Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulags- og umhverfisráð - 36. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - formaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - varaformaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Kristinn Jakobsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
  • Beitir Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Björgvin Sveinsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Hákon Gunnarsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Dagskrá fundar

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

01

Bæjarráð - 3266. fundur frá 01.10.2026

Skipulags- og umhverfisráð - 35. fundur frá 21.09.2026

26092155 - Silfursmári 1-7. Breytt aðalskipulag. Skipulags- og matslýsing.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

26092156 - Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

26043172 - Dalvegur 1. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Almenn erindi

02

Kópavogslækur - LIFE Icewater verkefni

Kynning á verkefninu LIFE Icewater. Kópavogsbær er í hópi 22 aðila sem hlotið hafa styrk sem er ætlað að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi. Hlutur Kópavogsbæjar snýr að aðgerðum til að koma vatnsgæðum Kópavogslækjar í betra ástand með fyrirbyggjandi aðgerðum, vakta ástand lækjarins og auka fræðslu til íbúa.

Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar, Sæmundur Sveinsson sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun og Karen Jónasdóttir, verkefnastjóri umhverfismála kynntu verkefnið.

Kynning og umræður.


Gestir

  • Gestur Pétursson - mæting: 15:30
  • Sæmundur Sveinsson - mæting: 15:30
Almenn erindi

03

Stelluróló (Holtsvöllur). Endurgerð 2026-2027

Kynning á fyrirhuguðum endurbótum á leik- og dvalarsvæðinu við Stelluróló (Holtsvöll) við Borgarholtsbraut.

Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri gerði grein fyrir erindinu.

Kynning.

Almenn erindi

04

Framkvæmd við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku

Vegagerðin og umhverfissvið Kópavogs sækja um framkvæmdaleyfi, dags. 1. október 2026, vegna endurbóta á gatnamótum Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku í samræmi við framlögð gögn. Framkvæmdir munu hefjast um leið og leyfi fæst og taka um það bil 3 mánuði eða eftir tíðarfari. Ekki verður lokað fyrir umferð um gatnamótin á framkvæmdatíma en vænta má einhverja tímabundinna tafa. Í framkvæmdinni felst endurgerð núverandi gatnamóta þar sem beygjuvasar og framhjáhlaup verða aflögð, ný umferðarljós sett upp og aðstaða gangandi og hjólandi vegfarenda bætt. Lagður verður nýr göngustígur að gatnamótunum og gönguþveranir styttar til að auka öryggi allra vegfarenda.

Frestað.

Almenn erindi

05

Barnasáttmálinn 2025-2027

Lögð fram kynning á aðgerðaráætlun Barnvæns sveitarfélags í Kópavogi.

Lagt fram.

Almenn erindi

06

Tillaga áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði Péturs Björgvins Sveinssonar um hundagerði í Kópavogi.

Lögð fram tillaga áheyrnarfulltrúa Péturs Björgvins Sveinssonar, ódags., um að fela skipulagsfulltrúa að vinna tillögur að staðsetningu afgirtra hundagerða í hverfum Kópavogs.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

Almenn erindi

07

Tillaga áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði Beitis Ólafssonar um Guðmundarlund

Lögð fram tillaga áheyrnarfulltrúa Beitis Ólafssonar dags. 1. október 2026 um að skipulags- og umhverfisráð boði fulltrúa Skógræktarfélags Kópavogs á fund ráðsins til að fara yfir stöðu Guðmundarlundar.

Tillaga felld með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Kristins Jakobssonar, Kristins Dags Gissurarsonar.

Hákon Gunnarsson og Eydís Inga Valsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Bókun:

„Guðmundarlundur er ein af perlum Kópavogs sem við munum standa vörð um í framtíðarskipulagi Kópavogsbæjar. Þar sem tillaga áheyrnarfulltrúa Miðflokksins, sem snýr að skipulags- og umhverfisráði, um framtíðarsýn á skipulag nágrennisins bendum við á að bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í júní 2025 að auglýsa skipulagslýsingu um breytingu á aðalskipulagi Kópavogs ásamt deiliskipulagsbreytingum á Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavöllum. Markmiðið þar er að skipuleggja íbúðarbyggð í góðu samhengi við núverandi byggð og í góðum tengslum við náttúru svæðisins. Meirihlutinn vekur athygli á því að Skógræktarfélag Kópavogs er tilgreint meðal helstu samráðs- og umsagnaraðila í því ferli og verður félaginu þannig tryggð aðkoma að ferlinu eftir réttum ferlum. Telja undirrituð óheppilegt í því ljósi að taka einstaka aðila fram hjá því ferli eins og hér er lagt til og greiðum við því atkvæði á móti tillögunni.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Kristinn Jakobsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Bókun:

„Það er undirrituðum með öllu óskiljanlegt hvers vegna meirihluti vilji ekki boða Skógræktarfélag Kópavogs á sinn fund til að fara yfir stöðu mála í Guðmundarlundi. Augljóst er að ráðast þarf í endurbætur á svæðinu, bæði með tilliti til öryggismála og til að hámarka framtíðarnýtingu þess. Með því að fá fulltrúa félagsins á fund mætti greina nákvæmlega hvaða úrbóta er þörf og samþætta þær fyrirhugaðari uppbyggingu í Vatnsendahlíð. Áætlað er að um 200.000 manns sæki Guðmundarlund heim árlega og er svæðið mikið nýtt til útikennslu af leik- og grunnskólum Kópavogs. Skógræktarfélagið hefur staðið sig afgerandi vel í úmsjón lundarins. Það er því komið að sveitarfélaginu að koma til móts við þarfir félagsins og íbúa Kópavogs, ráðast í nauðsynlegar úrbætur, viðurkenna tilverurétt/mikilvægi svæðisins og fjárfesta í framtíð Guðmundarlundar.“

Beitir Ólafsson.

Bókun:

„Þjónustusamningur Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar er samþykktur af bæjarráði. Leggjum við til að fulltrúi Miðflokksins taki það upp við sinn fulltrúa á þeim vettvangi að fylgja málinu eftir séu einhverjar athugasemdir þar að undangenginni umfjöllun.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Kristinn Jakobsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Almenn erindi

08

Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði Beitis Ólafssonar um lóðir í Vatnsendahvarfi.

Lögð fram fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Beitis Ólafssonar dags. 1. október 2026 um lóðir í Vatnsendahvarfi.

Vísað til umsagnar umhverfissviðs.

Bókun:

„Ástæða beiðni undirritaðs er einungis vegna þess að mikið hefur borið á því að lóðarhafar skili þegar fjármögnuðum lóðum við Vatnsendahvarf til baka. Það er einkun vegna rangra upplýsinga, skorts á upplýsingum og seinagangs við afhendingu lóða. Einnig gætir tafa á afgreiðslu mála hjá skipulagssviði sem þola enga bið. Þá hafa misvísandi skilaboð frá embættismönnum um byggingarheimildir á lóðunum valdið óvissu. Hvort forgangsröðunin innan stjórnsýslunar sé rétt þegar kemur að hvaða svið og stöðugildi þurfi raunverulega að manna hverju sinni, og hvaða stöðugildi á móti megi missa sín. Sömuleiðis þurfi að skoða hvort heimila eigi aukinn mannafla við stærri verkefni þar sem miklir fjárhagsmunir eru í húfi, svo að þjónusta við bæjarbúa og uppbyggingaraðila skerðist ekki, sérstaklega þegar sveitarfélagið stendur í þeim mikla uppbyggingarfasa sem raun ber vitni. Miðflokkurinn hefur nú þegar lagt fram beiðni um stjórnsýsluúttekt, en sú beiðni býður en afgreiðslu.“

Beitir Ólafsson

Bókun:

„Meirihlutinn gerir athugasemdir við þau vinnubrögð að leggja fram fyrirspurn og svara henni, með stílfæringum og fullyrðingum um niðurstöður, í bókun við framlagningu fyrirspurnarinnar.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Kristinn Jakobsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Fundarhlé hófst kl. 18:04, fundi fram haldið kl. 18:30.