Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aðalskipulag Hafnarfjarðar. Tillaga að breytingu. Færsla á Hamraneslínu 1 og 2.

Málsnúmer: 23091712

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 149. fundur

Lagt fram erindi Lilju Grétarsdóttur, skipulagsfulltrúa Hafnarfjarðar, dags. 13. september 2023 þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um tillögu að breyttu aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Í breytingunni felst færsla á Hamraneslínu 1 og 2.

Kynningaruppdráttur ásamt greinargerð, ódags.

Lagt fram. Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við framlagt erindi.