Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3213. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Indriði Ingi Stefánsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari
  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Ráðning áhættu- og fjárstýringarstjóra

Frá hæfnisnefnd, lögð fram tillaga að ráðningu ásamt rökstuðningi.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 12:45 vegna vanhæfis undir þessum lið.

Gestir véku af fundi kl. 13:01

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Ráðning umbóta- og þróunarstjóra

Frá hæfnisnefnd, lögð fram tillaga að ráðningu ásamt rökstuðningi.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir tók sæti að nýju kl.13:28 undir þessum lið.

Gestir véku af fundi kl. 13:44

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Ársreikningur Kópavogsbæjar 2024

Lögð fram drög að endurskoðunarskýrslu ársreiknings fyrir árið 2024, ásamt uppfærðum drögum að ársreikningi Kópavogsbæjar og tengdum félögum.

Lagt fram og kynnt.

Gestir véku af fundi kl. 14:40.

Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 14:40.

Bókun:

"Undirritaður telur framlögð gögn gefa góða mynd af stöðu mála og þakkar kynninguna, það engu að síður óhjákvæmilegt að gera athugasemd við að hafa ekki fengið tímanlega aðgang að gögnum málsins til að geta undirbúið sig fyrir umræður um það. "

Indriði I. Stefánsson

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2022-2026

Lagður fram viðauki við ráðningarsamning um starf bæjarstjóra.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Beiðni formanns bæjarráðs varðandi þóknanir bæjarfulltrúa Kópavogsbæjar árið 2024

Frá skrifstofu áhættu og fjárstýringar, lögð fram umsögn dags. 21.04.2025 ásamt yfirliti yfir þóknanir bæjarfulltrúa, ráðs- og nefndarfulltrúa Kópavogsbæjar fyrir árið 2024.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Gjaldskrár 2025

Frá menntasviði, lögð fram til samþykktar bæjarráðs uppfærð gjaldskrá varðandi tekjutengda afslætti á dvalargjöldum leikskóla ásamt reglum. Bæjarráð tók málið fyrir á fundi sínum þann 10.04.2025 og frestaði því.

Bæjarráð vísar framlagðri tillögu að breytingu á tekjuviðmiðum vegna tekjutengdra afslátta, dags. 7. apríl 2025 og reglum um tekjutengda afslætti á dvalargjöldum leikskóla, dags. 7. apríl 2025 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

07

Sumarnámskeið 2025 - gjaldskrár

Frá menntasviði, lögð fram til samþyktar bæjarráðs tillögur að breytingum á gjaldskrá sumarstarfa.

Bæjarráð vísar framlögðum breytingum á gjaldskrá sumarnámskeiða til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

08

Afmælis og tónlistarhátíð í Kópavogi

Frá Kópbois ehf., Paxal ehf. og Vinum hallarinnar ehf., lagt fram erindi þar lýst er yfir áhuga á að halda afmælis- og tónlistarhátíð í Kópavogi í júlí 2025. Samhliða lögð fram umsögn menntasviðs.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.

Ýmis erindi

09

Ósk um upplýsingar um fjárhagsleg áhrif nýgerðra kjarasamninga við kennara

Frá Innviðaráðuneyti, dags. 08.04.2025, lögð fram fyrirspurn varðandi fjárhagslega áhrif kjarasamninga.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Ýmis erindi

10

Fyrirspurn Landssamtaka Þroskahjálpar og ÖBÍ varðandi endurskoðun gjaldskrár fyrir fatlað fólk

Frá Þroskjahjálp, dags. 03.04.2024, lagt fram erindi þar sem óskað er upplýsinga um hverjar fyrirætlanir sveitarfélagsins eru varðandi endurskoðun á gjaldskrá vegna akstursþjónustu sveitarfélagsins fyrir fatlað fólk og hvenær ætla megi að endurskoðuð gjaldskrá taki gildi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Ýmis erindi

11

Til umsagnar 271. mál - Stefnur og aðgerðaráætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðarmála

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.dags. 10.04.2025, lagt fram til umsagnar 271. mál. Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun).

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar yfirlögfræðings.

Ýmis erindi

12

Til umsagnar 272. mál - Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 14.04.2025 sendir fram til umsagnar 272. mál. Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum).

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar yfirlögfræðings.

Ýmis erindi

13

Aðalfundur betri samgangna ohf 2025

Frá Betri samgöngum ohf., dags. 16.04.2025, lögð fram dagskrá aðalfundar sem haldinn verður 30.04.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 416. fundur frá 11.04.2025

Fundargerð í tíu liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

15

Menningar- og mannlífsnefnd - 4. fundur frá 09.04.2025

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

Innkaupanefnd - 1. fundur frá 14.04.2025

Fundargerð í sex liðum.

Bæjarráð frestar fundargerðinni til næsta fundar.

Fundargerðir nefnda

17

Fundargerð 973. fundar stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga frá 14.03.2025

Fundargerð frá 14.03.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18

Fundargerð 974. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 19.03.2025

Fundargerð frá 19.03.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19

Fundargerð 975. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.03.2025

Fundargerð frá 20.03.2025.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

20

Fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 04.04.2025

Fundargerð frá 04.04.2025

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

21

Fundargerð 270. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 21.03.2025

Fundargerð frá 21.03.2025.

Lagt fram.