Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Roðasalir

Málsnúmer: 24051201

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1307. fundur

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu tillaga um að Kópavogsbær endurnýi ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum í lok mars 2025 heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar flytjast í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi.

Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur tillögu um að endurnýja ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum, heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar heimilisins flytjist í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi.

02

Bæjarráð - 3191. fundur

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu tillaga um að Kópavogsbær endurnýi ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum í lok mars 2025 heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar flytjast í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi.

Bæjarráð samþykkir með þrem atkvæðum að vísa erindinu með umbeðnum gögnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Theodóra S. Þorsteinsdóttir og Helga Jónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

03

Bæjarráð - 3191. fundur

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu tillaga um að Kópavogsbær endurnýi ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum í lok mars 2025 heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar flytjast í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi.

04

Velferðarráð - 138. fundur

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu tillaga um að Kópavogsbær endurnýi ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum í lok mars 2025 heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar flytjast í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram tillögu um að afgreiðslu málsins yrðir frestað og málinu vísað til umsagnar öldungaráðs Kópavogs. Tillagan var felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Soumiu I. Georgsdóttur.

Hlé var gert á fundi kl. 16:55 og hófst hann aftur kl. 17:03.

Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um að Kópavogsbær endurnýi ekki samning við SÍ um rekstur hjúkrunarheimilisins að Roðasölum í lok mars 2025 heldur framlengi samninginn tímabundið á meðan íbúar flytjast í ný hjúkrunarrými í Boðaþingi og vísar málinu áfram til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn með fimm atkvæðum gegn atkvæði Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og hjásetu Soumiu I. Georgsdóttur.

Hlé var gert á fundi kl. 17:04 og hófst hann aftur kl. 17:13.

Bókanir:

Undirrituð harma að meirihluti fulltrúa í velferðarráði hafni frestun málsins og vísun þess til umsagnar öldungaráðs. Hlutverk öldungaráðs er skv. erindisbréfi að vera vera „formlegur vettvangur samráðs og samstarfs við bæjarstjórn um hagsmuni aldraðra þar sem fjallað er um þjónustu við aldraða, framkvæmd hennar og þróun“.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Erlendur Geirdal

Soumia I. Georgsdóttir

Rekstur og starfsemi hjúkrunarheimila fellur ekki undir lögbundnar skyldur og þjónustu sveitarfélaga og því teljum við eðlilegasti farvegur þessa máls að fara fyrir bæjarráð og bæjarstjórn.

Björg Baldursdóttir

Svava Halldóra Friðgeirsdóttir

Matthías Björnsson

Hjördís Ýr Johnson

Hólmfríður Hilmarsdóttir