Breyting á útsvarsprósentu vegna fjármögnunar á þjónustu við fatlað fólk
Málsnúmer: 2312974
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1290. fundur
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, lögð fram eftirfarandi tillaga: Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12.2023, samþykkir sveitarstjórn Kópavogsbæjar að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,93%.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,93%.
02
Bæjarráð - 3156. fundur

Lagt fram.