Bæjarráð - 3216. fundur frá 22.05.2025
Málsnúmer: 2505019F
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 9. fundur
2505001F - Skipulags- og umhverfisráð - 8. fundur frá 19.05.2025.
2410796 - Fannborgarreitur. Byggingaráform.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
25041263 - Auðbrekka 7. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
2112910 - Vatnsendablettur 241A. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
02
Bæjarstjórn - 1321. fundur
Funndargerð í 28 liðum.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 18:18, fundi fram haldið kl. 18:41.
Bókun undir máli nr. 5:
Þrátt fyrir góð fyrirheit um að starfsáætlun bæjarráðs lægi nú fyrir varðandi undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 hefur ekki bólað á henni enn.
Undirrituð kallar eftir starfsáætlun bæjarráðs og óskar eftir því að við undirbúning næstu fjárhagsáætlunar verði eftirfarandi aðilar kallaðir fyrir bæjarráð og geri þar grein fyrir verkefnum sínum og vinnuaðstöðu
Persónuverndarfulltrúi
Yfirmaður gæðamála
Innri endurskoðandi.
Bergljót Kristinsdóttir
Bókun:
Svör og skýringar bæjarstjóra varðandi stjórnkerfisbreytingarnar sýna glöggt að hún hefur engan skilning á hlutverki bæjarráðs, sem fer með framkvæmdastjórn bæjarins ásamt bæjarstjóra. Virðingarleysið fyrir þeirri staðreynd blasir við í þessu máli eins og öðrum.
Helga Jónsdóttir Vinir Kópavogs
Kolbeinn Reginsson Vinir Kópavogs
Sigurbjörg Egilsdóttir Píratar
Bergljót Kristinsdóttir Samfylking
Theodóra S. Þorsteinsdóttir Viðreisn
Bókun:
Ávirðingar minnihlutans í garð bæjarstjóra geta vart talist málefnalegar og því ekki svaraverðar. Skipulagsbreytingarnar voru samþykktar mótatkvæðislaust í bæjarstjórn og framkvæmdar af bæjarstjóra í framhaldinu. Skipulagsbreytingar sem hafa bein áhrif á hagi fólks geta verið flóknar og erfiðar.
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Sigrún Bjarnadóttir
Björg Baldursdóttir
Sigvaldi Egill Lárusson