Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3214. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Ársreikningur Kópavogsbæjar 2024

Lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2024 á milli umræðna.

Lagt fram, umræður.

Gestir véku af fundi kl. 9:08

02

Kæra til Innviðaráðuneytis vegna úthlutunar lóðabyggingarréttar að Roðahvarfi nr. 2-36 og 1-21

Lagður fram úrskurður Innviðaráðuneytisins í máli nr. IRN2460110 sem kveðinn var upp 2. maí 2025 ásamt úrskurði ráðuneytisins í sama máli frá 29. júlí 2024. Samhliða lagt fram minnisblað frá Guðjóni Ármannssyni lögmanni.

Umræður.

Gestir véku af fundi kl. 10:15.

Fundarhlé hófst kl. 10:56, fundi fram haldið kl. 11:08

Bæjarráð samþykkir með 3 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að fela bæjarstjóra að undirbúa málshöfðun til ógildingar úrskurði Innviðaráðuneytisins.

Bókun:

"Undirrituð telja með vísan til þeirra hagsmuna Kópavogs og núverandi lóðarhafa að láta reyna á gildi úrskurðarins fyrir dómi. Að mati óháðra lögfræðiráðgjafa má færa rök fyrir því að úrskurðurinn er haldinn verulegum annmörkum að formi og efni til. Við leggjum því til að bæjarstjóra verði falið að undirbúa málshöfðun fyrir héraðsdómi til að fá úrskurði ráðuneytisins frá 2. maí hnekkt."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson


Bókun:

"Úrskurður innviðaráðuneytisins sýnir alvarlegar afleiðingar þess fyrir Kópavogsbæ að vanda ekki vinnubrögð og gæta lagaskilyrða.  Það eru ný tíðindi fyrir undirritaðar að  lóðaúthlutanir Kópavogsbæjar voru kærðar til ráðuneytisins í júní 2024 og bæjarráð fékk engar upplýsingar um meinbugi á málsmeðferð. Öllu máli skiptir nú að vanda viðbrögðin og lágmarka tjón Kópavogsbæjar.  Nauðsynlegt er að kortleggja tiltæk úrræði sem fyrst og leita leiða til að ljúka málinu svo fljótt sem kostur er.  Við áréttum beiðni okkar um að bæjarráð, sem á að hafa lögbundið eftirlit með stjórnsýslu bæjarins, fái öll gögn málsins á næsta fundi, þ.m.t. fundargerðir og minnispunkta frá störfum úthlutunarnefndar."

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

03

Viðhorfskönnun til foreldra varðandi íþróttaiðkun barna

Frá menntasviði, dags. 06.05.2025, lögð fram kynning á fyrirhugaðri viðhorfskönnun sem áætlað er að senda á foreldra barna í íþróttum um miðjan maí.

Lagt fram og kynnt.

Gestur vék af fundi kl. 11:29

Umræður.

Bæjarráð óskar eftir minnisblaði frá sviðsstjóra menntasviðs um samráð vegna málsins við fulltrúa í lýðheilsu- og íþróttanefnd.

04

Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025

Frá áhættu- og fjárstýringarsviði, lagður fram viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun 2025. Umsögn fylgir viðaukanum.

Bæjarráð vísar framlögðum viðauka til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Gestir véku af fundi kl. 10:37

05

Fífan gervigras og tartan

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 15.04.2025, lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2025.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

06

Ráðning þjónustustjóra Kópavogsbæjar

Frá bæjarrstjóra, dags. 06.05.2025, lagt fram erindi til bæjarráðs varðandi ráðningu þjónustustjóra Kópavogsbæjar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Théodóru S. Þorsteinsdóttur framlagða tillögu bæjarstjóra.

07

Rekstrarkostnaður Geðræktarhúss

Lagður fram sundurliðaður rekstarkostnaður fyrir Geðræktarhús.

Lagt fram.

Gestur vék af fundi kl. 10:18

Umræður.

08

Erindi frá fyrrverandi persónuverndarfulltrúa Kópavogsbæjar

Erindi frá fyrrverandi persónuverndarfulltrúa Kópavogsbæjar. Mál sett á dagskrá bæjarráðs að beiðni bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur.

Lagt fram.

Umræður.

Bæjarráð felur bæjarritara að taka saman upplýsingar er lúta að fyrirkomulagi starfs persónuverndarfulltrúa, ásamt svari við athugasemdum fyrrverandi persónuverndarfulltrúa.

Bókun:

"Kveðjubréf persónuverndarfulltrúa felur í sér þau nýju tíðindi að hann hafi frá því hann tók við starfi 2018 reynt árangurslaust að koma á reglubundnu samtali við æðstu stjórnendur sveitarfélagsins og síðustu 3-4 árin einnig markvisst reynt að fá aðgengi að bæjarstjórn.  Við hörmum að bæjarráð hafi aldrei fengið tækifæri til umræðu við persónuverndarfulltrúa um verkefni hans og starfsaðstöðu.  Fullnægjandi varsla persónuupplýsinga og framkvæmd löggjafar þar um er jafnmikilvæg hjá Kópavogsbæ og öðrum aðilum eins og lögreglu og saksóknara.  Það er ámælisvert að bæjarráði hafi ekki verið gert ljóst mat persónuverndarfulltrúa á nauðsyn þess að styrkja starfið og tryggja hagsmuni allra þeirra sem eiga upplýsingar varðveittar hjá Kópavogsbæ."

Bergljót Kristinsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir


Bókun:

"Meirihlutinn tekur undir þau sjónarmið að mikilvægt er að halda vel utan um mál er lúta að persónuvernd í starfsemi sveitarfélaga. Persónuverndarfulltrúa stóð ávallt til boða að koma sínum áherslum á framfæri með reglulegum og formlegum hætti til bæjarráðs. Fullyrðingar um annað eru því ekki á rökum reistar."

Orri V. Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

09

Úthlutun lóða Heiðarhvarf 1-3.

Frá yfirlögfræðingi. Tillaga þess efnis að bæjarráð leggi til við bæjarstjórn að úthlutun parhúsalóðanna Heiðarhvarfi 1 og 3 til Stéttafélagsins verði afturkölluð og lóðunum verði úthlutað til Ara Oddsonar ehf.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til við bæjarstjórn að úthlutun parhúsalóðanna Heiðarhvarfi 1 og 3 til Stéttafélagsins ehf. verði afturkölluð og lóðunum verði úthlutað til Ara Oddsonar ehf.

10

Úthlutun lóða Hallahvarf 5-7

Frá yfirlögfræðingi. Beiðni lóðarhafa, Portfolio ehf., um veðsetningu lóðar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

11

Úthlutun lóða Hallahvarf 1-3

Frá yfirlögfræðingi. Beiðni lóðarhafa Portfolio ehf. um veðsetningu lóðar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

12

Úthlutun lóða Hæðarhvarf 21-23

Frá yfirlögfræðingi: Beiðni lóðarhafa Viðmiðs ehf. um heimild til veðsetningar lóðanna Hæðarhvarfs 21 og 23.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

13

Úthlutun lóða Hæðarhvarf 18-20

Frá yfirlögfræðingi: Beiðni lóðarhafa Viðmiðs ehf. um heimild til veðsetningar lóðanna Hæðarhvarfs 18 og 20.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

14

Úthlutun lóðar Hlíðarhvarf 14-16

Frá yfirlögfræðingi. Beiðni lóðarhafa GG húss ehf. um heimild til veðsetningar lóða.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

15

Úthlutun lóðar Hlíðarhvarf 18-20

Frá yfirlögfræðingi. Beiðni lóðarhafa GG húss ehf. um heimild til veðsetningar lóða.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

16

Hallahvarf 25-27, Hallahvarf 29 og Hallahvarf 31-33

Frá yfirlögfræðingi. Beiðni MótX um leyfi til veðsetningar lóðarinnar Hallahvarfs 25

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

17

Úthlutun lóða Hallahvarf 13-15

Frá yfirlögfræðingi. Beiðni lóðarhafa Helgason capital um veðsetningu lóðanna Hallahvarfs 9,11,13 og 15.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

18

Hallahvarf 17-19 og Hallahvarf 21-23

Frá yfirlögfræðingi, beiðni lóðarhafa Hallarhvarfs 17, XP7 ehf., um heimild til veðsetningar lóðarinnar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

19

Til umsagnar 270. mál - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar 270. mál -Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

Lagt fram.

Helga Jónsdóttir vék af fundi kl. 12:52.

Bókun:

"Skilaboðin í þessu frumvarpi eru á skjön við yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar - um að hækka ekki skatta á heimilin. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er verið að þvinga Kópavog í skjóli laga ríkisstjórnarinnar í hámarksútsvar sem er bein skattahækkun á Kópavogsbúa.

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki aðeins vegið að fjárhagslegu sjálfstæði sveitarfélaganna, heldur er komið í veg fyrir að sveitarfélög geti skilað ávinningi af góðum rekstri til bæjarbúa í lægri útsvarsprósentu. Hér er því verið að skapa ranga hvata sem eru varhugaverðir og geta haft afleiðingar í för með sér."

Orri V. Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

20

Ályktun á aðalfundi Skógræktarfélagsins

Frá Skógræktarfélagi Íslands, dags. 23.04.2025, lögð fram ályktun frá aðalfundi félagsins.

Lagt fram.

21

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 417. fundur frá 25.04.2025

Fundargerð í 12 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

22

Innkaupanefnd - 1. fundur frá 14.04.2025

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

23

Innkaupanefnd - 2. fundur frá 28.04.2025

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

24

Innkaupanefnd - 3. fundur frá 05.05.2025

Fundargerð í fjórum liðum.

Afgreiðslu frestað.

25

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 19. fundur frá 31.03.2025

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

26

Menntaráð - 143. fundur frá 06.05.2025

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

27

Velferðar- og mannréttindaráð - 4. fundur frá 23.04.2025

Fundargerð í 15 liðum.

Lagt fram.


27.9 - 25041771 - Tillaga til velferðar- og mannréttindaráðs varðandi kynjahlutföll í nefndum og ráðum á vegum bæjarins frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur aðalmanni Pírata í velferðar- og mannréttindaráði

Lögð fram tillaga ásamt greinargerð frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur um að velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs taki til sérstakrar umfjöllunar kynjahlutföll í fastanefndum bæjarstjórnar, í ljósi þess að kynjahlutföll í að minnsta kosti þremur ráðum - menntaráði, skipulags- og umhverfisráði og velferðar- og mannréttindaráði - uppfylla ekki ákvæði 15. gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Einnig er lagt til að ráðið geri tillögu til bæjarráðs um viðeigandi úrbætur.

Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs tekur undir mikilvægi þess að kynjahlutföll í nefndum og ráðum á vegum bæjarins endurspegli ákvæði 28.gr. jafnréttislaga nr. 150/2020. Ráðið hvetur bæjarstjórn til að bregðast við þar sem við á.

Lagt fram.


28

Skipulags- og umhverfisráð - 7. fundur frá 05.05.2025

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.


28.10 - 2003236 - Borgarlínan í Kópavogi. Rammahluti. Breytt aðalskipulag

Lögð fram að nýju tillaga að rammahluta Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040, Borgarlínan í Kópavogi, fyrir fyrstu lotu Borgarlínu frá Fossvogsbrú að Hamraborg, dags. í apríl 2025, í samræmi við 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Rammahlutinn er unninn af VSÓ Ráðgjöf fyrir Kópavogsbæ.
Viðfangsefni tillögunnar er nánari útfærsla fyrir Borgarlínuna í Kópavogi. Þar er fjallað um legu, staðsetningu stöðva, áherslur um forgang og skipulag göturýmis. Jafnframt eru kynnt þau viðmið sem líta ber til við útfærslu Borgarlínunnar, hvort sem er í deiliskipulagi göturýmis eða hönnun innviða Borgarlínunnar. Rammahlutinn um 1. lotu Borgarlínunnar er ítarlegri stefna tillögu að Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 til að tryggja framfylgd meginmarkmiða skipulagsins um Borgarlínuna. Viðfangsefni tillögunnar eru liður í því að stuðla að framfylgd samgöngusáttmála ríkis- og sveitarfélaganna og tryggja framfylgd samgönguáætlunar 2020-2034.
Á kynningartíma bárust 14 athugasemdir. Lögð er fram greinargerð um viðbrögð Kópavogsbæjar við umsögnum og athugasemdum um auglýsta tillögu, dags. apríl 2025.

Samþykkt sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Kolbeins Reginssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Kristins Dags Gissurarsonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



28.6 - 2412222 - Dalvegur 32A, B og C. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Sigurðar Halldórssonar arkitekts dags. 3. desember 2024 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 32A, B og C við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst hliðrun austari inn-/útkeyrslu frá lóðinni við Dalveg vegna hæðarlegu lands og hagræðingar umferðarflæðis innan lóðarinnar. Aukning byggingarmagns neðanjarðar úr 3205 m² í 6250 m² fyrir bílageymslu, hjólageymslur, starfsmannaaðstöðu og geymslu- og tæknirými ásamt því að hluti bílastæða ofanjarðar á lóðinni verður fluttur í bílageymslu neðanjarðar. Heildarfjöldi bílastæða á lóðinni er óbreyttur. Þá eru gerðar breytingar á tengingum göngu- og hjólastíga innan lóðarinnar við göngu- og hjólastíga Kópavogsbæjar sem liggja austan við lóðina. Jafnframt er byggingarreitur ofanjarðar stækkaður um 50 cm til suðurs og austurs (að Reykjanesbraut). Hámark byggingarmagns ofanjarðar helst óbreytt fyrir Dalveg 32C eða 9894 m². Nýtingarhlutfall ofanjarðar er óbreytt 0,8 en nýtingarhlutfall ofanjarðar og neðanjarðar eykst úr 1,15 í 1,31.Uppdrættir í mkv. 1:1000 dags. 15. janúar 2025.
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 3. febrúar 2025 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Kynningartími var frá 19. febrúar til 16. apríl 2025. Athugasemdir bárust.
Þá lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. apríl 2025.

Samþykkt með tilvísun í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. apríl 2025 með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Leó Snær Pétursson og Kolbeinn Reginsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



28.7 - 24061018 - Arnarnesvegur - 3. áfangi. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Arnarnesvegar 3. áfanga dags. 6. september 2024. Í breytingunni felst uppfærð lega stofnstígs (göngu- og hjólastígs) til samræmis við fyrirliggjandi hönnun mislægra gatnamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar sem og deiliskipulag Elliðaárdals ásamt því að mörk deiliskipulagsins breytast innan sveitarfélagsmarka Reykjavíkurborgar.

Samþykkt með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Kolbeins Reginssonar og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


29

Fundargerð 603. fundar stjórnar SSH frá 07.04.2025

Fundargerð 603. fundar stjórnar SSH frá 07.04.2025.

Lagt fram.

30

Fundargerð 604. fundar stjórnar SSH frá 14.04.2025

Fundargerð 604. fundar stjórnar SSH frá 14.04.2025.

Lagt fram.

31

Fundargerð 605. fundar stjórnar SSH frá dags 23.04.2025

Fundargerð 605. fundar stjórnar SSH frá dags 23.04.2025.

Lagt fram.

32

Fundargerð 51. eigendafundar stjórnar Strætó frá 14.04.2024

Fundargerð 51. eigendafundar stjórnar Strætó frá 14.04.2024.

Lagt fram.

33

Fundargerð 404. fundar stjórnar Strætó frá 28.02.2025

Fundargerð 404. fundar stjórnar Strætó frá 28.02.2025.

Lagt fram.

34

Fundargerð 405. fundar stjórnar Strætó frá 14.03.2025

Fundargerð 405. fundar stjórnar Strætó frá 14.03.2025.

Lagt fram.

35

Fundargerð 406. fundar stjórnar Strætó frá 11.04.2025

Fundargerð 406. fundar stjórnar Strætó frá 11.04.2025.

Lagt fram.

36

Fundargerð 514. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.04.2025

Fundargerð 514. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.04.2025.

Lagt fram.

37

Fundargerð 515. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 23.04.2025

Fundargerð 515. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 23.04.2025.

Lagt fram.

38

Fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11.04.2025

Fundargerð 977. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11.04.2025.

Lagt fram.

39

Fundargerð 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.04.2025

Fundargerð 978. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.04.2025.

Lagt fram.

40

Fundargerð 137. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 11.04.2025

Fundargerð 137. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 11.04.20.

Lagt fram.

41

Fundargerð 33. fundar Heilbrigðisnefndar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnafjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 28.04.2025

Fundargerð 33. fundar Heilbrigðisnefndar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnafjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 28.04.2025.

Lagt fram.