanstein fyrir framan nýbyggðan bílskúr. Samkvæmt mæliblaði dags. 1. nóvember 2017 er heimild fyrir tveimur bílastæðum á lóðinni fyrir utan norð-vestur horn íbúðarhúss. Samkvæmt afstöðumynd á samþykktum aðaluppdráttum er gert ráð fyrir tveimur bílastæðum fyrir utan bílskúr.

Skipulagsráð samþykkir erindið, enda mun lóðarhafi bera allan kostnað af framkvæmdinni.