Urriðaholt, norðurhluti. 4. áfangi. Flóttamannavegur. Umsagnarbeiðni.
Málsnúmer: 25033128
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 7. fundur
Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 27. mars 2025 um tillögu að breyttu deiliskipulagi norðurhluta Urriðaholts 4. áfanga fyrir Flóttamannaveg. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 31. mars 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 29. apríl 2025 var erindið lagt fram að nýju og var því vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Uppdrættir í mkv. 1:2000/1:1000 dags. 11. febrúar 2025.
Þá lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. apríl 2025.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. apríl 2025 samþykkt.
Skipulags- og umhverfisráð leggur sérstaka áherslu á þær ábendingar sem koma fram í niðurstöðum umsagnar skipulagsfulltrúa.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 21. fundur
Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 27. mars 2025 um tillögu að breyttu deiliskipulagi norðurhluta Urriðaholts 4. áfanga fyrir Flóttamannaveg. Uppdrættir í mkv. 1:1000 dags. 11. febrúar 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 31. mars 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
03
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 19. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 27. mars 2025 um tillögu að breyttu deiliskipulagi norðurhluta Urriðaholts 4. áfanga fyrir Flóttamannaveg.
Uppdrættir í mkv. 1:1000 dags. 11. febrúar 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.