Nýtt Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040.
Málsnúmer: 25102713
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Hafnarfirði dags. 7. maí 2026 um tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026.
Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðar og Hrafnkell Proppé skipulagsráðsgjafi frá Úrbana gerðu grein fyrir erindinu.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026 samþykkt.
- Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 1446/2025 í Skipulagsgátt
- Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026 - ASK Haf
- Endurskoðun aðalskipulags. Umhverfisskýrsla dags. í janúar 2026
- Breyting á ASK Hafnarfjarðar 2013-2025. Rammahluti fyrir Hraun vestur dags. 26. nóvember 2025
- Umhverfismat dags. 30. maí 2025
- Bíla- og hjólastæðastefna dags. í október 2025
- Sveitarfélagsuppdráttur, upplandið. Tillaga, ódags.
- ASK Hafnarfjarðar. Tillaga. Þéttbýlisuppdráttur, ódags.
- Sveitarfélagsuppdráttur Krýsuvík - Tillaga, ódags.
- Samgöngumat. Hraun Vestur dags. 20. maí 2025
- ASK Hafnarfjarðar. Endurskoðun. Tillaga í kynningu dags. í apríl 2026
- Aðalskipulag Hafnarfjarðar dags. 3. desember 2025
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 48. fundur
Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni Hafnarfjarðarkaupstaðs dags. 7. maí 2026 um tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 11. maí 2025 var erindinu vísað til umsagnar.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
03
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 45. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðarkaupstaðs dags. 7. maí 2026 um tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra aðalskipulags.
04
Skipulags- og umhverfisráð - 19. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðar dags. 27. október 2025 þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um tillögu á vinnslustigi fyrir nýtt aðalskipulag, Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju. Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri aðalskipulags gerir grein fyrir erindinu.
Lagt fram. Ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna á þessu stigi.
- Umhverfisskýrsla dags. í október 2025..
- Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040. Sveitarfélagsuppdráttur - Krýsuvík. Vinnslutillaga.
- Þéttbýlisuppdráttur. Vinnslutillaga. Ódagsett.
- Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040. Endurskoðun. Vinnslutillaga í kynningu dags. í október 2025.
- Sveitarfélagsuppdráttur, upplandið. Vinnslutillaga. Ódagsett.
- Bíla- og hjólastæðastefna dags. í október 2025...
- Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 1446/2025 í Skipulagsgátt
05
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 33. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðarkaupstaðs dags. 27. október 2025 um tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra aðalskipulags.