Bæjarstjórn - 1328. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllBergljót Kristinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun 2026 til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2026 til síðari umræðu með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Hákonar Gunnarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
Fundarhlé hófst kl. 18:05, fundi fram haldið kl. 18:40
Tillögur frá bæjarfulltrúa Viðreisnar:
1. Að unnin verði samgöngustefna fyrir Kópavogsbæ.
2. Að umferðaröryggisáætlun verði endurnýjuð. Sú síðasta er frá árinu 2012.
3. Að göngu- og hjólreiðaáætlun verði gerð.
Undirrituð óskar eftir að tillögunum verði vísað til bæjarstjóra sem taki afstöðu til tillagnanna fyrir síðari umræðu fjárhagsáætlunar.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögunum til bæjarstjóra á milli umræðna.
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2027-2029 til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2027-2029 til síðari umræðu með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Hákonar Gunnarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
Fundargerð í 20 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 18 liðum.
Lagt fram.
4.2 - 25101200 - Sólarhvarf 5. Úthlutun lóðar
Frá umhverfissviði, dags. 13.10.2025.2025, lögð fram tillaga að úthlutun lóðarinnar Sólarhvarf 5.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Thelmu B. Árnadóttur og Einars A. Þorvarðarsonar framlagaða tillögu að úthlutun lóðarinnar Sólarhvarf 5 til Egils Gauta Þorkelssonar og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur,Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákonar Gunnarssonar og Sigurbjargar E. Egilsdóttur úthlutun lóðarinnar Sólarhvarf 5 til Egils Gauta Þorkelssonar.
4.7 - 25101393 - Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins - Bókun 613. fundar stjórnar SSH.
Frá SSH, dags. 15.09.2025, lagt fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar, drög að samningi milli Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar um svæðisbundið farsældarráð í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að samningi milli Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar um svæðisbundið farsældarráð í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlögð drög að samningi milli Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar um svæðisbundið farsældarráð í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Fundargerð í 18 liðum.
Lagt fram.
5.1 - 25093845 - Fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitisins og gjaldskrá fyrir árið 2026
Frá Heilbrigðiseftirliti, dags. 30.09.2025, lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og gjaldskrá.
Bæjarráð frestaði erindinu 02.10.2025 og óskar eftir að fá á fund sinn framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlitsins og fulltrúa Kópavogsbæjar í stjórn Heilbrigðiseftirlitsins vegna málsins.
Lagt fram og kynnt.
Umræður.
Gestir viku af fundi kl. 8:49
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun og gjaldskrá fyrir árið 2026 til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteindóttur fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitisins og gjaldskrá fyrir árið 2026.
Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
17.3 - 2201629 - Auðbrekka þróunarsvæði. Svæði 4, Auðbrekka 15 til 27, oddatölur. Deiliskipulag.
Lögð fram á vinnslustigi tillaga skipulagsdeildar dags. 17. október 2025 að deiliskipulagi fyrir svæði 4 á þróunarsvæðinu í Auðbrekku (ÞR-2). Í tillögunni felst áframhaldandi þróun svæðisins úr athafnasvæði í blandaða byggð. Íbúðir á svæði 4 verða samtals 89 á svæði 4. Þriðjungi íbúða verður komið fyrir á efstu hæð í núverandi atvinnuhúsnæði sem breytt verður í íbúðarhúsnæði að hluta og hækkað um eina hæð. Nýbygging við Auðbrekku 15. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á svæðinu geti aukist um 6.300 m2. Atvinnuhúsnæði verður áfram á jarðhæðum við Auðbrekku.
Tillagan er sett fram á uppdrætti og skilmálahefti dags 17. október 2025.
Einnig er lögð fram skipulagslýsing dags. 2015, uppfærð 17. okt 2025, drög að umhverfismati dags. 17. október 2025, Áhættumati vegna loftslagsbreytinga dags 9. maí 2025, skýringarhefti-B dags. í október 2025 og húsakönnun dags. október 2025.
Brynja Guðnadóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Samþykkt að framlögð tillaga verði forkynnt á vinnslustigi með vísan til 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
- Ágrip 17. október 2025
- Uppdráttur dags 17. október 2025
- Skýringarhefti B, Auðbrekkusvæði 4. dags október 2025
- Skilmálahefti - Auðbrekka svæði 4.17.okt 2025
- Skipulagslýsing 2015 uppf. 17. okt 2025
- Húsakönnun - Auðbrekka svæði 4. 17. okt 2025
- Drög - Mat á áhrifum fyrirh. byggðar á umhverfið 17. okt 2025
- Áhættumat v. loftslagsbr. Auðbrekka svæði 4 dags. 9 maí 2025
- Glærur af 17. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 20. október 2025
17.5 - 24041399 - Borgarlínan í Kópavogi. Lota 1. Breytt deiliskipulag Kársneshafnar. Bakkabraut norðan Vesturvarar.
Lögð fram uppfærð tillaga skipulagsdeildar dags. 1. október 2025 að breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar fyrir Bakkabraut norðan Vesturvarar ásamt gatnamótum Bakkabrautar og Vesturvarar. Skipulagsbreytingin nær til þess gatnarýmis sem tengist fyrirhugaðri Borgarlínu og þeim samgöngumannvirkjum sem henni fylgja. Borgarlínustöð er staðsett við norðurmörk lóða Hafnarbrautar 27 og Vesturvarar 30. Lóðarmörk nærliggjandi lóða breytast og innviðum Borgarlínu er afmarkað 25m breitt bæjarland við stöðina. Tillagan var auglýst frá 19. maí til 3. júlí 2025. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 6. október 2025 var athugasemdum sem bárust á kynningartíma vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 13. október 2025 og uppfærðum uppdrætti dags. 1. október 2025.
Samþykkt með áorðnum breytingum dags. 1. október 2025 með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Kolbeins Reginssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Kristins Dags Gissurarsonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Gunnar Sær Ragnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
17.6 - 2501990 - Arnarnesvegur. Milli Fífuhvammsvegar og Rjúpnavegar. Nýtt deiliskipulag. Skipulagsýsing.
Lögð fram tillaga umhverfissviðs að deiliskipulagi Arnarnesvegar frá Fífuhvammsvegi að Rjúpnavegi, dags. 10. otkóber 2025. Í tillögunni er gerð breyting á T-gatnamótum við Sólarsali til að bæta umferðarflæði og auka umferðaröryggi með fækkun skurðpunkta. Einnig er gerð breyting á gatnamótum við Salaveg þar sem gert er ráð fyrir hringtorgi. Til framtíðar er miðað við að Arnarnesvegur geti á þessi svæði orðið fjögurra akreina vegur (2 2) og er hann sýndur þannig á uppdrætti. Tillagan er unnin af Eflu fyrir Kópavogsbæ og Vegagerðina.
Uppdráttur í mkv. 1:2000, dags. 10. október. 2025. Einnig er lagt fram kort sem sýnir hljóðstigsreikning frá Arnarnesvegi.
Samþykkt að framlögð tillaga að deiliskipulagi verði auglýst með vísan til 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
17.8 - 25092015 - Íþróttamannvirki í Kópavogsdal. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Þóru Guðrúnar Gunnarsdóttur dags. 16. september 2025 f.h. Skautasambands Íslands um breytingu á deiliskipulagi Kópavogsdals til að koma fyrir fjölnota íþrótta- og heilsumiðstöð með bílageymslu í kjallara í Kópavogsdal. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. október 2025 var umsókninni vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2025.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
18.2 - 2103759 - Kársnesstígur á sunnanverðu Kársnesi. Deiliskipulag.
Lögð fram á vinnslustigi tillaga að nýju deiliskipulagi Kársnesstígs á sunnanverðu Kársnesi, dags. 31. október 2025, til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Viðfangsefni deiliskipulagsins eru endurbætur á Kársnesstíg á sunnanverðu Kársnesi með áherslu á að bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Í því samhengi er lagt til að komið verði fyrir aðgreindum hjólastíg sem stuðlar að skýrari aðgreiningu ferðamáta og eykur öryggi allra vegfarenda. Skipulagssvæðið nær yfir Kársnesstíg og nærliggjandi svæði á milli Bakkabrautar 2 og Urðarbrautar og er í samræmi við stefnu og markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Tillagan sem er á vinnslustigi til forkynningar er sett fram á tveimur skýringaruppdráttum dags. 31. október 2025. Tillögunni fylgir umhverfismat áætlunar dags. 29. október 2025 sem unnið er af Eflu. Einnig er lögð fram rýni á valköstum frá Urbana-Pláss dags. í apríl 2025, valkostagreining fyrir legu göngu- og hjólastígsins dags. 5. desember 2022, umferðaröryggisrýni frá Vegagerðinni dags. í janúar 2023 og minnisblað frá ReSource um umhverfisáhrif dags. 30. apríl 2025.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar og Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri gerðu grein fyrir tillögunni. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi frá Eflu gerði grein fyrir umhverfismati áætlunarinnar.
Samþykkt með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur að framlögð tillaga verði forkynnt á vinnslustigi með vísan til 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Leó Snær Pétursson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 8 atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
- Tillaga á vinnslustigi skipulagsuppdráttur 1 af 2 drög_311025
- Tillaga á vinnslustigi skipulagsuppdráttur 2 af 2 drög_311025
- skýringaruppdráttur drög dags. 31.10.2025
- Umhverfismat Efla, dags. 29.10.2025
- Kársnesstígur - valkostagreining_útsent
- Stígur um sunnanvert Kársnes_Valkostagreining_2023.01.11_Öryggismat
- Útivistarstígur um Kársnes - mat á valkostum
- ReSource_Minnisblad, dags 30.apríl 2025_Göngustígur Kópavogur
- Ágrip,dags 31. október 2025
- Kynning Eflu á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 3. nóvember 2025.
- Glærur af 18. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 3. nóvember 2025
18.5 - 23112060 - Keppnisvöllur við Kórinn. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs dags. 3. júlí 2025 að breytingu á deiliskipulaginu, Hörðuvellir - Heilsu-, íþrótta- og fræðasetur samþykkt í bæjarstjórn 19. júlí 2005 með síðari breytingum og Hörðuvellir Miðsvæði, samþykkt í bæjarstjórn 28. ágúst 2014 en heildarskipulagið sem er í gildi á svæðinu er deiliskipulag Hörðuvalla samþykkt 24. júlí 2003. Í breytingunni felst nýr keppnisvöllur norðan Kórsins í samræmi við kröfur KSÍ til knattleikja í efstu deild m.a. m.t.t. lágmarksfjölda áhorfenda í sætum með yfirbyggðu þaki auk aðstöðu fyrir fjölmiðla og flóðlýsingu. Austan keppnisvallarins er gert ráð fyrir yfirbyggðri áhorfendastúku allt að 3000 m². Áætlað heildarbyggingarmagn á lóðinni verður áfram samtals 41.500 m² og nýtingarhlutfall 0,61. Tillagan gerir auk þess ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 600 m² úr 67.662 m² í 68.262 m² til norðurs og austurs. Tillagan var auglýst frá 13. ágúst til og 30. september 2025. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 6. október 2025 var athugasemdum sem bárust á kynningartíma vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2025 og uppfærðum uppdrætti dags. 29. október 2025.
Samþykkt með áorðnum breytingum dags. 29. október 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Óskað er eftir að gerður verður samanburður á kostnaði við uppsetningu flóðlýsingar á knattspyrnuleikvangi í Kórnum milli eftirfarandi tveggja valkosta áður en endanleg ákvörðun er tekin um ljósabúnað.
a. Reglugerðar KSÍ um knattspyrnuleikvanga (B flokkur)
b. Fljóðljósaleiðbeininga Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) (D flokkur).“
Hákon Gunnarsson og Leó Snær Pétursson.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Hákonar Gunnarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
18.7 - 25071207 - Þinghólsbraut 63. Byggingarleyfisumsókn.
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ívars Arnars Guðmundssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 63 við Þinghólsbraut. Sótt er um 30,2 m² viðbyggingu á suð-vesturhlið, ásamt breytingum á innra skipulagi hússins og að komið verði fyrir stiga á austurhlið hússins. Núverandi þakform yrði framlengt og þakið hækkað um 23 cm yfir mestu þakhæðina. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,28 í 0,3. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 3. september til 3. október 2025 og athugasemd barst. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 3. september til 3. október 2025 og athugasemd barst. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2025 var umsókninni vísað til skipulags- og umhverfisráðs og er nú lagt fram ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
18.8 - 25092452 - Grundarhvarf 8. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Sveins Ívarssonar arkitekts dags. 18. september 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 8 við Grundarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst uppskipting lóðarinnar í lóðirnar nr. 8A og 8B við Grundarhvarf ásamt stækkun á núverandi húsi til austurs. Lóðin er 1.410 m² og með fyrirhugaðri breytingu yrði lóð A 850 m² og lóð B 560 m². Áformað nýtingarhlutfall lóðarinnar nr. 8A yrði 0,29 og 8B yrði 0,45. Uppdrættir dags. 10. september 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2025 var umsókninni vísað til skipulags- og umhverfisráðs og er nú lagt fram ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tíu liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 38. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 09.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 986. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 10.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 987. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 21.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 615. fundar stjórnar SSH frá 06.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 616. fundar stjórnar SSH frá 20.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 519. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 08.09.2025
Lagt fram.
Fundargerð 520. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 22.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 521. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 13.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 431. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 15.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 411. fundar stjórnar Strætó frá 24.09.2025.
Lagt fram.
Kosning tveggja aðalfulltrúa og tveggja varamannna í skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi.
Kosin voru sem aðalfulltrúar Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir og Guðmundur Birkir Þorkelsson og sem varafulltrúar Björg Baldursdóttir og Theódóra S. Þorsteinsdóttir.