Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni um framlag menningar- og mannlífsnefndar til sameiginlegra viðburða menningarhúsanna 2026

Málsnúmer: 25093373

Ferill máls

01

Menningar- og mannlífsnefnd - 11. fundur

Beiðni um framlag nefndarinnar til menningarhúsanna árið 2026.

Nefndin samþykkir að veita menningarhúsunum og viðburðum á vegum málaflokksins framlag að upphæð kr. 30.050.000 skv. hjálagðri beiðni.

02

Bæjarráð - 3233. fundur

Frá deildarstjóra greingardeildar, dags. 27.10.2025, lagt fram svar við fyrirspurn Bergljótar Kristinsdóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar, um reiknað framlag til menningarstjóðs.

Lagt fram.

Umræður.

03

Menningar- og mannlífsnefnd - 8. fundur

Beiðni um framlag menningar- og mannlífsnefndar til sameiginlegra viðburða menningarhúsanna 2026.

Lagt fram og kynnt. Afgreiðslu frestað.

Gestir:

Ingólfur Arnarson deildarstjóri greiningardeildar kl. 8:15-8:35

Vigdís Jakobsdóttir verkefna- og viðburðastjóri menningarmála kl. 8:38-8:56

Bókun:

Menningar- og mannlífsnefnd ítrekar fyrri bókun og óskar eftir að tekið verði tillit til breyttrar bæjarmálasamþykktar við gerð fjárhagsáætlunar. Í þessu samhengi bendir nefndin á að samkvæmt reglum sjóðsins á 0,5% af 6,7% útsvarsstofni Kópavogsbæjar að renna í sjóðinn nema annað sé ákveðið við gerð fjárhagsáætlunar.

04

Menningar- og mannlífsnefnd - 7. fundur

Beiðni um framlag nefndarinnar til sameiginlegra verkefna og hátíða menningarhúsanna 2026.

Menningar- og mannlífsnefnd hefur fengið tillögur og óskir menningarhúsanna og MEKÓ um framlag úr Lista- og menningarsjóði Kópavogs til umfjöllunar. Ljóst er að með breyttri bæjarmálasamþykkt sækja menningarhúsin um fjölbreyttari verkefni úr sjóðnum, sem áður voru m.a. styrkt af öðrum nefndum sem lagðar hafa verið af. Þá er óljóst hvort sum þeirra rúmist innan reglna sjóðsins. Nefndin vekur athygli á að samkvæmt reglum sjóðsins á 0,5% af 6,7% útsvarsstofni Kópavogsbæjar að renna í sjóðinn nema annað sé ákveðið við gerð fjárhagsáætlunar.

Málinu frestað.