Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1321. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Elísabet Berglind Sveinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 418. fundur frá 09.05.2025

Fundargerð í átta liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 3215. fundur frá 15.05.2025

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 3216. fundur frá 22.05.2025

Funndargerð í 28 liðum.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 18:18, fundi fram haldið kl. 18:41.

Bókun undir máli nr. 5:

Þrátt fyrir góð fyrirheit um að starfsáætlun bæjarráðs lægi nú fyrir varðandi undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 hefur ekki bólað á henni enn.

Undirrituð kallar eftir starfsáætlun bæjarráðs og óskar eftir því að við undirbúning næstu fjárhagsáætlunar verði eftirfarandi aðilar kallaðir fyrir bæjarráð og geri þar grein fyrir verkefnum sínum og vinnuaðstöðu

Persónuverndarfulltrúi

Yfirmaður gæðamála

Innri endurskoðandi.



Bergljót Kristinsdóttir


Bókun:

Svör og skýringar bæjarstjóra varðandi stjórnkerfisbreytingarnar sýna glöggt að hún hefur engan skilning á hlutverki bæjarráðs, sem fer með framkvæmdastjórn bæjarins ásamt bæjarstjóra. Virðingarleysið fyrir þeirri staðreynd blasir við í þessu máli eins og öðrum.

Helga Jónsdóttir Vinir Kópavogs

Kolbeinn Reginsson Vinir Kópavogs

Sigurbjörg Egilsdóttir Píratar

Bergljót Kristinsdóttir Samfylking

Theodóra S. Þorsteinsdóttir Viðreisn


Bókun:

Ávirðingar minnihlutans í garð bæjarstjóra geta vart talist málefnalegar og því ekki svaraverðar. Skipulagsbreytingarnar voru samþykktar mótatkvæðislaust í bæjarstjórn og framkvæmdar af bæjarstjóra í framhaldinu. Skipulagsbreytingar sem hafa bein áhrif á hagi fólks geta verið flóknar og erfiðar.

Orri Hlöðversson

Andri Steinn Hilmarsson

Sigrún Bjarnadóttir

Björg Baldursdóttir

Sigvaldi Egill Lárusson


3.10 - 25052264 - Úthlutun lóða Heiðarhvarf 9-11

Frá yfirlögfræðingi, tillaga um úthlutun lóðanna Heiðarhvarfs 9-11 til Fagmóts ehf.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til við bæjarstjórn að parhúsalóðunum Heiðarhvarfi 9 og 11 verði úthlutað til Fagmóts ehf.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur að parhúsalóðunum Heiðarhvarfi 9-11 til verði úthlutað til Fagmóts ehf.



3.11 - 25041007 - Útboð lóðar undir atvinnuhúsnæði. Urðarhvarf 12

Frá yfirlögfræðingi. Lagðir fram endurbættir skilmálar að úthlutun lóðarinnar Urðarhvarfs 12 til samþykktar bæjarráðs.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa málinu til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.



3.16 - 25013006 - Beiðni um afgreiðslu vegna endurfjármögnunar láns

Frá Sorpu bs. dags. 28.04.2025 (barst Kópavogsbæ 20.05.2025), lögð fram beiðni um samþykki vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna endurfjármögnunar, auk samþykki fyrir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga vegna uppbyggingar endurvinnslustöðvar að Lambhagavegi 14.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málunum til afgreiðlu bæjarstjórnar.

Fyrir hönd Kópavogsbæjar eru eftirtaldar tvær afgreiðslur bæjarstjórnar á lánveitingum til Sorpu bs., annars vegar allt að fjárhæð kr. 1.345.000.000,- og hins vegar að fjárhæð allt að fjárhæð kr. 639.000.000,- í samræmi við fyrirliggjandi lánasamninga:

Hin fyrri:

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir með með 9 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Sorpu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.345.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til framkvæmda og uppbyggingar á nýrri endurvinnslustöð á Lambhagavegi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn skuldbindur hér með sveitarfélagið, sem eiganda félagsins, til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félagið að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Ásdísi Kristjánsdóttur, kt. 280978-3459, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga, sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Hin síðari:

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir með 11 atkvæðum að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Sorpu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 639.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til að endurfjármagna lán sem tekið var vegna forvinnslulínu fyrir blandað sorp frá heimilum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn skuldbindur hér með sveitarfélagið, sem eiganda félagsins, til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félagið að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Ásdísi Kristjánsdóttur, kt. 280978-3459, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga, sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.



3.9 - 25052263 - Úthlutun lóða Heiðarhvarf 1-3.

Frá yfirlögfræðingi, tillaga að úthlutun lóðanna Heiðarhvarfs 1-3 til Fagmóts ehf.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur að leggja til við bæjarstjórn að parhúsalóðunum Heiðarhvarfi 1 og 3 verði úthlutað til Fagmóts ehf.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur að parhúsalóðunum Heiðarhvarfi 1 og 3 til verði úthlutað til Fagmóts ehf.


04

Forsætisnefnd - 239. fundur frá 22.05.2025

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

05

Menningar- og mannlífsnefnd - 5. fundur frá 14.05.2025

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

06

Innkaupanefnd - 3. fundur frá 05.05.2025

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

07

Innkaupanefnd - 4. fundur frá 19.05.2025

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

08

Ungmennaráð - 52. fundur frá 28.04.2025

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

09

Velferðar- og mannréttindaráð - 4. fundur frá 23.04.2025

Fundargerð í fimmtán liðum.

Lagt fram.

10

Velferðar- og mannréttindaráð - 5. fundur frá 12.05.2025

Fundargerð í tíu liðum.

Lagt fram.

11

Leikskólanefnd - 171. fundur frá 08.05.2025

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

12

Menntaráð - 144. fundur frá 20.05.2025

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

13

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 19. fundur frá 31.03.2025

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

14

Öldungaráð - 28. fundur frá 07.05.2025

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.


14.3 - 2002676 - Aðgerðaáætlun velferðarsviðs 2025

Verkefnastjóri velferðarsviðs kynnir aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.

Öldungaráð þakkar Jóhönnu Lilju Ólafsdóttur verkefnisstjóra velferðarsviðs góða kynningu á fyrirliggjandi aðgerðaráætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.

Öldungaráð telur nauðsynlegt að skoða aðgerðir til að rjúfa félagslega einangrun eldra fólks. Þekkt er að félagsleg einangrun er raunverulegt og alvarlegt vandamál í nútíma samfélögum og áhættuþáttur varðandi andlega og líkamlega heilsuskerðingu. Bent er sérstaklega á að úrræði skorti fyrir karlmenn, t.d. úrræði á borð við "Karlar í skúrum".

Öldungaráð skorar á bæjarstjórn að skoða möguleika á að koma upp úrræði á borð við "Karlar í skúrum" sem markvissa aðgerð til að rjúfa félagslega einangrun.

Bæjarstjórn þakkar öldungaráði fyrir ábendinguna og vísar erindinu til bæjarstjóra til frekari rýni.



14.4 - 25021243 - Upplýsingar um biðlista eftir stuðningsþjónustu

Á fundi sínum þann 10. febrúar sl. undir liðnum Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs, lagði velferðar- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar fram eftirfarandi bókun:

Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að fá yfirlit yfir lengd biðtíma eftir félagslegri þjónustu: Hversu lengi hafa þeir beðið sem hafa verið lengst á biðlista eftir þjónustu velferðarsviðs?

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar þann 10. mars undir liðnum, 25021243-Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um biðlista, var lagt fram minnisblað velferðarsviðs, dags. 3. mars.

Minnisblað velferðarsviðs er hér með kynnt öldungaráði.

Í minnisblaði vegna biðlista dags. 3.3.2025 kemur fram að þjónusta við nýjan notanda fer ekki af stað fyrr en annar notandi hættir að þiggja þjónustu. Í febrúarmánuði 2025 voru 29 einstaklingar á bið eftir þjónustu og hefur biðlistinn lengst síðan.
Kópavogsbær sem sveitarfélag hefur vaxið mikið á undanförnum árum og heldur enn áfram að vaxa. Fjöldi stöðugilda í félagslegri heimaþjónustu hefur þó ekki aukist í hlutfalli við fjölgun fólks með stuðningsþarfir. Öldungaráð skorar á bæjarstjórn að forgangsraða fjármagni í þágu þjónustu við eldra fólk í samræmi við markmið um að styðja fólk til að búa sem lengst heima.

Bæjarstjórn þakkar öldungaráði fyrir ábendinguna og vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.


15

Skipulags- og umhverfisráð - 8. fundur frá 19.05.2025

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.


15.3 - 2410796 - Fannborgarreitur. Byggingaráform.

Lögð fram að nýju í samræmi við skipulagsskilmála drög Nordic office of architecture f.h. lóðarhafa að byggingaráformum dags. 17. mars 2025. Einnig eru lögð fram uppfærð drög að aðkomuáætlun dags. 15. maí 2025, uppfærð drög að merkingaáætlun dags. 22. apríl 2025, frum-framkvæmdaáætlun ódags., og minnisblað um framkvæmdafasa dags. 14. maí 2025, unnið af Örugg verkfræðistofu.
Drög að samskiptaáætlun um upplýsingagjöf til hagsmunaaðila á svæðinu á framkvæmdatíma voru kynnt á fundinum.
Grétar Snorrason og Hjalti Brynjarsson frá Nordic arkitektum, Elvar Ingi Jóhannesson frá Örugg verkfræðistofu, Jóhann Sindri Pétursson frá Landmótum og Eyrún Valþórsdóttir arkitekt gerðu grein fyrir erindinu.
Bergþóra Benediktsdóttir og Agnar Tr. Lemacks frá Aton, samskipta- og hönnunarstofu, gerðu grein fyrir drögum að samskiptaáætlun.
Díana Berglind Valbergsdóttir verkefnastjóri og Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

Fundarhlé kl. 17:58, fundi framhaldið kl. 19:05.

Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð drög að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025. Afgreitt með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Andra Steins Hilmarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Leós Snæs Péturssonar.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:
„Fyrirhuguð afgreiðsla málsins fer ekki saman við bókanir minni- og meirihluta ráðsins við mál 2410796 frá 17. mars 2025 sem gerðu ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila þegar byggingaráform lægju fyrir. Nú liggja áformin fyrir og til stendur að vísa til bæjarstjórnar til samþykktar en kynningarfundir hafa ekki enn verið haldnir. Standa ætti við bókanir frá 17. mars 2025 og halda fundina áður en málinu er vísað til bæjarstjórnar.“
Indriði Ingi Stefánsson, Leó Snær Pétursson, Helga Jónsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir.

Bókun:
„Lögð verður áhersla á góða kynningu gagnvart íbúum á svæðinu í kring og öðrum hagaðilum eins og segir í bókun meirihlutans frá 17. mars. Þar ávarpaði meirihlutinn að ekki væri tilefni til að halda upplýsingafund fyrr en byggingaráform lægju fyrir, en reikna má með því að þau verði samþykkt og liggi fyrir eftir næsta fund bæjarstjórnar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Byggingaráform sem nú eru kynnt fyrir Fannborgarreit og Traðarreit vestur eru staðfesting á því hversu krefjandi deiliskipulag reitanna er í uppbyggingu. Byggingaráformin eru ekki tæk til afgreiðslu því enn hefur ekki tekist að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra á byggingartíma. Ekkert samráð hefur verið við íbúa í nágrenni uppbyggingarinnar sem verða fyrir dæmafáu raski á uppbyggingartíma. Ekkert samráð hefur heldur verið við hagsmunaaðila, eins og kirkjuna og menningarstofnanirnar, sem munu búa við að bílastæðum í grenndinni fækkar um marga tugi á uppbyggingartímanum. Verst er þó að ekkert hefur verið rætt við íbúa í Fannborg 1-9 en einu lausnirnar sem lagðar eru til fyrir aðgengi hreyfihamlaðra íbúa í húsunum og til að tryggja brunavarnir byggjast á samkomulagi við þá.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Mjög hefur verið vandað til undirbúnings þessa verkefnis enda er gengið lengra en skipulagslög kveða á um með því að taka byggingaráformin til umfjöllunar hjá ráðinu. Umrædd byggingaráform sem við höfum fengið til umfjöllunar samræmast deiliskipulagi. Ekki er hægt að ráðast í jafn umfangsmikla uppbyggingu og er framundan á Fannborgarreit og Traðarreit vestur öðruvísi en að eitthvað rask verði á framkvæmdatíma. Kópavogsbær hefur lagt ríka áherslu á að slíkt rask verði lágmarkað eins og kostur er og að tryggð verði vönduð upplýsingagjöf til íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Í ljósi upptalningar minnihlutans á meintum ágöllum byggingaráformanna er meirihlutanum skylt að koma því á framfæri að framkvæmdaaðila er gert að uppfylla ströng skilyrði fyrir aðkomu- og merkingaráætlun og sýna fram á að þeim sé mætt. Öðruvísi fæst ekki útgefið byggingarleyfi á framkvæmdina.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Í þeim gögnum sem liggja fyrir þessum fundi eru skilyrði fyrir aðgengi hreyfihamlaða ekki uppfyllt.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Byggingarfulltrúi mun ekki samþykkja byggingaráform nema lögum og skilyrðum sé fullnægt.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.



15.4 - 2502435 - Traðareitur vestari. Byggingaráform.

Lögð fram að nýju í samræmi við skipulagsskilmála drög Nordic office of architecture f.h. lóðarhafa að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025 ásamt kynningu dags. 17. mars 2025 og drögum að sérteikningu lóðar dags. 30. apríl 2025.
Einnig eru lögð fram uppfærð drög að aðkomuáætlun dags. 15. maí 2025, uppfærð drög að merkingaáætlun dags. 22. apríl 2025, frum-framkvæmdaáætlun ódags., og minnisblað um framkvæmdafasa dags. 14. maí 2025, unnið af Örugg verkfræðistofu.
Drög að samskiptaáætlun um upplýsingagjöf til hagsmunaaðila á svæðinu á framkvæmdatíma vorukynnt á fundinum.
Grétar Snorrason og Hjalti Brynjarsson frá Nordic arkitektum, Elvar Ingi Jóhannesson frá Örugg verkfræðistofu, Jóhann Sindri Pétursson frá Landmótum og Eyrún Valþórsdóttir arkitekt gerðu grein fyrir erindinu.
Bergþóra Benediktsdóttir og Agnar Tr. Lemacks frá Aton, samskipta- og hönnunarstofu, gerðu grein fyrir drögum að samskiptaáætlun.
Díana Berglind Valbergsdóttir og Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð drög að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025. Afgreitt með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Andra Steins Hilmarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Leós Snæs Péturssonar.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:
„Fyrirhuguð afgreiðsla málsins fer ekki saman við bókanir minni- og meirihluta ráðsins við mál 2410796 frá 17. mars 2025 sem gerðu ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila þegar byggingaráform lægju fyrir. Nú liggja áformin fyrir og til stendur að vísa til bæjarstjórnar til samþykktar en kynningarfundir hafa ekki enn verið haldnir. Standa ætti við bókanir frá 17. mars 2025 og halda fundina áður en málinu er vísað til bæjarstjórnar.“
Indriði Ingi Stefánsson, Leó Snær Pétursson, Helga Jónsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir.

Bókun:
„Lögð verður áhersla á góða kynningu gagnvart íbúum á svæðinu í kring og öðrum hagaðilum eins og segir í bókun meirihlutans frá 17. mars. Þar ávarpaði meirihlutinn að ekki væri tilefni til að halda upplýsingafund fyrr en byggingaráform lægju fyrir, en reikna má með því að þau verði samþykkt og liggi fyrir eftir næsta fund bæjarstjórnar.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Byggingaráform sem nú eru kynnt fyrir Fannborgarreit og Traðarreit vestur eru staðfesting á því hversu krefjandi deiliskipulag reitanna er í uppbyggingu. Byggingaráformin eru ekki tæk til afgreiðslu því enn hefur ekki tekist að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra á byggingartíma. Ekkert samráð hefur verið við íbúa í nágrenni uppbyggingarinnar sem verða fyrir dæmafáu raski á uppbyggingartíma. Ekkert samráð hefur heldur verið við hagsmunaaðila, eins og kirkjuna og menningarstofnanirnar, sem munu búa við að bílastæðum í grenndinni fækkar um marga tugi á uppbyggingartímanum. Verst er þó að ekkert hefur verið rætt við íbúa í Fannborg 1-9 en einu lausnirnar sem lagðar eru til fyrir aðgengi hreyfihamlaðra íbúa í húsunum og til að tryggja brunavarnir byggjast á samkomulagi við þá.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Mjög hefur verið vandað til undirbúnings þessa verkefnis enda er gengið lengra en skipulagslög kveða á um með því að taka byggingaráformin til umfjöllunar hjá ráðinu. Umrædd byggingaráform sem við höfum fengið til umfjöllunar samræmast deiliskipulagi. Ekki er hægt að ráðast í jafn umfangsmikla uppbyggingu og er framundan á Fannborgarreit og Traðarreit vestur öðruvísi en að eitthvað rask verði á framkvæmdatíma. Kópavogsbær hefur lagt ríka áherslu á að slíkt rask verði lágmarkað eins og kostur er og að tryggð verði vönduð upplýsingagjöf til íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Í ljósi upptalningar minnihlutans á meintum ágöllum byggingaráformanna er meirihlutanum skylt að koma því á framfæri að framkvæmdaaðila er gert að uppfylla ströng skilyrði fyrir aðkomu- og merkingaráætlun og sýna fram á að þeim sé mætt. Öðruvísi fæst ekki útgefið byggingarleyfi á framkvæmdina.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:
„Í þeim gögnum sem liggja fyrir þessum fundi eru skilyrði fyrir aðgengi hreyfihamlaða ekki uppfyllt.“
Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:
„Byggingarfulltrúi mun ekki samþykkja byggingaráform nema lögum og skilyrðum sé fullnægt.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.



15.7 - 25041263 - Auðbrekka 7. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga umhverfissviðs dags. 10. apríl 2025 að breytingu á deiliskipulagi Auðbrekku - Þróunarsvæðis fyrir lóðina nr. 7 við Auðbrekku. Í breytingunni felst færsla á lóðarmörkum um 4,3 m til austurs á vesturhluta lóðarinnar og norðvesturhorni vegna aðkomuvegar sem skilgreindur er í gildandi deiliskipulagi. Lóðarstærð breytist úr 694 m² í 578 m².
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 10. apríl 2025.

Samþykkt með tilvísun í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.



15.8 - 2112910 - Vatnsendablettur 241A. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram uppfærð tillaga umhverfissviðs að breytingu á deiliskipulagi við Vatnsendablett 241A dags. 9. maí 2025. Í breytingunni felst að lóðinni verði skipti í tvær lóðir og að heimilt verði að reisa einbýlishús á einni hæð ásamt kjallara á hvorri lóð í samræmi við 2.2.6 gr. eignarnámssáttar Kópavogsbæjar og ábúanda Vatnsenda dags. 30. janúar 2007.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 9. maí 2025 ásamt greingargerð og skýringarmyndum.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. maí 2025.

Samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.


16

Fundargerð 605. fundar stjórnar SSH frá dags 05.05.2025

Fundargerð 605. fundar stjórnar SSH frá dags 05.05.2025.

Lagt fram.

17

Fundargerð 606. fundar stjórnar SSH frá 05.05.2025

Fundargerð 606. fundar stjórnar SSH frá 05.05.2025.

Lagt fram.

18

Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16.05.2025

Fundargerð 979. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16.05.2025.

Lagt fram.

19

Fundargerð 52. eigendafundar stjórnar Strætó frá 14.05.2025

Fundargerð 52. eigendafundar stjórnar Strætó frá 14.05.2025.

Lagt fram.