Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs um að stöðva samning um kaup á Kjarna, launa- og mannauðskerfi.
Málsnúmer: 25052413
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3217. fundur
Tillaga bæjarfulltrúa Pírata, Viðreisnar, Samfylkingar og Vina Kópavogs um að stöðva samning um kaup á Kjarna, launa- og mannauðskerfi.
Bæjarráð hafnar tillögunni með þremur atkvæðum, gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur.
Bókun:
"Málið hefur verið til umfjöllunar hjá Innkaupanefnd sem fengið hefur upplýsingar, bæði hjá deildarstjóra innkaupadeildar og verkkaupa. Undirrituð taka undir sameiginlega afgreiðslu innkaupanefndar, sem lagði áherslu á að launa- og mannauðskerfi yrði boðið út hið fyrsta þannig að nýr samningur gæti tekið við af núgildandi þriggja ára samningi."
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson
02
Bæjarráð - 3216. fundur
Frá bæjarfulltrúum Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, dags. 20.05.2025, lögð fram tillaga um að stöðva samning um kaup á Kjarna, launa- og mannauðskerfi.
Bæjarráð frestar erindinu.