Velferðarráð - 129. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Björg Baldursdóttir - formaður
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Hólmfríður Hilmarsdóttir - aðalmaður
- Matthías Björnsson - aðalmaður
- Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
- Erlendur H. Geirdal - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Sigrún Þórarinsdóttir - Sviðsstjóri velferðarsviðs
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Jóhanna Lilja Ólafsdóttir
Erlendur H. Geirdal, mætti á fundinn kl. 16:45.
Dagskrá fundar
Stefnustjóri kynnir tímalínu vegna aðgerðaáætlunar og ferli við endurmat málefnastefna. Sviðsstjóri og verkefnastjóri velferðarsviðs kynna framgang aðgerða í aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2023.
Lagt fram.
Lagðar fram til afgreiðslu breytingar á reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð ásamt minnisblaði skrifstofustjóra dags. 10.1.2024.
Velferðarráð samþykkir framlagðar tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.
Lögð fram til afgreiðslu drög að nýjum reglum Kópavogsbæjar um stuðnings- og stoðþjónustu ásamt minnisblaði verkefnastjóra dags. 17.1.2024 og tilgreindum fylgiskjölum.
Velferðarráð samþykkir drög að reglum um stuðnings- og stoðþjónustu og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.
- Minnisblað verkefnastjóra - 17.01.2024
- Fylgiskjal 1 - Drög að reglum um stuðningsþjónustu.docx
- Fylgiskjal 2 - Drög að reglum um stoðþjónustu fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.docx
- Fylgiskjal 3 - Minnisblað verkefnastjóra 22.11.23.
- Fylgiskjal 4 - Reglur um félagslega heimaþjónustu í Kópavogsbæ
- Fylgiskjal 5 - Reglur um stuðningsþjónustu við fatlað fólk
Sviðsstjóri kynnir starfið á velferðarsviði á milli funda velferðarráðs.
Áfrýjun dags. 12.1.2024, ásamt þar tilgreindum fylgiskjölum, lögð fram til afgreiðslu.
Fært í trúnaðarbók.
06
Tillaga formanns velferðarráðs um að fjallað verði um fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis
Björg Baldursdóttir formaður velferðarráðs leggur fram tillögu um að velferðarráð fjalli um fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis á fundi ráðsins. Fyrir liggur skýrsla frá mars 2023 sem unnin var af starfshópi á vegum félags- og vinnumarkaðsráðherra. Von er á annarri skýrslu um sama efni á næstu vikum.
Velferðarráð vísar málinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til úrvinnslu.
Lögð fram til kynningar ný framkvæmdaráætlun í barnavernd sem samþykkt var á Alþingi 11.12.2024 ásamt minnisblaði verkefnastjória dags. 19.1.2024.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.