Roðahvarf 10-18 og 20-32. Byggingaráform.
Málsnúmer: 25122242
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 27. fundur
Með tilvísun í deiliskipulagsskilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs dags. 14. nóvember 2023 eru lögð fram uppfærð byggingaráform frá Nordic office of Architecture dags 13. febrúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 10-18 og 20-32 við Roðahvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar 2026 voru lögð fram byggingaráform dags. 22. desember 2025 og var þeim vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lögð fram uppfærð byggingaráform dags. 13. febrúar 2026 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð byggingaráform dags. 13. febrúar 2026 með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2026, leiðrétt 21. apríl 2026.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 22. fundur
Með tilvísun í deiliskipulagsskilmála í deiliskipulagi Vatnsendahvarfs, dags. 14. nóvember 2023, eru lögð fram byggingaráform frá Nordic office of Architecture dags 22. desember 2025 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 10-18 og 20-32 við Roðahvarf. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur mannvirkja og lóða falla að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.
Hulda Jóns, Hjalti Brynjarsson og Najlaa Attaallah arkitektar frá Nordic Office of Architecture gerðu grein fyrir erindinu.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.