Kópavogslækur - LIFE ICEWATER verkefni
Málsnúmer: 24121162
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 19. fundur
Kynning á stöðu verkefnisins LIFE ICEWATER. Kópavogsbær er í hópi 22 aðila sem hlotið hafa styrk sem er ætlað að flýta fyrir og bæta innleiðingu fyrstu vatnaáætlunar á Íslandi. Hlutur Kópavogsbæjar snýr að aðgerðum til að koma vatnsgæðum Kópavogslækjar í betra efnafræðilegt ástand með fyrirbyggjandi aðgerðum, vakta ástand lækjarins og auka fræðslu til íbúa. Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála tók sæti á fundinum undir þessum lið og gerði grein fyrir erindinu.
Kynning og umræður.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 6. fundur
Kynning á verkefninu LIFE ICEWATER. Kópavogsbær er í hópi 22 aðila sem hlotið hafa styrk sem er ætlað að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi. Hlutur Kópavogsbæjar snýr að aðgerðum til að koma vatnsgæðum Kópavogslækjar í betra efnafræðilegt ástand með fyrirbyggjandi aðgerðum, vakta ástand lækjarins og auka fræðslu til íbúa.
Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála gerði grein fyrir erindinu.
Lagt fram og kynnt.