Jafnréttis- og mannréttindaráð - 101. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Heiðdís Geirsdóttir - formaður
- Ragnar Guðmundsson - aðalmaður
- Signý Sigurrós Skúladóttir - aðalmaður
- Hildur María Friðriksdóttir - aðalmaður
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalmaður
- María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Margrét Pála Ólafsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllMargrét Pála Ólafsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Auður Kolbrá Birgisdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Auður Kolbrá Birgisdóttir
Dagskrá fundar
Farið yfir auglýsingu vegna tilnefninga til viðurkenningar jafnréttis-og mannréttindaráðs.
Lagt fram.
Stefnuvinna.
Erindi frá Indriða Inga Stefánssyni, ráðsmanni Pírata.
"Mig langar að leggja til að við tökum til umfjöllunar aðgengi íbúa að gögnum. Bæði það hversu erfitt er að finna efni með leitarvélinn hjá bænum og það að engin gögn eru að finna í opnu bókhaldi bæjarins."
Jafnréttis og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um stöðu heimasíðu bæjarins, hvort til standi að fara í breytingar eða uppfærslur á vefnum til auka aðgengi bæjarbúa að upplýsingum og tryggja réttileika þeirra?
Í íbúakosningu Kópavogsbæjar árið 2022 var kosið að setja upp rólu með aðgengi fyrir hreyfihamlaða í Linda- og Salahverfi og Smárahverfi.
Bókun:
Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um tillögu um leiktæki fyrir hreyfihamlaða sem samþykkt var í íbúakosningu árið 2022. Hvernig staðan er á því verkefni, eru leikvellir með aðgengi í sveitarfélaginu og hvort önnur sambærileg verkefni séu í farvatninu sem tryggi hreyfihömluðum aðgengi að leiksvæðum?
Kosning nýs varaformanns þar sem Sigrún Bjarnadóttir varaformaður er hætt.
Signý Sigurrós Skúladóttir einróma kosin varaformaður.