Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Starfshópur um málefni Salarins

Málsnúmer: 24041111

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3185. fundur

Frá bæjarstjóra, lögð fram skýrsla starfshóps um málefni Salarins.

Kynning.

Bæjarráð vísar skýrslunni til kynningar lista- og menningarráðs og forstöðumanns menningarmála til úrvinnslu.

Bókun:

"Salurinn er ein af perlum bæjarins sem glæðir tónlistarmenningu Kópavogs. Með þessari úttekt er komin sterk sýn á málefni Salarins. Starfshópurinn var skipaður blöndu af fólki með mikla reynslu úr tónlistarheiminum og rekstri. Skýrslan er góður grunnur fyrir áframhaldandi stefnumótun um starfsemi Salarins með það að marki að auðga tónlistarlíf Kópavogs með fjölbreyttu tónleikahaldi og viðburðum.“

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Hanna C. Jóhannsdóttir


Bókun:

"Þessi úttekt staðfestir sérstöðu Salarins sem tónlistarhúss og hvernig hann glæðir tónlistarmenningu í Kópavogi og styrkir tónlistarvitund yngri sem eldri. Áhersla er á samstarf við Tónlistarskóla Kópavogs og aðgang skólabarna og hreyfihamlaðra að Salnum. Skýrslan er góður grunnur til að Salurinn haldi áfram að auðga tónlistarlíf í Kópavogi og nýti jafnframt betur góða aðstöðu til funda- og ráðstefnuhalds og annarra viðburða. Þeim sem skýrsluna unnu eru þökkuð góð störf."

Helga Jónsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

02

Lista- og menningarráð - 166. fundur

Umræður og ályktun um skýrslu starfshóps um Salinnn.

Drög að skýrslu lögð fram og rædd.

03

Lista- og menningarráð - 165. fundur

Starfshópur um Salinn kynnir skýrslu um úttekt á rekstri Salarins.

Gestir fundarins eru Védís Hervör Árnadóttir, Davíð Þór Jónsson og Halldór Friðrik Þorsteinsson sem kynna drög sín að skýrslu um rekstur Salarins. Gestir mæta kl. 8:15 og yfirgefa fundinn kl. 9:45. Lista- og menningarráð óskar eftir að fá frest til 28. ágúst til að koma með athugasemdir við skýrslunni. Fundurinn verður haldinn kl. 16:15.

Bókun frá Árna Pétri Árnasyni áheyrnarfulltrúa Pírata:

Í bæjarmálasamþykkt Kópavogs og sveitarstjórnarlögum er tekið fram að fundarboði skuli fylgja bæði dagskrá fundarins sem og þau gögn sem eru nauðsynleg til að fulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind. Þar sem gögn málsins fengust ekki afhent fyrir fundinn hafa fulltrúar ráðsins ekki getað kynnt sér málið nægilega vel til þess að taka þátt í upplýstri umræðu og sinna ráðgjafarhlutverki sínu til bæjarráðs.

04

Bæjarstjórn - 1299. fundur

Lagt fram til kynningar erindisbréf starfshóps um málefni Salarins.

Lagt fram.

Tillaga:

"Undirrituð leggja til að erindisbréf bæjarstjóra fyrir starfshóp um málefni Salarins verði afturkallað. Lista- og menningarráði verði falið að vera bæjarráði til ráðgjafar um vinnslu erindisbréfs og skipan í starfshóp í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar frá 23. apríl 2023.

Greinargerð:

Ljóst er að bæjarstjóri hafði ekki umboð til þess að semja, undirrita og stimpla erindisbréf, ásamt því að ráða vali á fulltrúum í starfshóp sem gera á tillögur til hennar sjálfrar.

Bæjarstjórn Kópavogs hefur með erindisbréfi falið Lista- og menningarráði Kópavogs að fara með málefni Salarins, ásamt því að sinna stefnumörkun í menningarmálum og vera ráðgefandi til bæjarráðs um þau mál."

Bergljót Kristinsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Kolbeinn Reginsson

Helga Jónsdóttir


Bæjarstjórn hafnar tillögunni með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Bergljótar Kristinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Kolbeins Reginssonar og Helgu Jónsdóttur.


Bókun:

"Bæjarstjóri hefur án alls samráðs skipað fjárfesti og starfsmann Samtaka atvinnulífsins í starfshóp um málefni Salarins. Tónlistarskóli Kópavogs á engan fulltrúa í hópnum þrátt fyrir að eiga tónlistarhúsið með Kópavogsbæ, og þrátt fyrir ítrekaðar óskir lista- og menningarráðs þar um.

Lista- og menningarráði Kópavogs er samkvæmt erindisbréfi falið að fara með málefni Salarins, ásamt því að sinna stefnumörkun í menningarmálum og vera ráðgefandi til bæjarráðs um þau mál. Bæjarstjóra hefur hvorki verið falið umboð til þess að samþykkja erindisbréf né skipa í starfshópinn. Á bæjarstjórnarfundi þann 25. apríl 2023 var eftirfarandi tillaga samþykkt:

“Lagt er til að stofnaður verði starfshópur sem komi með tillögur til bæjarstjóra um hvernig unnt sé að fjölga viðburðum og komu gesta. Þá verði meðal verkefna starfshópsins að kortleggja kosti þess og galla við að útvista rekstri Salarins.?

Óskiljanlegt er hvernig bæjarstjóri gat túlkað ofangreinda tillögu þannig að hún ein semji, undirriti og stimpli erindisbréf, ásamt því að ráða vali á fulltrúum í starfshóp sem gera á tillögur til hennar. Ákvörðun hennar er harðlega mótmælt.

Bergljót Kristinsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Kolbeinn Reginsson


Bókun:

"Í framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar á stofnun starfshóps sem koma á með tillögur til bæjarstjóra um hvernig unnt sé að fjölga viðburðum og komu gesta í Salinn skipaði bæjarstjóri í starfshópinn. Við skipanina studdist bæjarstjóri við 3. mgr. 55. gr. sveitarstjórnarlaga sem fela honum að þær ákvarðanir sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið það öðrum. Við val á hópnum var horft til reynslu og fagþekkingar á sviði lista- og menningarmála."

Orri V. Hlöðversson

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Sigrún H. Jónsdóttir


Bókun:

"Samkvæmt bæjarmálasamþykkt og sveitarstjórnarlögum fer bæjarstjóri með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins ásamt bæjarráði. Bæjarráð fer með eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins. Málefni Salarins og hugmyndir bæjarstjóra um breytingar á rekstrinum hafa verið ákaflega umdeildar bæði innan lista- og menningarráðs, bæjarstjórnar og hjá tónlistarfólki og samtökum þeirra. Það er fjarstæðukennt að bæjarstjóri hafi haft heimild til þeirrar túlkunar að hún eigi að semja erindisbréf, tilnefna og skipa í starfshóp og leggja niðurstöðu sína fullbúna fyrir lýðræðislega kjörna fulltrúa. Engum öðrum var gefið færi á að tilnefna fulltrúa í starfshópinn. Málatilbúnaðurinn er enn langsóttari í ljósi þess að allt lista- og menningarráð hefur ítrekað bókað um að í starfshópnum skuli eiga sæti fulltrúar meiri- og minnihluta í lista- og menningarráði sem fer með málefni Salarins fyrir hönd Kópavogsbæjar. Undirritaðar krefjast endurskoðunar á þessum embættisfærslum bæjarstjóra.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Kolbeinn Reginsson

05

Lista- og menningarráð - 163. fundur

Lagt fram til kynningar erindisbréf starfshóps um málefni Salarins.

Lagt fram.

Bókun:

"Fulltrúar Vina Kópavogs, Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata mótmæla því harðlega að enn og aftur sé lista- og menningarráð sniðgengið við ákvarðanatöku um málefni sem heyra undir ráðið en fyrir liggja þrjár bókanir um mikilvægi þess að í starfshópinn séu skipaðir fulltrúar úr meiri- og minnihluta Lista- og menningarráðs sem og fulltrúi frá Tónlistarskóla Kópavogs frá 23. maí 2023, 5. september 2023 og 22. mars s.l. Auk þess var mikilvægi þessa ítrekað við bæjarstjóra á fundi ráðsins 6. mars s.l. Framferði bæjarstjóra ber enn og aftur vitni um takmaðan skilning og áhuga á lýðræði. Augljóst er að um málamyndagjörning er að ræða vegna knapps tímafrests og fárra funda.

Ísabella Leifsdóttir

Elvar Bjarki Hjaltason

Árni Pétur Árnason

Margrét Tryggvadóttir"

Bókun fulltrúa meirihlutans:

"Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 25.4.2023 að bæjarstjóri myndi skipa starfshóp Salarins. Eftir að bæjarstjóri hafði leitaði álits hjá formanni FÍH varð niðurstaða hennar þessi. Fulltrúar meirihlutans fagnar stofnun starfshóps um málefni Salarins og vonar að tillögur sem koma frá starfshópnum geti nýst vel í áframhaldandi vinnu lista- og menningarráðs.

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Jónas Skúlason

Kristín Hermannsdóttir"