Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn jafnréttis- og mannréttindaráðs til Umhverfissviðs
Málsnúmer: 23092178
Ferill máls
01
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 102. fundur
Svar frá Umhverfissviði kynnt.
Jafnréttis- og mannréttindaráð þakkar umhverfissviði fyrir upplýsingarnar og hvetur bæinn til að kynna betur þessi flottu verkefni fyrir bæjarbúum.
02
Jafnréttis- og mannréttindaráð - 101. fundur
Í íbúakosningu Kópavogsbæjar árið 2022 var kosið að setja upp rólu með aðgengi fyrir hreyfihamlaða í Linda- og Salahverfi og Smárahverfi.
Bókun:
Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um tillögu um leiktæki fyrir hreyfihamlaða sem samþykkt var í íbúakosningu árið 2022. Hvernig staðan er á því verkefni, eru leikvellir með aðgengi í sveitarfélaginu og hvort önnur sambærileg verkefni séu í farvatninu sem tryggi hreyfihömluðum aðgengi að leiksvæðum?