Bæjarlind 8-10. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 2507150
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 13. fundur
Lögð fram að nýju fyrirspurn Jóhönnu Helgadóttur arkitekts dags. 28. maí 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 8-10 við Bæjarlind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis verði heimilað að byggja íbúðarhúsnæði á lóðinni. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 7. júlí 2025 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Þá lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. ágúst 2025.
Afgreiðslu frestað.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 11. fundur
Lögð fram til kynningar fyrirspurn Jóhönnu Helgadóttur arkitekts dags. 28. maí 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 8-10 við Bæjarlind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis verði heimilað að byggja íbúðarhúsnæði á lóðinni.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.