Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Þjónustumiðstöð og hesthúsasvæði. Kjóavellir.

Málsnúmer: 2504777

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3217. fundur

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2025 um heimild til að hefja vinnu við breytingar á aðal- og deiliskipulagi vegna lóðar fyrir þjónustumiðstöð Kópavogs. Um er að ræða svæði norðan við reiðhöllina við Hestheima og mun afmarkast af sveitarfélagsmörkum við Garðabæ, Markavegi, Hestheimum og lóð reiðhallarinnar. Rúmlega helmingur svæðisins er í dag ónýttur en tæplega helmingur er nýttur sem heygeymsla hluta úr ári. Að öðru leiti er svæðið vannýtt. Í aðalskipulagi Kópavogs er svæðið skilgreint sem ÍÞ-7 nýtt íþróttasvæði tengt hestaíþróttum á Heimsenda og Kjóavöllum. Svæðið var áður skilgreint sem verslun og þjónusta og var minna. Stærð svæðis um 3-4 ha. Afmarka þarf svæðið nánar og vinna deiliskipulag. Stærð 6 ha. Landnotkunarflokki á um það bil 1,7 ha mun verða breytt úr íþróttasvæði í samfélagsþjónustu sem samkvæmt skipulagsreglugerð nr. 90/2013 er ætlað fyrir þjónustustofnanir ríkis, sveitarfélaga og eða annarra aðila. Uppfærsla á deiliskipulagi frá 2008 mun gerast samhliða breytingum á aðalskipulagi þar sem það verður fært nær nútímanum og raunverulegum aðstæðum á staðnum. Einnig lagt fram erindi deildarstjóra gatnadeildar dags. 7. apríl 2025 ásamt skýringarmynd af staðsetningu fyrirhugaðrar lóðar.

Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar sat fyrir svörum undir þessum lið.

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs og áhættu og fjárstýringarstjóra.

02

Skipulags- og umhverfisráð - 9. fundur

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2025 um heimild til að hefja vinnu við breytingar á aðal- og deiliskipulagi vegna lóðar fyrir þjónustumiðstöð Kópavogs. Um er að ræða svæði norðan við reiðhöllina við Hestheima og mun afmarkast af sveitarfélagsmörkum við Garðabæ, Markavegi, Hestheimum og lóð reiðhallarinnar. Rúmlega helmingur svæðisins er í dag ónýttur en tæplega helmingur er nýttur sem heygeymsla hluta úr ári. Að öðru leiti er svæðið vannýtt. Í aðalskipulagi Kópavogs er svæðið skilgreint sem ÍÞ-7 nýtt íþróttasvæði tengt hestaíþróttum á Heimsenda og Kjóavöllum. Svæðið var áður skilgreint sem verslun og þjónusta og var minna. Stærð svæðis um 3-4 ha. Afmarka þarf svæðið nánar og vinna deiliskipulag. Stærð 6 ha. Landnotkunarflokki á um það bil 1,7 ha mun verða breytt úr íþróttasvæði í samfélagsþjónustu sem samkvæmt skipulagsreglugerð nr. 90/2013 er ætlað fyrir þjónustustofnanir ríkis, sveitarfélaga og eða annarra aðila. Uppfærsla á deiliskipulagi frá 2008 mun gerast samhliða breytingum á aðalskipulagi þar sem það verður fært nær nútímanum og raunverulegum aðstæðum á staðnum. Einnig lagt fram erindi deildarstjóra gatnadeildar dags. 7. apríl 2025 ásamt skýringarmynd af staðsetningu fyrirhugaðrar lóðar.

Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar sat fyrir svörum undir þessum lið.

Skipulags- og umhverfisráð telur umrædda staðsetningu koma vel til greina undir þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar. Erindinu er vísað til bæjarráðs til greiningar á þörf og framkvæmd við nýtt húsnæði þjónustumiðstöðvarinnar.

03

Skipulags- og umhverfisráð - 8. fundur

Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2025 um heimild til að hefja vinnu við breytingar á aðal- og deiliskipulagi vegna lóðar fyrir þjónustumiðstöð Kópavogs. Um er að ræða svæði norðan við reiðhöllina við Hestheima og mun afmarkast af sveitarfélagsmörkum við Garðabæ, Markavegi, Hestheimum og lóð reiðhallarinnar. Rúmlega helmingur svæðisins er í dag ónýttur en tæplega helmingur er nýttur sem heygeymsla hluta úr ári. Að öðru leiti er svæðið vannýtt. Í aðalskipulagi Kópavogs er svæðið skilgreint sem ÍÞ-7 nýtt íþróttasvæði tengt hestaíþróttum á Heimsenda og Kjóavöllum. Svæðið var áður skilgreint sem verslun og þjónusta og var minna. Stærð svæðis um 3-4 ha. Afmarka þarf svæðið nánar og vinna deiliskipulag. Stærð 6 ha. Landnotkunarflokki á um það bil 1,7 ha mun verða breytt úr íþróttasvæði í samfélagsþjónustu sem samkvæmt skipulagsreglugerð nr. 90/2013 er ætlað fyrir þjónustustofnanir ríkis, sveitarfélaga og eða annarra aðila. Uppfærsla á deiliskipulagi frá 2008 mun gerast samhliða breytingum á aðalskipulagi þar sem það verður fært nær nútímanum og raunverulegum aðstæðum á staðnum.

Einnig lagt fram erindi deildarstjóra gatnadeildar dags. 7. apríl 2025 ásamt skýringarmynd af staðsetningu fyrirhugaðrar lóðar.

Frestað.