Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hallahvarf 25-27, Hallahvarf 29 og Hallahvarf 31-33

Málsnúmer: 25031090

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1320. fundur

Frá yfirlögfræðingi. Beiðni MótX um leyfi til veðsetningar lóðarinnar Hallahvarfs 25

02

Bæjarráð - 3214. fundur

Frá yfirlögfræðingi. Beiðni MótX um leyfi til veðsetningar lóðarinnar Hallahvarfs 25

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

03

Bæjarstjórn - 1317. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 17.03.2025, lögð fram tillaga að úthlutun lóðarinnar Hallarhvarf 25. Lagt er til að bæjarráð geri eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Að lóðinni Hallahvarfi 25, Landnúmer 238603 verði úthlutað til MótX ehf., kt. 660505-2100.

Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur, Kolbeins Reginssonar og Helgu Jónsdóttur að lóðinni Hallahvarfi 25, Landnúmer 238603 verði úthlutað til MótX ehf., kt. 660505-2100.

04

Bæjarstjórn - 1317. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 17.03.2025, lögð fram tillaga að úthlutun lóðarinnar Hallarhvarf 25. Lagt er til að bæjarráð geri eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Að lóðinni Hallahvarfi 25, Landnúmer 238603 verði úthlutað til MótX ehf., kt. 660505-2100.

05

Bæjarráð - 3209. fundur

Ása Arnfríður vék af fundi kl. 7:55.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til að lóðinni Hallahvarfi 25, Landnúmer 238603 verði úthlutað til MótX ehf., kt. 660505-2100 og vísar málinu til afgreiðslu bæjartjórnar.

Bókun:

"Hér í málum 1 og 2 er verið að samþykkja síðustu úthlutanir fjölbýlishúsa í nýrri byggð í Vatnsendahvarfi. Enn og aftur hefur meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarflokks hafnað því að taka frá lóð til óhagnaðardrifinna byggingarfélaga en selur þess í stað hæstbjóðanda lóðirnar. Engri lóð hefur enn verið úthlutað til óhagnaðardrifinna byggingarfélaga í Kópavogi sem veldur einsleitni í uppbyggingu hverfa og vöntun á húsnæði fyrir ákveðinn hóp íbúa."

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Bókun:

"Líkt og meirihlutinn hefur margoft bent á greinir meiri- og minnihluta á um leiðir að því marki hvernig sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Hér er verið að auka framboð á lóðum í Kópavogi og slíkt framboð kemur öllum húsnæðismarkaðinum til góða. Mikið hefur verið kallað eftir auknu framboði íbúða á almennan markað og hér er er brugðist við því ákalli."

Orri V. Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson