Menningar- og mannlífsnefnd - 11. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
- Jónas Skúlason - aðalfulltrúi
- Helga Hauksdóttir - varaformaður
- Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalfulltrúi
- Indriði Ingi Stefánsson - aðalfulltrúi
- Ísabella Leifsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllÍsabella Leifsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Guðmundur Gunnarsson - aðalmaðurBoðaði forföllGuðmundur Gunnarsson - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Vilborg Soffía Karlsdóttir
Ritari
- Soffía Karlsdóttir
Dagskrá fundar
Val á nýju útilistaverki í Kópavogi.
Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að taka málið áfram samkvæmt hugmyndum ráðgjafanefndar og í samtali við umhverfissvið og forstöðumann Gerðarsafns. Nefndin leggur áherslu á að horft verði til allra hverfa bæjarins við val á staðsetningu verksins. Jafnframt brýnir nefndin fyrir bæjarstjórn að gert sé ráð fyrir list í almannarými í nýjum hverfum bæjarins.
02
Beiðni um framlag menningar- og mannlífsnefndar til sameiginlegra viðburða menningarhúsanna 2026
Beiðni um framlag nefndarinnar til menningarhúsanna árið 2026.
Nefndin samþykkir að veita menningarhúsunum og viðburðum á vegum málaflokksins framlag að upphæð kr. 30.050.000 skv. hjálagðri beiðni.
Erindi frá bæjarráði. Breiðablik sækir um 6.000.000 kr. styrk til ritunar sögu félagsins.
Nefndin telur verkefnið spennandi þrátt fyrir að það falli ekki að reglum sjóðsins. Nefndin vísar beiðninni til lýðheilsu- og íþróttanefndar.
Félag heyrnalausra sækir um 800.000 kr. styrk vegna Norrænnar menningarhátíðar á Selfossi sumarið 2026.
Nefndin getur því miður ekki orðið við beiðninni.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs sækir um 1.000.000 kr. styrk til að aðstoða skjólstæðinga sína.
Nefndin getur því miður ekki orðið við beiðninni.
Einstaklingur óskar eftir 1.600.000 kr. styrk vegna 3-4 útiviðburða í Kópavogi sumarið 2026.
Nefndin getur því miður ekki orðið við beiðninni og bendir umsækjanda á umsóknarfrest aðalúthlutunar sjóðsins.
Ungikór, Landssamtök barna- og ungmennakóra á Íslandi sækir um 825.000 kr. styrk vegna lokatónleika í Kópavogi í maí 2026.
Nefndin samþykkir að veita Ungikór styrk að upphæð kr. 250.000 til tóleikahalds.
Sirkushópur sækir um 330.000 kr. styrk til að halda sirkussýningu í Kópavogi.
Nefndin felur forstöðumanni menningarmála að finna hópnum stað í dagskrá menningarhúsanna.
Fyrirspurn vegna Kópvogsblóts.
Nefndin þakkar fyrir góða ábendingu sem var rædd í nefndinni.
Málefni 17. júní hátíðarhalda í Kópavogi.
Nefndin vill halda umræðunni áfram með gögnum um kosti og galla hátíðarinnar.
Vettvangsferð nefndarmanna vegna nýrrar menningarmiðstöðvar.
Nefndarmenn þakka góða kynningu og móttöku hjá Heimum í Smáralind þar sem áform um nýja menningarmiðstöð voru kynnt.