Styrkbeiðni varðandi norræna menningarhátíð heyrnarlausra árið 2026 á Íslandi
Málsnúmer: 24031673
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 162. fundur
Frá Félagi Heyrnarlausra, dags. 11.03.2024, lögð fram beiðni til bæjarráðs þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300-500 þúsund til að halda Norrænt mót fyrir döff eldri borgara 2025 og Norrænt menningarmót heyrnarlausra 2026.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu lista- og menningarráðs.
Ráðið hafnar umsókninni með fimm atkvæðum og bendir umsækjanda á að sækja um með formlegum hætti þegar úthlutun úr sjóðnum verður auglýst næsta haust.
02
Bæjarráð - 3167. fundur
Frá Félagi Heyrnarlausra, dags. 11.03.2024, lögð fram beiðni til bæjarráðs þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300 -500 þúsund til að halda Norrænt mót fyrir döff eldri borgara 2025 og Norrænt menningarmót heyrnarlausra 2026.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu lista- og menningarráðs.