Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Landsmót hestamanna 1 - 7 júlí 2024

Málsnúmer: 24061991

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3179. fundur

Frá Hestamannafélaginu Spretti, dags. 19.06.2024, lögð fram beiðni um styrk að upphæð kr. 1.000.000,- vegna Landsmóts Hestamanna sem haldið verður 1.-7. júlí 2024.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að upphæð kr. 1.000.000,-

Bókun bæjarráðs:

"Í meðfylgjandi styrkbeiðni er þess getið að bæjarstjóra, formanni bæjarráðs og deildarstjóra íþróttadeildar verði afhentir boðsmiðar fyrir tvo á mótið. Samkvæmt siðareglum kjörinna fulltrúa í Kópavogi er fulltrúum óheimilt að þiggja gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá þeim sem leita eftir þjónustu bæjarins, ef líta má á það sem endurgreiðslu fyrir greiða eða sérstaka þjónustu. Miðarnir eru því afþakkaðir. "