Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi varðandi Frístundastyrkjakerfi Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 2411355

Ferill máls

01

Menntaráð - 143. fundur

Lögð fram umsögn Ungmennaráðs, sem lýðheilsu og íþróttanefnd óskaði eftir á síðasta fundi sínum 20. febrúar.

02

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 3. fundur

Lögð fram umsögn Ungmennaráðs, sem lýðheilsu og íþróttanefnd óskaði eftir á síðasta fundi sínum 20. febrúar.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Ungmennaráði fyrir umsögnina.

Í ljósi þeirra gagna sem fyrir liggja í málinu telur lýðheilsu og íþróttanefnd ekki ástæðu til að breyta núverandi reglum.

03

Ungmennaráð - 51. fundur

Íþrótta- og lýðheilsunefnd óskar eftir umsögn frá ungmennaráði um afnot frístundastyrks í líkamsrækt fyrir yngri iðkendur en 16 ára.

Ungmennaráð Kópavogs styður aukna nýtingu frístundastyrks í líkamsrækt fyrir yngri en 16 ára en leggur áherslu á auknar kröfur til líkamsræktarstöðva. Börn þurfa kennslu í tækjanotkun og aðgengi að þjálfuðu starfsfólki. Einnig væri gagnlegt að bjóða byrjendanámskeið og hópatíma. Mikilvægt er að virða útivistartíma barna og tryggja skipulagt, öruggt og uppbyggilegt starf.

04

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 2. fundur

Lagt fram að nýju erindi frá Guðmundi Péturssyni, dags. 28. október 2024, þar sem óskað er eftir því að fá að nota frístundastyrk í líkamsrækt fyrir yngri iðkendur en 16 ára.

Á fundi sínum 21. nóvember 2024 óskaði íþróttaráð eftir umsögn frá menntasviði og þar til bærum fagaðilum um málið sem nú eru lagðar fram.

Lögð fram umsögn menntasviðs sem nefndin óskaði eftir á fundi sínum 21. nóvember 2024 ásamt þeim reglum sem gilda um notkun frístundastyrks til kaupa á líkamsræktarkortum í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd vísar málinu til umsagnar Ungmennaráðs.

05

Íþróttaráð - 145. fundur

Lagt fram erindi frá Guðmundi Péturssyni, dags. 28. október 2024, þar sem óskað er eftir því að fá að nota frístundastyrk í líkamsrækt fyrir yngri iðkendur en 16 ára. En reglur um frístundastyrki Kópavogsbæjar í dag heimila að veita styrk til ungmenna, 16-18 ára miðað við fæðingaár, til kaupa á 3ja til 12 mánaða kortum að líkamsræktarstöðvum.

Íþróttaráð óskar eftir umsögn frá menntasviði og þar til bærum fagaðilum um málið fyrir næsta fund.