Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Andri Steinn Hilmarsson - varaformaður
- Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
- Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
- Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
- Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
- Sólveig Skaftadóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSólveig Skaftadóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Pétur Björgvin Sveinsson - áheyrnarfulltrúi
- Beitir Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Ásthildur Helgadóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Andri Steinn Hilmarsson varaformaður stýrði fundinum í fjarveru Hjördísar Ýrar Johnson formanns.
Dagskrá fundar
Skipulags- og umhverfisráð - 29. fundur frá 18.05.2026
26022205 - Marbakkabraut 38. Byggingarleyfisumsókn.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Skipulags- og umhverfisráð - 29. fundur frá 18.05.2026
26022205 - Marbakkabraut 38. Byggingarleyfisumsókn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginsonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.
26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginsonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.
2603039F - Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur frá 20.04.2026
25111111 - Kópavogsbraut 20. Byggingarleyfisumsókn.
Bæjarstjórn staðfestir synjun skipulags- og umhverfisráðs með 10 atkvæðum.
Kosning sjö aðalmanna og jafnmargra til vara í skipulags- og umhverfisráð.
Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.
Kosningu hlutu:
Aðalmenn:
Hjördís Ýr Johnson
Andri Steinn Hilmarsson
Árnína Steinunn Kristjánsdóttir
Guðmundur Jóhann Jónsson
Kristinn Dagur Gissurarson
Eydís Inga Valsdóttir
Sólveig Skaftadóttir
Varamenn:
Ármann Kr. Ólafsson
Kristinn Jakobsson
Leifur Andri Leifsson
Karen Rúnarsdóttir
Orri Vignir Hlöðversson
Jónas Már Torfason
Orri Thor Eggertson
Áheyrnarfulltrúar:
Pétur Björgvin Sveinsson
Beitir Ólafsson
Varaáheyrnarfulltrúar:
Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson
Einar Jóhannes Guðnason
Formaður var kosinn: Hjördís Ýr Johnson
Varafomaður var kosinn: Andri Steinn Hilamrsson
Erindisbréf skipulags- og umhverfisráðs samþykkt af bæjarstjórn 24. júní 2025, lagt fram og kynnt.
Lagt fram og kynnt.
Lögð fram áætlun um fundi skipulags- og umhverfisráðs árið 2026.
Lagt fram.
Kynning á starfi skipulagsfulltrúa og skipulagsdeildar og stöðu verkefna sem eru í vinnslu.
Kynning.
Fundarhlé kl. 16:39, fundi fram haldið kl. 16:46.
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Hafnarfirði dags. 7. maí 2026 um tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026.
Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðar og Hrafnkell Proppé skipulagsráðsgjafi frá Úrbana gerðu grein fyrir erindinu.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026 samþykkt.
- Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026 - ASK Haf
- ASK Hafnarfjarðar. Endurskoðun. Tillaga í kynningu dags. í apríl 2026
- ASK Hafnarfjarðar. Tillaga. Þéttbýlisuppdráttur, ódags.
- Sveitarfélagsuppdráttur, upplandið. Tillaga, ódags.
- Sveitarfélagsuppdráttur Krýsuvík - Tillaga, ódags.
- Umhverfismat dags. 30. maí 2025
- Bíla- og hjólastæðastefna dags. í október 2025
- Samgöngumat. Hraun Vestur dags. 20. maí 2025
- Aðalskipulag Hafnarfjarðar dags. 3. desember 2025
- Breyting á ASK Hafnarfjarðar 2013-2025. Rammahluti fyrir Hraun vestur dags. 26. nóvember 2025
- Endurskoðun aðalskipulags. Umhverfisskýrsla dags. í janúar 2026
- Umsagnarbeiðni vegna máls nr. 1446/2025 í Skipulagsgátt
Með tilvísun í skilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, dags. 14. nóvember 2023, eru lögð fram byggingaráform frá Nordic office of Architecture dags. 25. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 25-33 við Hallarhvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.
Hjalti Brynjarsson og Hulda Jóns arkitektar frá Nordic Office of Architecture gerðu grein fyrir erindinu.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Útfærsla og verklag vegna umhverfisviðurkenninga og götu ársins 2026, lagt fram til kynningar.
Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála gerði grein fyrir erindinu.
Lagt fram og kynnt.
Lögð fram fyrirspurn bæjarfulltrúa Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur, dags. 10. júní 2026, um ástand og úrbætur Kópavogslækjar.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra umhverfismála.
Lögð fram umsókn Jens Arnars Árnasonar arkitekts dags. 27. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Dofrakór um breytingu á deiliskipulagi. Í gildi er deiliskipulag Hörðuvalla, samþykkt í bæjarráði Kópavogs 24. júlí 2003 m.s.br. Lóðin er á svæði 7, reit 1. Í breytingunni felst að byggingarreitur á austurhluta núverandi húss stækkar og komið verði fyrir viðbyggingu á einni hæð með þaksvölum að hámarki 59,5 m² að flatarmáli með tengingu við núverandi íbúð. Komið er fyrir nýrri útidyrahurð á efri hæð með tengingu við þaksvalir. Sótt er um 103 m² lóðarstækkun til austurs yfir bæjarland og að fallið verði frá áður samþykktri deiliskipulagsbreytingu, samþykkt í bæjarráði 3. apríl 2008 um stækkun byggingarreits til norðausturs fyrir garðskýli á einni hæð. Uppdrættir dags. 3. júní 2026.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. júní 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2026.
Elín Mjöll Lárusdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lögð fram umsókn Andra Klausen arkitekts dags. 26. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 30 og 30A við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst fjölgun tenginga lóðarinnar við Dalveg. Fyrirhuguð er ný hægri handar inn-/útkeyrsla á Dalveg norðan við byggingarreit nr. 30A. Einnig er gert ráð breyttu fyrirkomulagi bílastæða ofanjarðar og breytingu á göngutengingum.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu skipulagslýsing dags. 16. apríl 2026 fyrir nýtt deiliskipulag Þríhnúkagígs og nágrennis dags. 16. apríl 2026. Fyrirhuguð skipulagsvinna mun felast í að skapa ramma um framtíðarnýtingu svæðisins. Skipulagslýsingin var kynnt frá 14. maí til 9. júní 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartímanum ásamt samantekt umsagna.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Fundarhlé kl. 18:14, fundi fram haldið kl. 18:19.
Bókun:
„Undirrituð fagna því að hafin sé vinna við deiliskipulag fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni. Mikilvægt er að skýr stefna liggi fyrir um framtíð svæðisins, aðgengi að því og umgjörð þeirrar ferðaþjónustu sem þar hefur verið byggð upp.
Jafnframt benda undirrituð á að umsagnir fagstofnana kalla á vandaða undirbúningsvinnu áður en lengra er haldið. Fram kemur að þörf sé á fornleifaskráningu á öllu skipulagssvæðinu auk frekari greininga á jarðminjum, náttúrufari og öðrum þáttum sem geta haft áhrif á framtíðarskipan svæðisins. Einnig þarf að skýra umfang fyrirhugaðrar uppbyggingar og þann kostnað sem kann að falla til vegna rannsókna, innviða og annarra aðgerða.
Undirrituð leggja sérstaka áherslu á að svæðið er innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgarsvæðisins auk þess að vera innan fólkvangs og þjóðlendu. Því þarf að tryggja að vernd náttúru, landslags og vatnsauðlinda verði leiðarljós í allri skipulagsvinnu varðandi svæðið. Gæta þarf hófs í ágangi á svæðið og gera ráðstafanir til að stýra fjölda ferðamanna. Jafnframt er mikilvægt að fyrir liggi fullnægjandi mat á náttúruvá og mögulegum áhrifum jarðhræringa áður en endanlegar ákvarðanir um uppbyggingu eru teknar.“
Eydís Inga Valsdóttir og Jónas Már Torfason.
Bókun:
Miðflokkurinn samþykkir að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir Þríhnúkagíg og nágrenni. Miðflokkurinn áréttar að vanda þurfi til verka við gerð skipulags og taka skuli tillit til þeirra athugasemda sem bárust frá máls, fag og umsagnaraðilum.
Gæta þarf að ítrustu og ströngustu kröfum þegar kemur að vatnsvernd og mögulegum mengunarþáttum á svæðinu. Viðbragðsáætlun þarf að liggja fyrir, ásamt viðeigandi búnaði, ef óhöpp verða á svæðinu, hvort sem um er að ræða umhverfisslys eða slys á fólki. Einnig þarf að gæta sérstaklega að jarðraski á friðlýstu svæði. Miðflokkurinn tekur undir umsögn Umhverfistofnunar sem veitt var við heildarendurskoðun á aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 þann 3. maí 2021. Þar kemur fram að gerð aðkomuvegar og bílastæði að gígnum muni hafa veruleg, neikvæð og óafturkræfð umhverfisáhrif á svæðið. Þá muni ásýnd og upplifun á svæðinu breytast til hins verra ef farið verði í slíka framkvæmd.“
Beitir Ólafsson.
Bókun:
„Undirritaður fagnar þeirri vinnu sem nú er framundan vegna uppbyggingar og deiliskipulags við Þríhnúkagíg.
Um er að ræða spennandi verkefni sem getur skapað ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu og útivist, en mikilvægt er að vandað verði sérstaklega vel til verka. Við alla frekari vinnu þarf að taka tillit til þeirra athugasemda og umsagna sem borist hafa frá viðeigandi stofnunum.
Sérstaklega þarf að horfa til þess að svæðið er innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgarsvæðisins. Því verður skipulagsvinnan að byggja á skýrum faglegum forsendum þar sem vernd vatnsbóla og náttúru er tryggð.“
Pétur Björgvin Sveinsson.
Bókun:
„Meirihlutinn fagnar þeirri vinnu sem núna er hafin við gerð deiliskipulags við Þríhnúkagíg og tekur undir þær bókanir sem minnihlutaflokkarnir hafa lagt fram.“
Andri Steinn Hilmarsson, Ármann Kr. Ólafsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
Samþykkt að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags á grundvelli framlagðrar skipulagslýsingar dags. 16. apríl 2026 og með hliðsjón af þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust á kynningartíma.