Nýbýlavegur 1. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Skipulagslýsing.
Málsnúmer: 25043616
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 26. fundur
Lögð fram að lokinni kynningu tillaga skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2025 að skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir lóðina nr. 1 við Nýbýlaveg. Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni verði breytt úr verslun og þjónustu í íbúðabyggð. Skipulagslýsingin var kynnt á tímabilinu 29. janúar til 1. mars 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartíma.
Fundarhlé hófst kl. 16:15, fundi framhaldið kl. 17:33.
Skipulags- og umhverfisráð hefur yfirfarið athugasemdir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar og ákveður að heimila ekki frekari vinnu við gerð breytingar á aðalskipulagi á grundvelli fyrirliggjandi skipulagslýsingar dags. 14. nóvember 2025, uppf. 22. janúar 2026.
Bókun:
„Við afgreiðslu málsins er litið til þeirra athugasemda og ábendinga sem bárust á kynningartíma, sem og þeirra skipulagslegu sjónarmiða sem við eiga varðandi landnotkun, byggingarmagn og umhverfi svæðisins. Í ljósi þessa telja undirrituð ástæðu til að heimila ekki frekari vinnu við gerð breytingar á aðalskipulagi. Samkvæmt gildandi aðal- og deiliskipulagi svæðisins er gert ráð fyrir uppbyggingu verslunar og þjónustu á reitnum. Undirrituð telja mikilvægt að skoða áfram möguleg tækifæri til slíkrar uppbyggingar á lóðinni í samræmi við byggingarmagn í gildandi skipulagi og með tengingu frá Nýbýlavegi.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Bókun:
„Með ákvörðun meirihlutans um að auglýsa skipulagslýsinguna á Nýbýlaveg 1 skapaðist óvissa og öryggisleysi hjá íbúum í Lundi. Við fögnum ákvörðun meirihlutans um að fallast á þau sjónarmið og þær áherslur sem við höfum haft í öndvegi frá upphafi þessa máls.“
Hákon Gunnarsson, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.
Bókun:
„Í bókun meirihluta skipulagsráðs 19. janúar 2026 segir: „Í kynningu á skipulagslýsingu gefst tækifæri til að eiga samráð við íbúana enda leggur meirihlutinn ríka áherslu á að skipulagsvinnan fari fram í góðri sátt“. Að auglýsa skipulagslýsingu var upphafið á kynningar- og samráðsferlinu enda hefur alltaf verið lögð áhersla á vönduð vinnubrögð og samráð við íbúa í Lundi. Ferlið hefur sannað gildi sitt, þrátt fyrir margítrekaðar yfirlýsingar minnihlutans um annað.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Bókun:
„Víð fögnum stefnubreytingu meirihlutans í málinu. Allt frá árinu 2023 hafa Íbúar í Lundi án árangurs kallað eftir samráði um framtíð lóðarinnar, Raunverulegur vilji til samráðs hefur ekki komið fram fyrr af hálfu meirihlutans.“
Hákon Gunnarsson, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.
Bókun:
„Meirihlutinn furðar sig á þessari bókun minnihlutans. Nú var að ljúka formlegu samráðsferli við íbúa og aðra hagaðila og niðurstaðan er að breyta ekki aðalskipulagi á Nýbýlavegi 1.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
02
Bæjarstjórn - 1332. fundur
Lögð fram að nýju tillaga skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2025 skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir lóðina nr. 1 við Nýbýlaveg. Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni verði breytt úr verslun og þjónustu í íbúðabyggð. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. nóvember 2025 var afgreiðslu frestað.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum, gegn atkvæðum Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Helgu Jónsdóttur og Thelmu B. Árnadóttur.
03
Bæjarráð - 3243. fundur
Lögð fram að nýju tillaga skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2025 skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir lóðina nr. 1 við Nýbýlaveg. Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni verði breytt úr verslun og þjónustu í íbúðabyggð. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. nóvember 2025 var afgreiðslu frestað.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
04
Skipulags- og umhverfisráð - 22. fundur
Lögð fram að nýju tillaga skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2025 skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir lóðina nr. 1 við Nýbýlaveg. Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni verði breytt úr verslun og þjónustu í íbúðabyggð. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. nóvember 2025 var afgreiðslu frestað.
Fundarhlé kl. 17:33, fundi framhaldið kl. 18:06.
Samþykkt að framlögð skipulagslýsing verði kynnt með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Nýbýlavegur 1 er ein mikilvægasta og verðmætasta lóðin innan bæjarmarka Kópavogs. Fyrir liggur að breyta þarf landnotkun eða „tilgangi“ bygginga á lóðinni. Um það þarf Kópavogsbær að eiga viðræður við núverandi lóðarhafa og veghaldarann (Vegagerðina). Íbúar í grenndinni hafa sömuleiðis ríka hagsmuni af ákvörðun um ráðstöfun lóðarinnar og á raddir þeirra ber að hlusta. Það er ótímabært og gagnstætt hagsmunum íbúa og bæjarfélagsins að ákveða að þarna verði íbúabyggð eins og lagt er til í tillögunni. Við leggjumst gegn henni.“
Hákon Gunnarsson, Indriði Ingi Stefánsson, Helga Jónsdóttir og Andrés Pétursson.
Bókun:
„Núverandi svæði er í dag skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði en skipulagslýsingin gerir ráð fyrir að svæðið verði íbúðarbyggð. Meirihlutinn leggur áherslu á að vegtenging verði einungis frá Nýbýlavegi. Í skipulagsvinnu þarf að skoða byggingarheimildir, hæðir húsa og aðra skilmála varðandi frágang, ásýnd og gæði byggðar. Í kynningu á skipulagslýsingu gefst tækifæri til að eiga samráð við íbúana enda leggur meirihlutinn ríka áherslu á að skipulagsvinnan fari fram í góðri sátt.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
05
Skipulags- og umhverfisráð - 19. fundur
Lögð fram til afgreiðslu tillaga skipulagsfulltrúa að skipulagslýsingu dags. 14. nóvember 2025 fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir lóðina nr. 1 við Nýbýlaveg. Breyting felur í sér að svæði fyrir verslun og þjónustu (VÞ-5) er breytt í svæði fyrir íbúðarbyggð.
Afgreiðslu frestað.