Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindisbréf innkaupanefndar

Málsnúmer: 2503189

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1323. fundur

Lagt fram uppfært erindisbréf innkaupanefndar til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum framlagt erindibréf innkaupanefndar, gegn atkvæðum Theodóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótu Kristinsdóttur, Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, Thelmu B. Árnadóttir og Þórarinn Ævarsson sitja hjá.


Undirrituð samþykkja ekki erindisbréf nefndarinnar í fyrirliggjandi mynd. Við teljum óásættanlegt að áheyrnarfulltrúar hafi hvorki tillögurétt né atkvæðisrétt í störfum nefndarinnar, enda dregur það úr lýðræðislegri þátttöku og möguleikum fulltrúa allra framboða til að hafa áhrif á ákvarðanatöku. Lýðræðisleg vinnubrögð krefjast þess að allir kjörnir fulltrúar, hvort sem þeir eiga sæti með atkvæðisrétt eða sem áheyrnarfulltrúar, geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri á formlegan hátt. Fulltrúar þeirra flokka sem undirrita þessa bókun lögðu í samráðsferli fram tillögur um að áheyrnarfulltrúar fengju tillögu- og bókunarrétt, en án árangurs. Við hvetjum til endurskoðunar á erindisbréfinu með það að markmiði að tryggja virka og málefnalega þátttöku allra fulltrúa í nefndarstarfi bæjarins.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir,

Theodóra S. Þorsteinsdóttir,

Bergljót Kristinsdóttir,

Thelma B. Árnadóttir

Þórarinn Ævarsson.


Erindisbréfið er í fullu samræmi við bæjarmálasamþykkt Kópavogsbæjar sem var samþykkt með öllum 11 atkvæðum bæjarstjórnar 26. nóvember 2024, en í 40. gr. bæjarmálasamþykktarinnar segir: „Áheyrnarfulltrúi hefur ekki tillögurétt eða rétt til að leggja fram bókun nema í bæjarráði, skipulagsráði, menntaráði og velferðarráði“.

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri Steinn Hilmarsson

Björg Baldursdóttir

Elísabet Sveinsdóttir

Gunnar Sær Ragnarsson

02

Bæjarráð - 3219. fundur

Lagt fram uppfært erindisbréf innkaupanefndar til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar breytingum að erindisbréfi innkaupanefndar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Innkaupanefnd - 4. fundur

Tekið á móti athugasemdum og ábendingum innkaupanefndar vegna breytinga á skipulagi Kópavogsbæjar. Lagt fram til umræðu.

Lagt fram.

04

Innkaupanefnd - 2. fundur

Dagsetningar funda innkaupanefndar fyrir árið 2025 samkvæmt niðurstöðum 1. fundar nefndarinnar.

Fundarhlé frá 15:35. Fundur hófst að nýju kl. 16:00.

Lagt fram.

05

Innkaupanefnd - 1. fundur

Erindisbréf innkaupanefndar og hlutverk nefndarfólks

Lagt fram.

06

Innkaupanefnd - 1. fundur

Ákveða fasta fundartíma og gera fundaráætlun 2025.

Fastir fundartímar settir, ákveðið að hafa þá 1. og 3. mánudag í mánuði, frá kl. 15:30.

07

Bæjarstjórn - 1316. fundur

Lögð fram drög að erindisbréfi innkaupanefndar.

Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum erindisbréf innkaupanefndar með áorðnum breytingum.

08

Bæjarráð - 3207. fundur

Lögð fram drög að erindisbréfi innkaupanefndar.

Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að erindisbréfi innkaupanefndar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.