Beiðni formanns bæjarráðs varðandi þóknanir bæjarfulltrúa Kópavogsbæjar árið 2024
Málsnúmer: 2504208
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3213. fundur
Frá skrifstofu áhættu og fjárstýringar, lögð fram umsögn dags. 21.04.2025 ásamt yfirliti yfir þóknanir bæjarfulltrúa, ráðs- og nefndarfulltrúa Kópavogsbæjar fyrir árið 2024.
Lagt fram.
02
Bæjarstjórn - 1318. fundur
Frá formanni bæjarráðs, lögð fram beiðni þar sem óskað er eftir yfirliti yfir þóknanir bæjarfulltrúa Kópavogsbæjar fyrir störf þeirra árið 2024, brotið niður í þóknanir fyrir setu í bæjarstjórn, ráðum og nefndum.
Bæjarstjórn vísar málinu til bæjarráðs til frekari undirbúnings.
Fundarhlé hófst kl. 19:43, fundi fram haldið kl. 20:07
03
Bæjarráð - 3211. fundur
Frá formanni bæjarráðs, lögð fram beiðni þar sem óskað er eftir yfirliti yfir þóknanir bæjarfulltrúa Kópavogsbæjar fyrir störf þeirra árið 2024, brotið niður í þóknanir fyrir setu í bæjarstjórn, ráðum og nefndum.
Viðaukatillaga:
Til viðbótar við þær upplýsingar sem óskað er eftir í upprunalegri tillögu, verði jafnframt veitt yfirlit yfir þóknanir til handa fulltrúum í öðrum nefndum, ráðum og stjórnum sem bæjarstjórn Kópavogs skipar fulltrúa í, svo sem stjórnum byggðasamlaga, stjórn skíðasvæðanna og svæðisskipulagsnefnd.
Yfirlitið skal ná yfir alla fulltrúa, óháð því hvort þeir séu jafnframt bæjarfulltrúar, og sundurliðast eftir setu í hverju og einu ráði, nefnd eða stjórn.
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bæjarráð vísar erindinu til skrifstofu áhættu- og fjárstýringar og óskar eftir að upplýsingarnar, bæði tillagan og viðaukatillagan verði tilbúnar fyrir næsta fund bæjarstjórnar.
Bókun:
"Undirrituð lagði fram tillögu sem samþykkt var á fundi bæjarráðs þann 30. janúar 2020, sem kvað á um að upplýsingar um laun og aðrar greiðslur til kjörinna fulltrúa í Kópavogi skyldu birtar á vef bæjarins á skýran og aðgengilegan hátt. Þrátt fyrir eftirgrennslan um stöðu málsins hefur sú framkvæmd enn ekki orðið að veruleika.
Undirrituð fagnar því þess vegna að formaður bæjarráðs leggi nú fram sambærilega fyrirspurn, þar sem ætla má að sú staðreynd að hún komi frá fulltrúa meirihlutaflokkanna auki líkur á að málið hljóti afgreiðslu og að viðeigandi upplýsingar verði loks gerðar aðgengilegar íbúum.
Gegnsæi í stjórnsýslu er grundvallaratriði í lýðræðislegu samfélagi og mikilvægt að almenningur hafi greiðan aðgang að upplýsingum um hvernig opinberu fé er varið, þar með talið um þóknanir til kjörinna fulltrúa fyrir störf á vegum sveitarfélagsins."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Hjördís Ýr Johnson vék af fundi kl. 12:00.