Kæra til Innviðaráðuneytis vegna úthlutunar lóðabyggingarréttar að Roðahvarfi nr. 2-36 og 1-21
Málsnúmer: 24063001
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1320. fundur
Lagður fram úrskurður Innviðaráðuneytisins í máli nr. IRN2460110 sem kveðinn var upp 2. maí 2025 ásamt úrskurði ráðuneytisins í sama máli frá 29. júlí 2024. Samhliða lagt fram minnisblað frá Guðjóni Ármannssyni lögmanni.
02
Bæjarráð - 3214. fundur
Lagður fram úrskurður Innviðaráðuneytisins í máli nr. IRN2460110 sem kveðinn var upp 2. maí 2025 ásamt úrskurði ráðuneytisins í sama máli frá 29. júlí 2024. Samhliða lagt fram minnisblað frá Guðjóni Ármannssyni lögmanni.
Umræður.
Gestir véku af fundi kl. 10:15.
Fundarhlé hófst kl. 10:56, fundi fram haldið kl. 11:08
Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að fela bæjarstjóra að undirbúa málshöfðun til ógildingar úrskurði Innviðaráðuneytisins.
Bókun:
"Undirrituð telja með vísan til þeirra hagsmuna Kópavogs og núverandi lóðarhafa að láta reyna á gildi úrskurðarins fyrir dómi. Að mati óháðra lögfræðiráðgjafa má færa rök fyrir því að úrskurðurinn er haldinn verulegum annmörkum að formi og efni til. Við leggjum því til að bæjarstjóra verði falið að undirbúa málshöfðun fyrir héraðsdómi til að fá úrskurði ráðuneytisins frá 2. maí hnekkt."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
Bókun:
"Úrskurður innviðaráðuneytisins sýnir alvarlegar afleiðingar þess fyrir Kópavogsbæ að vanda ekki vinnubrögð og gæta lagaskilyrða. Það eru ný tíðindi fyrir undirritaðar að lóðaúthlutanir Kópavogsbæjar voru kærðar til ráðuneytisins í júní 2024 og bæjarráð fékk engar upplýsingar um meinbugi á málsmeðferð. Öllu máli skiptir nú að vanda viðbrögðin og lágmarka tjón Kópavogsbæjar. Nauðsynlegt er að kortleggja tiltæk úrræði sem fyrst og leita leiða til að ljúka málinu svo fljótt sem kostur er. Við áréttum beiðni okkar um að bæjarráð, sem á að hafa lögbundið eftirlit með stjórnsýslu bæjarins, fái öll gögn málsins á næsta fundi, þ.m.t. fundargerðir og minnispunkta frá störfum úthlutunarnefndar."
Helga Jónsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir