Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3179. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Helga Jónsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Elísabet Berglind Sveinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Bæjarráðsfundur er haldinn í umboði bæjarstjórnar.

Dagskrá fundar

01

Vinnustaðagreining 2024 - kynning á niðurstöðum

Frá mannauðsstjóra, dags. 25.06.2024 kynning á niðurstöðum vinnustaðagreiningar Kópavogsbæjar.

Kynning og umræður.

02

Vallargerði 26. Heimild til sölu

Frá fjármálasviði, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til sölu á fasteigninni Vallargerði 26, eign F2065799.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

03

Ástún 14, 0405. Heimild til sölu

Frá fjármálasviði, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til sölu á fasteigninni Ástún 14, eign F2058707.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til sölu á fasteigninni Ástún 14, eign F2058707.

04

Æfingavöllur Breiðablik

Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 24.06.2024, lagt fram erindi þar sem er óskað er eftir heimild bæjarráðs til að hefja fyrsta útboð af þremur fyrir nýjan æfingavöll Breiðabliks í Fífuna. Um er að ræða útboð á jarðvinnu og lögnum sbr. hjálögð útboðsgögn unnin af VSÓ verkfræðistofu.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til útboðs á fyrsta hluta af þremur fyrir nýjan æfingavöll Breiðabliks í Fífunni, með fyrirvara um jákvæða afgreiðslu skipulagsráðs á breytingu á deiliskipulagið svæðisins.

05

Rjúpnasalir 1. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 04.06.2024, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar frá Lionsklúbbnum Muninn um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsókn með vísan til umsagnar lögfræðideildar.

06

Ögurhvarf 6 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 19.06.2024, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Styrktarfélagsins Áss um styrk til greiðslu fasteignaskatts af fasteign félagsins.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsókn með vísan til umsagnar lögfræðideildar.

07

Hamraborg 1-3, Kópavogi. Númer fasteignar: 0103 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2024, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar SOS barnaþorps um styrk til greiðslu fasteignaskatts af fasteign félagsins.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsókn með vísan til umsagnar lögfræðideildar.

08

Hlíðarmári 14 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2024, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Styrktarfélagsins Krabbameiinssjúkra barna um styrk til greiðslu fasteignaskatts af fasteign félagsins.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsókn með vísan til umsagnar lögfræðideildar.

09

Hamraborg 10. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts

Frá lögfræðideild, dags. 20.06.2024, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Soroptimistasamband íslands um styrk til greiðslu fasteignaskatts af fasteign félagsins.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða umsókn með vísan til umsagnar lögfræðideildar.

10

Ósk um heimild til veðsetningar

Frá bæjarlögmanni. Umsögn um beiðni um heimild til veðsetningar lóðar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til veðsetningar lóðarinnar Roðahvarf 2-8, landeignarnúmer 237-534.

11

Ósk um heimild til veðsetningar

Frá bæjarlögmanni. Umsögn um beiðni um heimild til veðsetningar lóðar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til veðsetningar lóðarinnar Roðahvarf 10-18, landeignarnúmer 237-535.

12

Ósk um heimild til veðsetningar

Frá bæjarlögmanni. Umsögn um beiðni um heimild til veðsetningar lóðar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til veðsetningar lóðarinnar Roðahvarf 20-32, landeignarnúmer 237-538.

13

Ósk um heimild til veðsetningar

Frá bæjarlögmanni. Umsögn um beiðni um heimild til veðsetningar lóðar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til veðsetningar lóðarinnar Roðahvarf 1-15, landeignarnúmer 237-530.

14

Landsmót hestamanna 1 - 7 júlí 2024

Frá Hestamannafélaginu Spretti, dags. 19.06.2024, lögð fram beiðni um styrk að upphæð kr. 1.000.000,- vegna Landsmóts Hestamanna sem haldið verður 1.-7. júlí 2024.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að upphæð kr. 1.000.000,-

Bókun bæjarráðs:

"Í meðfylgjandi styrkbeiðni er þess getið að bæjarstjóra, formanni bæjarráðs og deildarstjóra íþróttadeildar verði afhentir boðsmiðar fyrir tvo á mótið. Samkvæmt siðareglum kjörinna fulltrúa í Kópavogi er fulltrúum óheimilt að þiggja gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá þeim sem leita eftir þjónustu bæjarins, ef líta má á það sem endurgreiðslu fyrir greiða eða sérstaka þjónustu. Miðarnir eru því afþakkaðir. "

15

Uppgjör við sveitarfélög vegna grindvískra grunnskólanemenda

Frá Grindavíkurbæ, dags. 21.06.2024, lagt fram erindi varðandi uppgjör vegna grindvískra grunnskólanemenda.

Lagt fram.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu að uppgjörsaðferðum

16

Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar 2023

Frá Brú lífeyrissjóði, dags. 20.06.2024, lagt fram erindi varðandi endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar 2023.

Lagt fram.

17

Bókun 579. fundar stjórnar SSH - Loftlagsstefna

Frá SSH, dags. 19.06.2024, lagðar fram til kynningar skýrslurnar Útreikningur á losun

höfuðborgarsvæðisins og Innleiðing á loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins.

Lagt fram.

18

Fundargerð 499. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 18.06.2024

Fundargerð 499. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 18.06.2024.

Lagt fram.

19

Fundargerð 10. fundar stefnuráðs byggðarsamlaganna frá 17.11.2023

Fundargerð 10. fundar stefnuráðs byggðarsamlaganna frá 17.11.2023.

Lagt fram.

20

Fundargerð 11. fundar stefnuráðs byggðarsamlaganna frá 07.06.2024

Fundargerð 11. fundar stefnuráðs frá 07.06.2024.

Lagt fram.

21

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 395. fundur frá 14.06.2024

Fundargerð í átta liðum.

Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

22

Lista- og menningarráð - 165. fundur frá 19.06.2024

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

23

Velferðarráð - 134. fundur frá 18.06.2024

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.


23.5 - 2406730 - Endurskoðun á reglum um NPA 2024

Breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk lagðar fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkir breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.

Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á reglum um notendastýrða persónulega aðstoð.