Þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029 - seinni umræða
Málsnúmer: 25093861
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1329. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029 til seinni umræðu.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri, lagði fram og gerði grein fyrir þriggja ára fjárhagsáætlun og lagði til að hún yrði samþykkt.
Forseti bar undir fundinn tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árin 2027-2029.
Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun fyrir árin 2027-2029 með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og Bergljótar Kristinsdóttur.
02
Bæjarstjórn - 1328. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029 til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2027-2029 til síðari umræðu með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Hákonar Gunnarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
03
Bæjarráð - 3233. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029.
Umræður.
Gestir véku af fundi kl. 10:38
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leggja framlagða tillögu að þriggja ára fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árin 2027-2029 fyrir bæjarstjórn til umræðu og afgreiðslu.