Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hallahvarf 17-19 og Hallahvarf 21-23

Málsnúmer: 25031710

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1320. fundur

Frá yfirlögfræðingi, beiðni lóðarhafa Hallarhvarfs 17, XP7 ehf., um heimild til veðsetningar lóðarinnar.

02

Bæjarráð - 3214. fundur

Frá yfirlögfræðingi, beiðni lóðarhafa Hallarhvarfs 17, XP7 ehf., um heimild til veðsetningar lóðarinnar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.

03

Bæjarstjórn - 1317. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 17.03.2025, lögð fram tillaga að úthlutun lóðarinnar Hallahvarfi 17 í öðrum áfanga lóðarúthlutunar í Vatnsendahvarfi. Lagt er til að bæjarráð geri eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Að lóðinni Hallahvarfi 17, Landnúmer 238648, verði úthlutað til XP7 ehf., kt. 650624-3780.

04

Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur, Kolbeins Reginssonar og Helgu Jónsdóttur að lóðinni Hallahvarfi 17, Landnúmer 238648, verði úthlutað til XP7 ehf., kt. 650624-3780.

05

Bæjarráð - 3209. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 17.03.2025, lögð fram tillaga að úthlutun lóðarinnar Hallahvarfi 17 í öðrum áfanga lóðarúthlutunar í Vatnsendahvarfi. Lagt er til að bæjarráð geri eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Að lóðinni Hallahvarfi 17, Landnúmer 238648, verði úthlutað til XP7 ehf., kt. 650624-3780.

Ása Arnfríður vék af fundi kl. 7:55.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til að lóðinni Hallahvarfi 17, Landnúmer 238648, verði úthlutað til XP7 ehf., kt. 650624-3780 og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun:

"Hér í málum 1 og 2 er verið að samþykkja síðustu úthlutanir fjölbýlishúsa í nýrri byggð í Vatnsendahvarfi. Enn og aftur hefur meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarflokks hafnað því að taka frá lóð til óhagnaðardrifinna byggingarfélaga en selur þess í stað hæstbjóðanda lóðirnar. Engri lóð hefur enn verið úthlutað til óhagnaðardrifinna byggingarfélaga í Kópavogi sem veldur einsleitni í uppbyggingu hverfa og vöntun á húsnæði fyrir ákveðinn hóp íbúa."

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Bókun:

"Líkt og meirihlutinn hefur margoft bent á greinir meiri- og minnihluta á um leiðir að því marki hvernig sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Hér er verið að auka framboð á lóðum í Kópavogi og slíkt framboð kemur öllum húsnæðismarkaðinum til góða. Mikið hefur verið kallað eftir auknu framboði íbúða á almennan markað og hér er er brugðist við því ákalli."

Orri V. Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson