Til baka í fundargerðir
Tillaga formanns velferðarráðs um að fjallað verði um fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis í velferðarráði
Málsnúmer: 24011575
Ferill máls
01
Velferðarráð - 132. fundur
Skrifstofustjóri á skrifstofu ráðgjafar kynnir skýrslu starfshóps á vegum félags- og vinnumarkaðsráðherra um fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis sem kom út í mars 2023 og segir frá verkefninu "Saman gegn ofbeldi"í Kópavogi.
Velferðarráð þakkar fyrir góða kynningu.
02
Velferðarráð - 129. fundur
Björg Baldursdóttir formaður velferðarráðs leggur fram tillögu um að velferðarráð fjalli um fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis á fundi ráðsins. Fyrir liggur skýrsla frá mars 2023 sem unnin var af starfshópi á vegum félags- og vinnumarkaðsráðherra. Von er á annarri skýrslu um sama efni á næstu vikum.
Velferðarráð vísar málinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til úrvinnslu.