Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi frá fyrrverandi persónuverndarfulltrúa Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 2505588

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3216. fundur

Á fundi bæjarráðs þann 08.05.2025 var lagt fram erindi frá fyrrverandi persónuverndarfulltrúa Kópavogsbæjar. Bæjarráð fól bæjarritara að taka saman upplýsingar er lúta að fyrirkomulagi starfs persónuverndarfulltrúa, ásamt svari við athugasemdum fyrrverandi persónuverndarfulltrúa. Nú lagt fram frá bæjarritara minnisblað þar fram koma umbeðnar upplýsingar.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 10:27, fundi fram haldið kl. 10:59

Fyrirspurn:

"Á hvaða lagaheimild byggjast samskiptareglur bæjarstjórnar um ábyrgð og starfshætti ráðinna stjórnenda, kjörinna fulltrúa og nefndarmanna við stjórnsýslu Kópavogsbæjar frá 2012?"

Helga Jónsdóttir


Bókun:

"Bæjarritari segir að persónuverndarfulltrúi hafi aðgang að æðsta stjórnstigi bæjarins, hvort sem það er bæjarstjórn eða bæjarstjóri og bæjarritari Furðu sætir að ekki er getið um þá grundvallarstaðreynd að bæjarráð fer, ásamt bæjarstjóra, með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins. Bæjarráð hefur jafnframt eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins. Við blasir að það er stjórnstig kjörinna fulltrúa, sem persónuverndarfulltrúi á að eiga aðgang að til að ræða eftirlit sitt og viðkvæm viðfangsefni. Opnir bæjarstjórnarfundir eru ekki vettvangur fyrir slíka umræðu. Ráðnir starfsmenn, hvort heldur er bæjarstjóri eða bæjarritari, eru heldur ekki rétti farvegurinn til að tryggja nauðsynlega umgjörð um sjálfstætt eftirlit persónuverndarfulltrúa með framkvæmd þessara mála hjá Kópavogsbæ.

Mál persónuverndarfulltrúa er til áréttingar á nauðsyn þess að bæjarráð vinni án dráttar starfslýsingu fyrir bæjarstjóra og erindisbréf fyrir bæjarráð. Kjörnir fulltrúar almennings þurfa að afmarka hvað felst í því að bæjarstjóri fari með daglegan rekstur og hvaða verkefni eru þess eðlis að fjalla verði um þau í bæjarráði. Hvort tveggja fellur undir þá endurskoðun bæjarmálasamþykktar og erindisbréfa sem nú er að ljúka."

Helga Jónsdóttir, Vinir Kópavogs

Bergljót Kristinsdóttir, Samfylking

Theodóra S. Þorsteinsdóttir, Viðreisn

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Píratar


Bókun:

"Frá gildistöku laga nr. 90/2018 hefur Kópavogsbær tekið hlutverk persónuverndarfulltrúa alvarlega og leitast við að uppfylla lagakröfur um sjálfstæði og faglegt hlutverk hans. Staða persónuverndarfulltrúa hefur ávallt falið í sér aðgang að æðsta stjórnunarstigi, honum hefur staðið til boða að skila skýrslum og koma sjónarmiðum sínum þannig beint á framfæri við bæjarráð.

Minnisblað bæjarritara veitir góða yfirsýn yfir stöðu persónuverndarmála hjá sveitarfélaginu og staðfestir að persónuverndarmálum í Kópavogi er háttað með sambærilegum hætti og þekkist hjá nágrannasveitarfélögum."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri Steinn Hilmarsson

02

Bæjarstjórn - 1320. fundur

Erindi frá fyrrverandi persónuverndarfulltrúa Kópavogsbæjar. Mál sett á dagskrá bæjarráðs að beiðni bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur.

03

Bæjarráð - 3214. fundur

Erindi frá fyrrverandi persónuverndarfulltrúa Kópavogsbæjar. Mál sett á dagskrá bæjarráðs að beiðni bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur.

Lagt fram.

Umræður.

Bæjarráð felur bæjarritara að taka saman upplýsingar er lúta að fyrirkomulagi starfs persónuverndarfulltrúa, ásamt svari við athugasemdum fyrrverandi persónuverndarfulltrúa.

Bókun:

"Kveðjubréf persónuverndarfulltrúa felur í sér þau nýju tíðindi að hann hafi frá því hann tók við starfi 2018 reynt árangurslaust að koma á reglubundnu samtali við æðstu stjórnendur sveitarfélagsins og síðustu 3-4 árin einnig markvisst reynt að fá aðgengi að bæjarstjórn.  Við hörmum að bæjarráð hafi aldrei fengið tækifæri til umræðu við persónuverndarfulltrúa um verkefni hans og starfsaðstöðu.  Fullnægjandi varsla persónuupplýsinga og framkvæmd löggjafar þar um er jafnmikilvæg hjá Kópavogsbæ og öðrum aðilum eins og lögreglu og saksóknara.  Það er ámælisvert að bæjarráði hafi ekki verið gert ljóst mat persónuverndarfulltrúa á nauðsyn þess að styrkja starfið og tryggja hagsmuni allra þeirra sem eiga upplýsingar varðveittar hjá Kópavogsbæ."

Bergljót Kristinsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir


Bókun:

"Meirihlutinn tekur undir þau sjónarmið að mikilvægt er að halda vel utan um mál er lúta að persónuvernd í starfsemi sveitarfélaga. Persónuverndarfulltrúa stóð ávallt til boða að koma sínum áherslum á framfæri með reglulegum og formlegum hætti til bæjarráðs. Fullyrðingar um annað eru því ekki á rökum reistar."

Orri V. Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson