Bæjarráð - 3217. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Lagt fram til samþykktar uppfært uppbyggingarsamkomulag um Fannborgarreitinn.
Fundarhlé hófst kl. 9:49, fundi fram haldið kl. 10:17
Bæjarráð frestar erindinu.
Frá yfirlögfræðingi. Lagðir fram endurbættir skilmálar að úthlutun lóðarinnar Urðarhvarfs 12 til samþykktar bæjarráðs.
Niðurstaða Bæjarráð - 3216
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Niðurstaða
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa málinu til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð frestar erindinu.
Frá yfirlögfræðingi, tillaga um að lóðunum Hlíðarhvarfi 2 og 4 verði úthlutað til Kópavogsbrautar ehf.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til við bæjarstjórn að parhúsalóðunum Hlíðarhvarfi 2 og 4 verði úthlutað til Kópavogsbrautar ehf.
Frá yfirlögfræðingi, tillaga um að lóðuðunum Heiðarhvarfi 5 og 7 verði úthlutað til Fagrahúss ehf.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til við bæjarstjórn að parhúsalóðunum Heiðarhvarfi 5 og 7 verði úthlutað til Fagrahúss ehf.
Frá yfirlögfræðingi, umsögn um beiðni lóðarhafa Hæðarhvarfs 6 um framsal lóðarréttinda.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til við bæjarstjórn að lóðinni Hæðarhvarfi 6 verði úthlutað til BK10 ehf.
Frá yfirlögfræðingi, umsögn um beiðni lóðarhafa um heimild til veðsetningar lóðarinnar Hlíðarhvarfs 9.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur umbeðna veðheimild.
Erindi frá Garðabæ, dags. 23. maí 2025, er varðar leigusamning um landsvæði á Rjúpnahæð. Óskað er eftir formlegum viðræðum um lok á leigusambandi og aflýsingu leigusamnings úr þinglýsingarbókum.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar yfirlögfræðings.
Lagt fram erindi frá Náttúrufræðistofnun, dags. 21. maí 2025, endurskoðun og stækkun friðlands Gróttu.
Lagt fram.
Fundargerð í 35 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð tveim liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 10 liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
14.3 - 2208454 - Kársnes þróunarsvæði. Rammahluti aðalskipulags.
Lögð fram tillaga umhverfissviðs dags. 29.maí 2025 að rammahluta Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040 fyrir þróunarsvæðið (ÞR-1) á vestanverðu Kársnesi. Tillagan er unnin af ALTA og Kópavogsbæ. Viðfangsefni tillögunnar snýr einkum að áframhaldandi þróun svæðisins með sérstakri áherslu á gæði byggðar, góðar samgöngutengingar m.a. fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og almenningsrými. Tillagan var kynnt á vinnslustigi frá 16.janúar til 21. febrúar 2025. Tillögunni fylgir greining á áhrifum á stofnvegakerfið í dags. 16. maí 2025, sem VSÓ ráðgjöf vann, ásamt umferðargreiningu dags. 13. desember 2024.
Þá er einnig lagt fram minnisblað dags. 30. maí 2025 um þróun og breytingar á tillögunni frá kynningu á vinnslustigi.
Halldóra Hrólfsdóttir skipulagsráðgjafi frá Alta gerði grein fyrir erindinu og Ragnar Þór Þrastarson ráðgjafi frá VSÓ sat fyrir svörum.
Kristjana H Kristjánsdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Guðjóns Inga Guðmundssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar að framlögð tillaga verði auglýst með vísan til 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Ágrip maí 2025_Kársnes rammahluti aðalskipulags
- Kársnes rammahluti - Tillaga í auglýsingu, dags 29.05.2025
- Yfirlit yfir breytingar á rammahluta aðalskipulags fyrir vestanvert Kársens, dags. 30.05.2025
- Kársnes umferðagreining, dags.16.05.2025
- Umferðargreining Kársnestá, dags.13.12.2024
- Kynning ALTA á 9. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 2. júní 2025.
14.4 - 2504777 - Þjónustumiðstöð og hesthúsasvæði. Breyting á aðal- og deiliskipulagi Kjóavalla. Upphaf skipulagsvinnu.
Lagt fram erindi skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2025 um heimild til að hefja vinnu við breytingar á aðal- og deiliskipulagi vegna lóðar fyrir þjónustumiðstöð Kópavogs. Um er að ræða svæði norðan við reiðhöllina við Hestheima og mun afmarkast af sveitarfélagsmörkum við Garðabæ, Markavegi, Hestheimum og lóð reiðhallarinnar. Rúmlega helmingur svæðisins er í dag ónýttur en tæplega helmingur er nýttur sem heygeymsla hluta úr ári. Að öðru leiti er svæðið vannýtt. Í aðalskipulagi Kópavogs er svæðið skilgreint sem ÍÞ-7 nýtt íþróttasvæði tengt hestaíþróttum á Heimsenda og Kjóavöllum. Svæðið var áður skilgreint sem verslun og þjónusta og var minna. Stærð svæðis um 3-4 ha. Afmarka þarf svæðið nánar og vinna deiliskipulag. Stærð 6 ha. Landnotkunarflokki á um það bil 1,7 ha mun verða breytt úr íþróttasvæði í samfélagsþjónustu sem samkvæmt skipulagsreglugerð nr. 90/2013 er ætlað fyrir þjónustustofnanir ríkis, sveitarfélaga og eða annarra aðila. Uppfærsla á deiliskipulagi frá 2008 mun gerast samhliða breytingum á aðalskipulagi þar sem það verður fært nær nútímanum og raunverulegum aðstæðum á staðnum. Einnig lagt fram erindi deildarstjóra gatnadeildar dags. 7. apríl 2025 ásamt skýringarmynd af staðsetningu fyrirhugaðrar lóðar.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar sat fyrir svörum undir þessum lið.
Skipulags- og umhverfisráð telur umrædda staðsetningu koma vel til greina undir þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar. Erindinu er vísað til bæjarráðs til greiningar á þörf og framkvæmd við nýtt húsnæði þjónustumiðstöðvarinnar.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs og áhættu og fjárstýringarstjóra.
- Erindi skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2025
- dsk kjóavalla, hesthúsabyggð. kópavogur og garðabær_. kópavogur og garðabær_. kópavogur og garðabær
- Lóðardrög Þjónustumiðstöð-Layout1 (2)
- Erindi dags. 7. apríl 2025
- Glærur af 9. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 2. júní 2025
- Þarfagreining þjónustumiðstöðvar Kópavogs
- Til bæjarráðs - Greining á aðstöðuþörf Þjónustumiðstöðvar Kópavogs
14.6 - 2505604 - Kársnesbraut 108. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Lárusar Kristins Ragnarssonar arkitekts og Hrafnkels Odda Guðjónssonar lögmanns f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 108 við Kársnesbraut dags. 6. maí 2025 um breytingu á deiliskipulaginu „Hafnarbraut 2-10, Kársnesbraut 108-114“ fyrir lóðina nr. 108 við Kársnesbraut. Í breytingunni felst að breyta atvinnuhúsnæði á 2. hæð í íbúðarhúsnæði. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12. maí 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnisstjóra og var erindið lagt fram að nýju á embættisafgreiðslufundi þann 26. maí 2025 og var því vísað til skpipulags- og umhverfisráðs.
Þá lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. maí 2025.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. maí 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
14.7 - 24091148 - Breiðahvarf 2. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram til afgreiðslu, að lokinni auglýsingu tillaga skipulagsdeildar dags. 3. október 2024 að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Breiðahvarf. Flatarmál lóðarinnar er 4919 m² og á henni er einbýlishús á tveimur hæðum. Í breytingunni felst að skipta lóðinni upp sex lóðir. Lóðin þar sem húsið stendur í dag mun því minnka og vestan við hana er gert ráð fyrir nýrri einbýlishúsalóð með nýtingarhlutfallið 0,23. Til suðurs er gert ráð fyrir fjórum nýjum lóðum fyrir parhús með nýtingarhlutfallið 0,43. Uppdrættir í mkv. 1:2000 og 1:500 dags. 3. október 2024. Minnisblaði skipulagsdeildar dags. 4. október 2024.
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 7. október 2024 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Tillagan var auglýst frá 27. febrúar til 21. maí 2025, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
19
Fundargerð 34. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 26.05.2025
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
20
Beiðni bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um upplýsingar varðandi húsnæðismál mæðrastyrksnefndar
Beiðni bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um upplýsingar varðandi húsnæðismál mæðrastyrksnefndar.
Umræður.
Bókun:
Undirrituð óskar eftir upplýsingum um framvindu málsins í kjölfar væntanlegs fundar bæjarstjóra með fulltrúum Mæðrastyrksnefndar.
Bergljót Kristinsdóttir
21
Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs um að stöðva samning um kaup á Kjarna, launa- og mannauðskerfi.
Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs um að stöðva samning um kaup á Kjarna, launa- og mannauðskerfi.
Bæjarráð hafnar tillögunni með þremur atkvæðum, gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur.
Bókun:
"Málið hefur verið til umfjöllunar hjá Innkaupanefnd sem fengið hefur upplýsingar, bæði hjá deildarstjóra innkaupadeildar og verkkaupa. Undirrituð taka undir sameiginlega afgreiðslu innkaupanefndar, sem lagði áherslu á að launa- og mannauðskerfi yrði boðið út hið fyrsta þannig að nýr samningur gæti tekið við af núgildandi þriggja ára samningi."
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
22
Tillaga bæjarfulltrúa Viðreisnar, Samfylkingar, Vina Kópavogs og Pírata um boðun fundar með íbúum á Fannborgarreitnum
Tillaga:
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða án dráttar til fundar með íbúum á Fannborgarreitnum til að fara yfir stöðu skipulags svæðisins og áætlanir um framkvæmdir framundan. Áður en Kópavogsbær gengur frá uppbyggingarsamningi við framkvæmdaraðila þarf að hlusta á íbúa sem búa eiga við raskið sem fylgir framkvæmdum. Það er hlutverk Kópavogsbæjar að standa vörð um hagsmuni íbúa og tryggja þá í samningum við framkvæmdaraðila sem taka að sér uppbyggingu á þessu viðkvæma svæði.
Greinargerð:
Bæjarstjóri hefur svarað ítrekuðum óskum bæjarfulltrúa um fundi með íbúum og hagsmunaaðilum á miðbæjarreitnum þannig að ekki sé um neitt að tala fyrr en trúverðug og raunhæf áætlun liggi fyrir. Þá hefur hún lagt ríka áherslu á að tryggja aðgengismál allra íbúa meðan á framkvæmdum stendur. Nú þegar byggingaform hafa verið samþykkt í bæjarstjórn verður ekki undan því vikist að ræða við íbúa á framkvæmdasvæðinu. Hlusta þarf á þá og tryggja lögmæta hagsmuni þeirra í uppbyggingarsamningi, hvort heldur þeir lúta að aðgengi, hávaða, sprengingum eða öðrum áhyggjuefnum. Lýðræðislegt hlutverk, sem íbúar veita kjörnum fulltrúum í kosningum, verður aldrei framselt til einkaaðila með uppbyggingarsamningi. Ekki heldur samskipti og samráð við íbúa.
Bæjarráð frestar erindinu.