Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Lántökur Kópavogsbæjar 2024 - Framhaldsmál

Málsnúmer: 2402387

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1306. fundur

Frá fjármálasviði, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar fyrir lántöku allt að 1,5 milljarða til að fjármagna framkvæmdir og að einhverju leiti til að endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á lokamánuðum 2024 og fyrri hluta ársins 2025.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og Bergljótar Kristinsdóttur að taka skammtímalán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.500.000.000 frá og með 15. október 2024 með gjalddaga 14. Janúar 2025 í samræmi við skilmála skammtímaláns sem liggur fyrir fundinum og bæjarstjórn hefur kynnt sér og veitir heimild til að framlengja því láni um þrjá mánuði til viðbótar teljist þörf á því. Lánið er tekið á grundvelli langtímalánsumsóknar hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Vextir lánsins væru nú 11,063% en þeir taka mið af 3ja mánaða REIBOR vöxtum með 1,5% álagi þegar lánið er tekið.

Lánið er tekið til að fjármagna verkefni sveitarfélagsins sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu sbr. 3.gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Ásdísi Kristjánsdóttur kt. 280978-3459 veitt fullt og ótakmarkað umboð til fyrir hönd Kópavogsbæjar að undirrita skammtímalánasamning við Lánasjóð Sveitarfélaga.

02

Bæjarráð - 3189. fundur

Frá fjármálasviði, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar fyrir lántöku allt að 1,5 milljarða til að fjármagna framkvæmdir og að einhverju leiti til að endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á lokamánuðum 2024 og fyrri hluta ársins 2025.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur fyrir sitt leyti að veita umbeðna heimild fyrir lántöku og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.


Bókun:

"Undirritaðar óska eftir að lagðar verði fyrir bæjarráð upplýsingar um lántökur bæjarins (skammtíma og langtíma) frá upphafi kjörtímabilsins til dagsins í dag ásamt upplýsingum um uppgreiðslur lána, afborganir, vaxtakjör og upphæðir greiddra vaxta- og verðtryggingar. Jafnfram er óskað eftir upplýsingum um áætlaðar lántökur næsta árs."

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

03

Bæjarstjórn - 1299. fundur

Frá fjármálasviði, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar til skuldabréfaútboðs KOP24-1.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur að veita umbeðna heimild til skuldabréfaútboðs KOP24-1.

04

Bæjarstjórn - 1299. fundur

Frá fjármálasviði, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar til skuldabréfaútboðs KOP24-1.

05

Bæjarráð - 3172. fundur

Frá fjármálasviði, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar til skuldabréfaútboðs KOP24-1.

Fundarhlé hófst kl. 8:46, fundi fram haldið kl. 9:54.

Bæjarráð samþykkir með þrem atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun:

"Vanda þarf undirbúning og umræðu um ný langtímalán og nauðsyn þeirra, sérstaklega á tímum þegar vextir og verðbólga eru í hæstu hæðum. Það á bæði við um form og fjárhæð lána, lánakjörin og hvernig á að ráðstafa láninu. Lántaka upp á 4,3 milljarða króna með sölu skuldabréfa til 31 árs á markaðskjörum felur í sér að Kópavogsbúar framtíðar eigi að axla ábyrgð á óábyrgum rekstri núverandi meirihluta.

Kópavogsbær hefur á þessu ári þegar hækkað yfirdráttarheimild sína um samtals einn milljarð króna. Veltufjárhlutfall A-hluta bæjarsjóðs er það lágt að það er í raun orðið varhugavert. Í ársreikningi fyrir árið 2023 er þetta hlutfall 0,47, sem þýðir að skammtímaskuldir eru meira en helmingi hærri en veltufjármunir. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2024 er hlutfallið komið niður í 0,38 sem felur í sér að skammtímaskuldir eru að verða þrefalt hærri en veltufjármunir bæjarsjóðs.

Undangengin ár hefur rekstur bæjarsjóðs ekki skilað afgangi til framkvæmda og greiðslu lána. Hallarekstur er brúaður með því að slá lán á ábyrgð komandi kynslóða. Fyrirhugað skuldabréfaútboð er ekki með neinni hámarksstærð og sú skýring gefin að Kópavogsbær geti þannig aflað sér lánsfjármagns með skömmum fyrirvara. Það staðfestir óábyrga fjármálastjórn, sem undirritaðar geta ekki tekið þátt í."

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir


Bókun:

"1. Fjárhagsstaða Kópavogsbæjar er sterk, skuldahlutfall langt undir skuldaviðmiðum og skuldir á íbúa lægri en í sambærilegum sveitarfélögum. Veltufé frá rekstri er í kringum fimm milljarða króna en það er svigrúmið sem reksturinn gefur til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána. Vel var vandað til verka við undirbúning skuldabréfaútboðsins og er mikilvægt að ráðast í skuldabréfaútboðið m.t.t fjárstýringar. Nettó skuldir Kópavogsbæjar aukast óverulega jafnvel þó heimildin yrði nýtt að fullu og er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.

2. Minnihlutinn sakar meirihlutann hér um „óábyrgan rekstur“. Sami minnihluti hefur staðið gegn öllum hagræðingaraðgerðum sem meirihlutinn hefur samþykkt á kjörtímabilinu og nýtt hvert tækifæri til að kalla eftir auknum útgjöldum í hina ýmsu málaflokka sem fjármagna á með skattahækkunum á almenning í Kópavogi. Meirihlutinn gefur því ekki mikið fyrir þessa gagnrýni minnihlutans."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson


Bókun:

"Kópavogsbær var rekinn með 750 milljóna króna tapi á síðasta ári og tveggja milljarða króna tapi árið áður. Minnihlutinn skorast ekki undan því að taka þátt í hagræðingu í rekstri bæjarins. Frumforsendan er þó sú að hagræðingartillögur séu útfærðar og líklegar til að skila árangri. Því miður er reynslan sú að tillögur meirihlutans í því efni t.d. Í menningarmálum hafa leitt til útgjaldaauka en ekki sparnaðar."

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir


Bókun:

"Rekstur Kópavogsbæjar er sterkur þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi. Veltufé frá rekstri er í kringum fimm milljarða og geta bæjarins til að standa við skuldbindingar er góð. Fullyrðingar minnihlutans um að hagræðingaraðgerðir hafi ekki skilað árangri standast enga skoðun."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

06

Bæjarstjórn - 1296. fundur

Frá fjármálasviði, lögð fram beiðni um skuldabréfaútboð samkvæmt fjárhagsáætlun 2024.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Erlendar Geirdals, Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, Theodóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar að veita fjármálasviði umbeðna heimild til að fara í skuldabréfaútboð fyrir allt aö 4.300 m.kr. á árinu

2024, þar sem Arion banki myndi leiõa útboðið.

Bókun: "Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að bæjarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum. Útgáfa markaðsskuldabréfa til 30 ára að fjárhæð 4,3 mkr. rúmast ekki innan heimilda fjárhagsáætlunar 2024 án þess að samþykktur sé viðauki. Aðstæður í þjóðfélaginu gera tilkall til þess að opinberir aðilar dragi úr umsvifum og þenslu, sem er forsenda þess að verðbólga og vextir lækki. Það er óábyrg fjármálastjórnun að draga ekki úr framkvæmdum fremur en að hækka lán, sem hafa í för með sér milljarðaútgjöld til greiðslu vaxta og verðbóta á ári hverju."

Bergljót Kristinsdóttir Helga Jónsdóttir Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Helga Jónsdóttir

Bókun: "Fjárhagsstaða Kópavogsbæjar er sterk, skuldahlutfall langt undir skuldaviðmiðum og skuldir á íbúa lægri en í sambærilegum sveitarfélögum. Tillaga fjármálasviðs er skynsamleg út frá fjárstýringu og mikilvægur þáttur í að tryggja stöðuga og áframhaldandi uppbyggingu nauðsynlegra innviða eins og íþróttamannvirkja, leik- og grunnskóla. Hún eykur nettó skuldir Kópavogsbæjar óverulega og er í fullu samræmi við fjárhagsáætlun 2024."

Ásdís Kristjánsdóttir Orri V. Hlöðversson Elísabet B. Sveinsdóttir Andri S. Hilmarsson

Bókun: "Á fundi bæjarráðs 8. febrúar sl. var samþykkt heimild til að hækka lánalínu Kópavogsbæjar um 1 milljarð króna. Tillagan sem nú liggur fyrir er um 4,3 milljarða króna til viðbótar. Í fjárhagsáætlun fyrir 2024 er heildarheimildin 4,3 milljarðar króna. Því er óheimilt að samþykkja tillöguna, sem hér liggur fyrir án viðauka."

Bergljót Kristinsdóttir Helga Jónsdóttir Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Helga Jónsdóttir

Bókun: "Afborganir ársins 2024 eru rúmlega 3.900 milljónir króna og nettó skuldaaukning því 375 milljónir króna miðað við fullnýtta heimild. Í fjárhagsáætlun ársins er gert ráð fyrir að lántökur verði 4,3 milljarðar króna í árslok 2024. Umbeðin heimild til lántöku er því innan marka, jafnvel þó hún verði nýtt að fullu í fyrsta útboði. Mikilvægt er að hafa í huga að nettó skuldaaukning er óveruleg því samhliða er verið að greiða niður önnur lán þmt skammtímalán sem var tekið í upphafi árs. Meirihlutinn vill ítreka mikilvægi þess að horfa til skuldahlutfalls og sterkrar fjárhagsstöðu Kópavogsbæjar."

Ásdís Kristjánsdóttir Orri V. Hlöðversson Elísabet B. Sveinsdóttir Andri S. Hilmarsson

Bókun: "Undirritaðar ítreka að heimildin sem nú er beðið um felur í sér 1 milljarð króna umfram það sem fjárhagsáætlun 2024 kveður á um."

Bergljót Kristinsdóttir Helga Jónsdóttir Sigurbjörg Erla Egilsdóttir Helga Jónsdóttir

07

Bæjarstjórn - 1296. fundur

Frá fjármálasviði, lögð fram beiðni um skuldabréfaútboð samkvæmt fjárhagsáætlun 2024.

08

Bæjarráð - 3168. fundur

Frá fjármálasviði, lögð fram beiðni um skuldabréfaútboð samkvæmt fjárhagsáætlun 2024.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum, gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundarhlé hófst kl. 8:47, fundi fram haldið kl. 9:59

Bókun:

"Bæjarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að bæjarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum. Útgáfa markaðsskuldabréfa til 30 ára að fjárhæð 4,3 mkr. rúmast ekki innan heimilda fjárhagsáætlunar 2024 án þess að samþykktur sé viðauki. Aðstæður í þjóðfélaginu gera tilkall til þess að opinberir aðilar dragi úr umsvifum og þenslu, sem er forsenda þess að verðbólga og vextir lækki. Það er óábyrg fjármálastjórnun að draga ekki úr framkvæmdum fremur en að hækka lán, sem hafa í för með sér milljarðaútgjöld til greiðslu vaxta og verðbóta á ári hverju."

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Bókun:

"Fjárhagsstaða Kópavogsbæjar er sterk, skuldahlutfall langt undir skuldaviðmiðum og skuldir á íbúa lægri en í sambærilegum sveitarfélögum. Tillaga fjármálasviðs er skynsamleg út frá fjárstýringu og mikilvægur þáttur í að tryggja stöðuga og áframhaldandi uppbyggingu nauðsynlegra innviða eins og íþróttamannvirkja, leik- og grunnskóla. Hún eykur nettó skuldir Kópavogsbæjar óverulega og er í fullu samræmi við fjárhagsáætlun 2024."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Andri S. Hilmarsson

Bókun:

"Á fundi bæjarráðs 8. febrúar sl. var samþykkt heimild til að hækka lánalínu Kópavogsbæjar um 1 milljarð króna. Tillagan sem nú liggur fyrir er um 4,3 milljarða króna til viðbótar. Í fjárhagsáætlun fyrir 2024 er heildarheimildin 4,3 milljarðar króna. Því er óheimilt að samþykkja tillöguna, sem hér liggur fyrir án viðauka."

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Bókun:

"Afborganir ársins 2024 eru rúmlega 3.900 milljónir króna og nettó skuldaaukning því 375 milljónir króna miðað við fullnýtta heimild.

Í fjárhagsáætlun ársins er gert ráð fyrir að lántökur verði 4,3 milljarðar króna í árslok 2024. Umbeðin heimild til lántöku er því innan marka, jafnvel þó hún verði nýtt að fullu í fyrsta útboði. Mikilvægt er að hafa í huga að nettó skuldaaukning er óveruleg því samhliða er verið að greiða niður önnur lán þmt skammtímalán sem var tekið í upphafi árs. Meirihlutinn vill ítreka mikilvægi þess að horfa til skuldahlutfalls og sterkrar fjárhagsstöðu Kópavogsbæjar."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Andri S. Hilmarsson

Bókun:

"Undirritaðar ítreka að heimildin sem nú er beðið um felur í sér 1 milljarð króna umfram það sem fjárhagsáætlun 2024 kveður á um."

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

09

Bæjarstjórn - 1293. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 06.02.2023, lögð fram beiðni um heimild bæjarráðs til að hækka lánalínu bæjarins um allt að 1,0 milljarð til að fjármagna framkvæmdir og að einhverju leiti endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á fyrri hluta ársins 2024.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur að taka skammtímalán að fjárhæð

1.000 m.kr. í formi lánssamnings hjá Íslandsbanka, í samræmi við tilboð bankans, dags. 7. febrúar 2024. Gildistími/lánstími verði allt til loka júlí 2024.

Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að veita Ingólfi Arnarsyni kt. 050656-3149 og Ásdísi Kristjánsdóttur kt. 280978-3459 umboð til þess að ganga frá og undirrita nýjan lánssamning þess efnis.

10

Bæjarstjórn - 1293. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 06.02.2023, lögð fram beiðni um heimild bæjarráðs til að hækka lánalínu bæjarins um allt að 1,0 milljarð til að fjármagna framkvæmdir og að einhverju leiti endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á fyrri hluta ársins 2024.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og Bergljótar Kristinsdóttur að taka skammtímalán að fjárhæð 1.000 m.kr. í formi lánssamnings hjá Íslandsbanka, í samræmi við tilboð bankans, dags. 7. febrúar 2024. Gildistími/lánstími verði allt til loka júlí 2024.

Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að veita Ingólfi Arnarsyni kt. 050656-3149 og Ásdísi Kristjánsdóttur kt. 280978-3459 umboð til þess að ganga frá og undirrita nýjan lánssamning þess efnis.

11

Bæjarstjórn - 1293. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 06.02.2023, lögð fram beiðni um heimild bæjarráðs til að hækka lánalínu bæjarins um allt að 1,0 milljarð til að fjármagna framkvæmdir og að einhverju leiti endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á fyrri hluta ársins 2024.

Bæjarstjórn samþykkir með xxx atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur að veita heimild til að hækka lánalínu bæjarins um allt að 1,0 milljarð til að fjármagna framkvæmdir og að einhverju leiti endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á fyrri hluta ársins 2024.

12

Bæjarráð - 3162. fundur

Frá deildarstjóra hagdeildar, dags. 06.02.2023, lögð fram beiðni um heimild bæjarráðs til að hækka lánalínu bæjarins um allt að 1,0 milljarð til að fjármagna framkvæmdir og að einhverju leiti endurfjármagna framkvæmdalán bæjarins á fyrri hluta ársins 2024.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Jafnframt er óskað eftir að fjármögnunaráætlun ársins verði lögð fram í bæjarstjórn.